Alþýðublaðið - 02.06.1967, Qupperneq 7
^* irnc uai í nnoc;t;m\v r "
*£ í w » W t*** » x ww
Kvennaskólanum i
Reykjavík slitið
Fj/rir 25 árum iileinkaði Sigfiis Halldórsson tónskáld Sfómanna-
deginum tónverkið „Stjáni blái“ við Ijóð Amar Arnarsonar. í tilefni
af þessvm tímamóUim ætlar nú fulltrúaráð Sjómannadagsins í
Reykjavík og Hafnarjirði að geja verkið út, og er það raddsett aj
Róbert A. Ottóssyni fyri-r kór með píanóundirleik, en káputeikning
er gerð aj höfundi Sigfúsi Halldórssyni.
KVENNASKOLANUM í Reykja
vík var sag't upp laugardaginn 20.
maí s.l. aff viffstöddu f jölmenni.
Skólaslitaræffu flutti frú Hrefna
Þorsteinsdóttir settur skólastjóri
í orlofi frú Guðrúnar P. Helga-
dóttur.
Forstöðukonan gerði grein fyr-
ir starfsemi skólans þetta skólaár-
ið og skýrði frá úrslitum vorprófa.
225 námsmeyjar settust í skólann
í haust og 35 brautskráðust úr
skólanum í vor. Hæstu einkunn á
lokaprófi hlaut Soffía Eggerts-
dóttir námsmær í 4. bekk Z. 9,37.
Miðskólaprófi luku 32 stúlkur, en
landspróf þreyta 27. Á miðskóla-
prófi hlaut hæstu einkunn Ásta
Ásdís Sæmundsdóttir 9,14. Ungl-
ingaprófi luku 63 stúlkur. Hæstu
einkunn hlaut Guðný Ása Sveins-
dóttir 9,43. Prófi upp í 2. bekk
luku 63 stúlkur. Hæstu einkunn
þar hlaut Sigríður Jóhannsdóttir
9,52.
Mikill mannfjöldi var við skóla-
uppsögnina, og voru Kvennaskól-
anum færðar góðar gjafir. Fyrir
hönd Kvennaskólastúlkna, sem út
skrifuðust fyrir 25 árum talaði
frú Guðrún Gísladóttir og færði
sá árgangur skólanum forkunnar-
fagran fundarhamar gerðan af
Ríkharði Jónssyni. Fyrir hönd
Kvennaskólastúlkna, sem braut-
skráðust fyrir 20 árum talaði frú
Borghildur Fenger og færðu þær
Systrasjóði peningagjöf til minn-
ingar um látna bekkjarsystur
sína Guðrúnu Steinsen. Frú Arn-
dís Nielsdóttir talaði fyrir hönd
15 ára árgangs og færðu þær skól-
anum peningagjöf í Listaverka-
sjóð skólans. Fyrir hönd 10 ára
árgangs talaði Guðný Friðsteins-
dóttir, færðu þær Systrasjóði
einnig peningagjöf. Að lokum tal-
aði Guðný Hinriksdóttir fyrir
hönd 5 ára árgangs og gáfu þær
skólanum peningaupphæð til
frjálsra ráðstafana. Þá barst
Systrasjóði peningagjöf frá frú
Agnesi Kragh. Sömuleiðis frá frú
Kristensu og Vilhelm Steinsen,
bankaritara og Emil Ágústssyni til
minningar um frú Guðrúnu Stein-
sen, látna dóttur og eiginkonu.
Forstöðukonan þakkaði eldri
nemendum skólans alla tryggð,
sem þeir hefðu sýnt skóla sínum
og kvaff skólanum og hinum ungu
námsmeyjum mikinn styrk að vin
áttu þeirra. Hún væri þeim öllum
hvatning.
Þá fór fram verðlaunaafhend-
ing. Verðlaun úr Minningarsjóði
fru Thoru Melsted, veitt fyrir
beztan árangur í bóklegum grein-
um á lokaprófi, hlaut Soffía
Eggertsdóttir 4. bekk Z. Þá voru
veitt verðlaun úr Thomsenssjóði
fyrir beztan árangur í útsaumi.
Þau hlaut Sigríður D. Benedikts-
dóttir 3. bekk C. Verðlaun úr
Framhald á bls. 10.
Frá aðalfundi
Hagtryggingar
Ályktun frá aðalfundi
söl umiðstöðvarinnar
Þýðing hraðfrystiiðnaðarins
fyrir íslenzkt þjóðarbú er öllum
landsmönnum vel ljós. Þar á sér
stað mikil verðmætasköpun
vegna vinnslu sjávaraflans í mat
væli, sem fullnægja kröfum nú-
t'íma neytendamarkaða. Hrað-
frystiiðnaðurinn hefur veitt jafn-
asta atvinnu og er, ásamt sjávar-
útvegnum, undirstaða atvinnu-
uppbyggingar í fjölmörgum sjáv-
arplássum landsins. í hraðfrysti-
iðnaðinum og fiskiflotanum, sem
annast hráefnisöflun vegna hans,
liggur bundið mikið fjármagn. Ár-
legur útflutningur hraðfrystra
sjávarafurða er um Va af heildar-
útflutningsverðmæti þj óðarinnar.
Alþjóð er kunnugt um, að erf-
iðleikar þeir, sem steðjuðu að
AUSTURRÍSK - ÍSLENZKA
FÉLAGIÐ STOFNAÐ í VÍN
Hinn 1. febrxiar 1967 var í Vín
stofnað Austurrísk-íslenzka félag-
ið, og var formaður kosinn hr.
Herbert Praek, áður forstjóri þjóð
banka Austurríkis, og aðalritari
hr. Ivan von Wimpffan forstjóri
Austurríkishússins. Josefsplatz 6
(Palais Pálffy).
Eitt af fyrstti verkefnum félags
ins var að undirbúa íslenzka sýn-
ingardeild í 4. alþjóðlegu ferða
m'álasýningunni í Vín 20. febrúar
til 6. marz. s.I. Nokkrir félagsfund-
ir eru í undirbúningi og verða
sýndar kvikmyndir og haldnir fyr
irlestrar. Einnig hyggur félagið á
hópferð til íslands.
í fyrsta félagsbréfi félagsins
þakkar félagsstjórnin Loftleiðum
h.f. fyrir stuðning við félagið.
Utanáskrift félagsins er Öster-
reichisch-Islándische Geselles-
chaft, 1010 Wien, Josefsplatz 6
(Palais Pálffy).
Frá utanríkisráðuneytinu.
hraðfrystiiðnaðinum £ byrjun
þessa á‘rs, stöfuðu af minnkandi
hráefni, auknum innlendum til-
kostnaði og lækkuðum verðum á
erlendum mörkuðum. Erfiðleikar
þessir voru þaff miklir, að hrað-
frystihúsin í heild hefðu kom-
izt í þrot hefði ekkert verið að-
hafzt. Með lögum um ráðstafan-
ir vegna sjávarútvegsins, sem m.
a. fela í sér, að hið opinbera
ábyrgist' greiðslu allt að 75% af
verðfalli hraðfrysts fisks, stóðu
vonir til, að unnt yrði að fleyta
hraðfrystiiðnaðinum yfir erfið-
leikana um sinn. Misheppnuð
vetrarvertíð hefur gert þá von
að engu, að áfram verði haldið
án frekari aðgerða.
Til þess að eðlilegur rekstur
og nauðsynlegur þróttur skapist
á ný í íslenzkum hraðfrystiiðn-
aði, verður ekki hjá því komizt,
að hið fyrsta verði framkvæmt
algjört endurmat á rekstraraff-
stöðu hraðfrystihúsanna. í því
efni telja hraðlfrysKihúsaeigend-
ur, aff um eftirfarandi leiðir sé
að velja;
A8 gengið sé rétt skráð eða
nauðsynlegar upphætur greiddar
Framhald á bls. 10.
AÐALFUNDUR Hagtryggingar
hf. var lialdinn laugardaginn 20.
maí s.l. í veitingahúsinu Sigtúni.
Fundarstjóri var Árni Guffjónsson
hrl. en Sigurffur Sigurffsson lög-
fræffingur var ritari.
í skýrslu félagsstjórnar var
skýrt frá starfsemi skrifstofu-
rekstri og hag félagsins. Bifreiða-
tryggingar eru enn umfangsmesta
starfsgrein enda þótt Hagtrygging
hafi nú tekið upp flestar almenn-
ar tryggingagreinar. Fjöldi á-
byrgðartryggða bifreiða hafði auk
izt um 20% og eru nú í ábyrgð-
artryggingu á sjöunda þúsund bif
reiðar hjá félaginu. Lægsti ið-
gjaldaflokkur félagsins var opn-
aður 1. maí s.l. eins og gert hafði
verið ráð fyrir þegar félagið var
stofnað. % tryggjenda fluttust í
þennan flokk og nemur lieildar-
lækkun iðgjalda til þessa sér-
staka hóps á yfirstandandi trygg-
ingarári um 3 milljónir króna.
Frá því Hagtrygging tók til
starfa fyrir tveim árum hafa bif-
reiðatryggingaiðgjöld almennt
lækkað mjög mikið, tjónabætur
hafa í sumum tilvikum verið aukn
ar, launagreiðslur til starfsfólks
og bifvélavix-kja hafa verið aukn
ar um og yfir 40%, en með þess-
um aðferðum hefur verið unnt að
breyta afkomu bifreiðatrygginga
í landinu almennt þannig að nú
eru bifreiðati-yggingar ekki lengur
taprekstur heldur talinn vera eft-
irsóknarverð og sæmilega arðvæn
leg þjónustustarfsemi.
Talið var að heildarsparnaður
bifreiðaeigenda í landinu á þessu
ári vegna hinna lækkuðu trygg-
ingaiðgjalda nemi eigi lægri fjár-
hæð en 40-50 milljónum króna.
Þaff var einnig á það bent að bif-
reiðatryggingar muni vera eina
þjónustustarfsemin í landinu sem
lækkað hefur á undanförnum
tveim árum.
Heildarvelta félagsins á árinu
var rúmar 20 milljónir og hagn-
aður 3.088.000,00 kr. Hlutafé er
12 milljónir og hefur nú verið
innkallað. Samþykkt var á fundin
Framhald á bls. 15.
BRIDGE-KEPPNI
KÓPAVOGS LOKIÐ
Bifreiðaverkstæði Péturs Maack
sigraði í Bridge-firmakeppni
Kópavogs.
Keppt var um farandbikar sem
Sparisjóður Kópavogs gaf á sín-
um tíma. Alls tóku þátt í keppn-
inni 32 firmu og er röð þeirra
efstu þannig:
1. Bifreiðaverkst'. P. Maack.
2. Bakarí G. Jóhannessonar.
3. Efnagerðin Valur.
4. Blikksmiðjan Vogur.
5. Borgarbúðin.
6. Kópavogs Apótek.
7. Blómaskálinn.
8. Biðskýlið Borgarholtsbraut
9. Borgarsmiðjan.
10. Málning h.f.
11. Kron, Álfhólsvegi.
12. Sjúkrasamlagið. j
13. íslenzk húsgögn.
14. Litaskálinn.
15. Hraðfrystihúsið Hvammur.
16. Lokbrá.
Stjórnin óskar Pétri Maack tiTj
hamingju með bikarinn og flytur
öllum fyrirtækjum þakkir sínan
fyrir tryggð þeirra við Bridge-
félagið og heilir á áframhaldandi
stuðning þeirra.
2. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J-