Alþýðublaðið - 02.06.1967, Page 10

Alþýðublaðið - 02.06.1967, Page 10
^niromoR Skipasmíðastöð - I Gdansk. Skipasmíðastöð í Gdynia. Skipaviðgerðarstöð í Szczecin. Skipaviðgerðarstöð I Gdynia. A/efn/ð ŒNTROMOR og jbér nefnið sérfræðing Á árunum 1961 til 1966 flutti Centromor úr landi skip sem námu að smálestatölu 1.351.700. Þar af FISKISKIP 172.500 smálestir og flutningaskip 1.159.200 smálestír: Á Kaupstefnunni í Reykjavík mælum við með pólsk- tegundir og gerðir skipa, sem skipaeigendur og skipa- miðlarar um heim allan hafa áhuga fyrir. Aðaláherzl- an er lögð á sýningu fiskiskipa, en í þeirri grein eru pólskar skipasmíðastöðvar í fremstu röð. Pólskir togarar henta öllum fiskimiðum og aUrl veðuráttu. Á Kaupstenfunni í Reykjavík mælum við með pólsk- um fiskiskipum: 1. „SEINER“ P.K.1149. 2. Togurum af gerðinni B429 frá 300 smálesta stærð. 3. Togurum af gerðinni TR 27/t/I frá 100 smálesta stærð. ■ ::' 4. Fiskibátum af gerðinni B52 frá 60 smálesta stærð. 5. Togurum af gerðinni B27 frá 230 smálesta stærð. Allir þeir sem áhuga hafa, eru boðnir að sjá sýningu okkar á Kaupstefnunni í Reykjavík dagana 20. maí til 4. júní. Ályktun Frh. af. 7. síSu. til að tryggja rekstrargrundvöll- inn. Að tryggja beri aukna hráefn- isöflun með hækkun fiskverðs til útgerðarinnar til þess að aukinn áhugi vakni fyrir þorskveiðum. Að markaðsaðstaða íslendinga sé sem víðast tryggð og hags- munir hraðfrystiiðnaðarins eigi fyrir borð bornir í milliríkjasamn- ingum. Að lánamál hraðfrystihúsanna verði endurskoðuð hið allra fyrsta, með það fyrir augum, að í þeim efnum búi íslenzkur lirað- frystiiðnaður við sambærileg kjör og erlendir keppinautar. Öðru hvoru á liðnum áratug- úm hefur liraðfry!st^iðnatí|irinnj eins og ýmsar aðrar atvinnugrein- ar, átt við erfiðleika að stríða vegna innanlandsþenslu og erf- iðra markaðsaðstæðna erlendis, sem hafa dregið úr framleiðslu- möguleikum og arðbæri, en jafn- an eftir að nauðsynlegar leið- réttingar hafa verið gerðar á rekstrargrundvelli þessa mikil- væga atvinnuvegar, hvort sem er fyrir tilverkan gengisbreyt- ingar eða uppbóta, hefur hrað- frystiiðnaðurinn fljótlega náð sér á strik og stóraukið afköst sin og framleiðslu. Samtímis hefur grundvöllurinn fyrir rekstri þorsk veiðiflotans styrkzt og atvinna stóraukizt í sjávarplássum með þar af Jeiðandi framhaldsverkun- um inn í allt atvinnulífið. Það yrði þjóðarógæfa, ef íslenzkum hraðfrystiiðnaði hnignaði og af- leiðingar ófyrirsjáanlegar fyrir mörg sjávarpláss. Hraðfrystihúsa eigendur vilja því á þessum erf- iðu tímamótum brýna fyrir for- ráðamönnum þjóðarinnar, að van- meta ekki mikilvægi hraðfrysti- iðnaðarins, og að þeir beiti sér fyrir nauðsynlegum ráðstöfunum til að tryggja áframhaldandi rekstur og uppbyggingu þessa at- vinnuvegar. Kvetinaskólmn Frh. af bls. 7. Verðiaunasjóði frú Guðrúnar J. Briem fyrir beztan árangur í fatasaumi Ihlaut Soffía Eggerts- dóttir 4. bekk Z. Þá gaf þýzka isendiráðið þrenn verðlaun fyrir bezta frammistöðu í þýzku. Þau hlutu Soffía Eggerts- dóttir 4. bekk Z., Kristín Halldórs dóttir 4. bekk Z. og Eygló Yngva- dóttir í 4. bekk C. Þá gaf danska sendiráðið tvenn verðlaun fyrir beztu frammistöðu í dönsku og þau hlutu Brynja Jónsdóttir 4. bekk Z og Ólöf Hulda Marísdóttir 4. bekk Z. í lok skólaársins hafði verið út hlutað styrkjum til námsmeyja úr Systrasjóði kr. 24.000,-, úr Styrkt- arsjóði Thoru og Páls Melsted 3.000;- krónum og úr Kristjönu- gjöf kr. 9.000,-. Að lokum þakkaði forstöðukona skólanefnd og gestum komuna, þakkaði kennurum ágætt samstarf 'á liðnum vetri og ávarpaði stúlk- urnar, sem brautskráðust, og ósk- aði þeim gæfu og gengis á kom- ■ andi árum. 10 2. júnf 1967 - ALÞÝÐUBLABIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.