Alþýðublaðið - 02.06.1967, Síða 14
Ávarp til
stubningsmanna
A-listans
A rúmlega 50 ára starfsferli hefur Aljiýðuflokkurinn
ávallt átt í fjárhagserfiðleikum vegna nauðsynlegrar starfs-
semi sinnar. — Flokkurinn hefur stuðzt við fylgi fólks, sem
Jítið hefur verið aflögufært um fjármuni. — Þetta hefur þó
bjargazt með almennri þátttöku stuðningsmanna hans þótt
hver hafi þar ekki látið stóra skammta.
Nauðsynlegur kosningaundirbúningur hefur á síðari ára-
tugum vaxið mjög og krafizt síaukins fjármagns. — Það er
á þessu undirbúningsstarfi, sem úrslit kosninganna geta oltið.
Þetta gera fjársterkari flokkarnir sér ljóst og spara þess
vegna í engu allan tilkostnað. Þessum þætti kosningabarátt-
unnar veröur ekki mætt á annan veg. en með almennri fjár-
söfnun.
Alþýðuflokkurinn fer þess vegna enn einu sinni bónarveg
til allra stuðningsmanna sinna og velunnara og biður þá,
hvern eftir sinni getu, að láta af hendi fé í kosningasjóð
flokksins.
Fyrir hönd fjáröflunarnefndar munu eftirtaldir aðilar veita
fé móttöku: Emilía Samúelsdóttir, sími 13989, g oSkrifstofa
Alþýðuflokksins í Reykjavík, símar 15020 og 13374.
Fjáröflunardeild Alþýðuflokksins í Reykjavík:
Emilía Samúelsdóttir
Gylfi Þ. Gíslason
Eggert G. Þorsteinsson.
Ingólfs-Caf
Gömlu dansarnir
í KVÖLD KL. 9.
Hljómsveit Jóhannesar Eggertssonar-
Baldur Gunnarsson stjórnar.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 12826.
Rýmingarsala
Þar sem ég hefi ákveðið að hætta verzluninni, verða nú allar vöru-
birgðir (einnig smásöluvörurnar) seldar út með miklum afslætti og
byrjar salan í dag og heldur áfram meðan birgðir endast.
Verzlun H. Toft
Skólavörðustíg 8.
Orlofsheimiil
Frh. af 1. síðu.
að vaxa með sinni samtíð.
Orlofsnefndin í Reykjavík tek
ur við umsóknum frá og með 1.
júní á skrifstofu Kvenréttindafél.
íslands að Hallveigarstöðum við
Túngötu mánud., þriðjud., fimmtu
d. og föstud. kl. 4—6 e. h., en á
miðvikud. kl. 8—10 að kvöldi sími
18156.
Orlof húsmæðra er skemmtileg
framvinda félagsmála okkar og
hver og einn þátttakandi gefur
því sitt gildi.
(Frá Orlofsnefnd húsm. í Rvík)
Aðaifundur
Framhald af bls. 2.
starfsmannahald nam 180 millj.
kr. lendingar- og eldsneytiskostn-
aður hækkaði um 200% á árinu og
var mætt með hækkuðum fargjöld
um innanlands, en fargjöld á flug
leiðum til útlanda 'hafa ekki hækk
að í nokkur ár. Færeyjaflugi var
haldið uppi allt árið. Félagið hélt
einnig uppi ískönnun við Græn-
land, en mun ekki endurnýja þá
samninga.
Raufarhöfn bættist við sem við
komustaður innanlands. Farþegar
til staða innanlands voru sem hér
segir: Rvík—Akureyri 32.897, til
Vestmannaeyja 22.000, Egilsstaða
19.000, ísafjarðar 15.000, Sauðár-
króks 4.000, Hornafjarðar 3.800,
Patreksfjarðar 3.500, Húsavíkur
2.850. Á leiðinni Rvík—Kaup-
mannahöfn 16.500.
Flugfélagið 'hefur, eins og að
undanförnu, lagt ríka áherzlu 'á
að kynna ísland erlendis með því
að bjóða hingað blaðamönnum og
ferðaskrifstofumönnum.
Örn Johnson ræddi um kaupin
á Boeing-þotunni og sagði, að Ex-
port-Importbankinn í New York
mundi lána 80% verðsins gegn
ríkisábyrgð, Boeingfélagið lánaði
10% gegn 2. veðrétti í vélinni, en
Flugfélagið sjálft borgaði 10%.
Afhending vélarinnar átti að fara
fram í maímánuði, en dregst um
mánuð vegna framleiðslu véla til
styrjaldarinnar í Viet-Nam.
Áherzla hefur alltaf verið lögð
á tækjakaup, en byggingarfram-
kvæmdir á Reykjavíkurflugvelli
látnar sitja 'á hakanum meðal ann
ars vegna óvissu um framtíð vall-
arins. Þau mál krefðust þó skjótr-
ar úrlausnar.
Því næst voru lagðir fram endur
skoðaðir reikningar félagsins.
Góðfúslega endurnýið fyrir
helgi-dregið á mánudag.
EHDURnVJUn IVKUR
6 HflDECI DRAllRRDDGSI
Vörusýingsn ^
Frh. af 3. síðu.
sýningardeildin ‘hér er minnsta
sýningardeildin á vörusýningunni,
150 fermetrar, en hefur þó vakið
mikla athygli. Þar vinna nú sex
manns. 8 viðskiptafyrirtæki Ung-
verja sýna í deildinni og eru þar
sýndar meira en 40 vörutegundir,
m. a. vefnaðarvörur, prjónavörur,
skór, regnfatnaður, loðkápur og
leðurvörurö Einnig ýmis konar
matvörur, niðursuðuvörur og sult
ur, auk þess sælgæti og molasyk-
ur. Síðast, en ekki sízt álbúsá-
höld, sem vakið hafa athygli.
VesiurJlslendlngar
Frh. af 2. síðu.
deildarþingmaður, Erik Stefanson
þingmaður og fleiri.
Fyrir hönd undirbúningsnefnd-
arinnar afhenti Haraldur Bessa-
son prófessor töfluna og flutti
stutta ræðu. Sendihcrra svaraði,
þakkaði fyrir hönd íslenzku ríkis-
stjórnarinnar gjöfina og tók m. a.
fram, að töflunni yrði valinn góð
ur staður á íslandi.
Ýmsar fleiri ræður voru fluttar,
éinkúm til að þakka þeim, sem
mesta vinnu hafa lagt fram í sam
bandi við gjöfina.
(Frá forsætisráðuneytinu)
14 2. júní 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ