Alþýðublaðið - 04.06.1967, Blaðsíða 5
Sunnudags Alþýðublaðið — 4. júní 1967
5
>\LRSV€)IO
IMKÍMD
RitstJörij Benedikt Grönöal. — Eitstjóri SunnudagsblaÖs: Krlstján
Bersi Olafsson. — Símar: 14900-14903. — Auglýsingasfml 14906.
Aðsetur: Alþýðuhósið við Hverfisgötu, Reykjavík. - Prentsmiðja
Alþýöublaðsins. Sími 14005. —' Áskriftargjftlfl: kr. 105,00. — t lausa-
sölu: kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Nauösyn tollalækkunar
Islendingar hafa ein hæstu aðflutn-
ingsgjöld, sem tíðkast í nálægum lönd-
um. Þegar núverandi ríkisstjórn kom
til valda, voru aðflutningsgjöldin þó
mun hærri en þau eru nú. Heildarað-
flutningsgjöld gátu komizt upp í 340%
af verði vörunnar, og algengt var, að
þau væru um 300%. Þannig var þetta,
meðan Framsóknarflokkurinn fór með
fjármálastjórnina.
Á valdatíma núverandi ríkisstjórnar
hafa tollar tvívegis verig lækkaðir veru
lega, 1961 og 1963. Var gert ráð fyrir
því, að tolltekjur mundi minnka um
200 millj. kr. vegna þessara tollalækk-
ana. Þær lækkuðu þó alls ekkert, sum-
þart vegna aukins innflutnings og sum-
part vegna þess, að nú var farið að
flytja til landsins með eðlilegum hætti
vörur, sem áður var smyglað, og þess
vegna nú greiddur af þeim hinn lækk-
aði tollur. Til þess að auðvelda íslenzk-
um iðnaði samkeppni við erlendla iðn-
aðarframleiðslu hafa aðflutningsgjöld
af vélum og tækjum til iðnaðarfram-
leiðsiu verið lækkuð úr 35% í 25% og
í sumum tilfellum úr 15% í 10%.
Tollarn-ir eru enn óeðlilega háir og
miklu hærri en annars staðar tíðkast,
enda hafa allar viðskiptaþjóðir okkar
lækkað tolla sína í óða önn á undan-
förnum árum. Hins vegar eru tolltekj-
urnar svo veigamikill þáttur í tekjum
ríkissjóðs, að tollarnir verða ekki lækk-
aðir verulega, nema samtímis fari fram
gagngerð endurskoðun á öllum fjármál-
um ríkisins. En slík endurskoðun þarf
einmitt að fara fram. Tollalækkanirhar
á síðan að framkvæma smám saman og
samkvæmt fyrirfram gerðri áætlun,
þannig að allir viti, 'hvað muni gerast.
Samtök íslenzkra iðnrekenda hafa lýst
stuðningi sínum við tollalækkanir sam-
kvæmt áætlun, enda er sjálfsagt, að
tollalækkunaráætlun yrði samin í sam-
ráði við iðnrekendur og iðnverkafólk,
þannig að eðlilegt tillit yrði tekið til
réttmætra hagsmu'na iðnaðarins, svo
sem með því að lækka ávallt hráefnis-
tolla á undan tollalækkun á fullunn-
inni vöru.
Af lækkuðum tollum hlytist lægra
vöruverð í landinu og að mörgu leyti
heilbrigðari nýting á framleiðsluöflum
þjóðarinnar.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Miklubraut 18,
hér í borg, þingl. eign Árna Jónssonar, fer
fram á eigninni sjálfri, föstudaginn 9. júní
1967, kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
KÓSENDAFUNDUR
l-LISTANS
á Hótel Borg, sunnudaginn 4. júní kl. 20,30.
D A G S K R Á :
□ Ungt fólk af I-listanum flytur ávörp:
Bryndís Schram, Haraldur Henrýsson,
Vésteinn Ólason.
□ Kynning stjórnmálaflokka (Gamanþátt-
ur í nýjum og alkunnum stíl).
□ Blásarakvintett flytur stutt tónverk. •
□ Hannibal Valdemarsson flytur ræðu.
Reykvíkingar fjölmennið — Allir velkomnir.
KEFLAVIK
Börn eð'a unglingar óskast til að bera Alþýðu-
blaðið til áskrifenda í Keflavík.
Upplýsingar í síma 1122.
TEKINN í SÁTT
HERTOGINN og hertogafrú-
in af .Windsor eru á leiS yfir
Atlantshafið heim til Englands
þar sem þau verða viðstödd
afhjúpun minnismerkis um
móður hertogans, Mary drottn-
ingu, sem hefði orðið 100 ára
á þessu ári. Elízabet drottning
afhjúpar minnismerkið.
Þessi fjölskylduathöfn er ef
til vill ekki mikilsverð í aug-
um heimsins, en í augum her-
togans af Windsor, sem fyrr-
um hét’ Játvarður 8. konungur
Englands og keisari Indlands,
— er þetta hérumbil eins mik-
ilvægt og það, sem gerðist einn
sólríkan júnídag, þegar hann
kvæntist frú Simpson og gerði
hana þar með að hertoga-
frúnni af Windsor.
Þessi viðburður táknar enda-
lok 30 ára opinberrar brezkr-
ar andúðar á hertogafrúnni.
Loks verður hún viðurkennd,
og ef til vill fær hún titilinn
,,konungleg hátign.” Það hefur
alltaf verið ósk hertogans. —
Hihgað til hefur hún aðeins
verið ávörpuð sem „hennar há-
tign” eins og allar aðrar ó-
konungbornar, brezkar hertoga-
ynjur.
Fyrirgefningin kemur hans
vegna. Hann er nú orðinn 72
ára, og líf hans virðist orðið
dapurlegt. Sjón hans fer sí-
versnandi, þrátt fyrir margar
skurðaðgerðir. Hann þolir alls
ekki sterkt Ijós, — það veldur
honum líkamlegri kvöl. Kona
hans verður að leiða hann,
hvert, sem þau fara.
Elízabet drottning og her-
togaynjan, sem nú er 70 ára,
hafa oft hitzt. í endurminn-
ingum sínum hefur hertoga-
frúin sagt frá fyrstu kynnum
þeirra. Þá var Elízabet 10 ára,
og það fór strax vel á' með
þeim. Þær hittust síðast fyrir
Frh. á 15. síðu.
Hertogaynjan leiðir hálfblindan eiginmann sinn u m borð í skipið, sem flytur þau heim til Englands.
I