Alþýðublaðið - 06.06.1967, Side 1

Alþýðublaðið - 06.06.1967, Side 1
Þriðjudagur B. júní 1987 48. árg, 131, tbl, -- VERÐ 7 KR, Styrjjöld hófst í gærmorgun mllli Israels og Arabaríkjanna. Bardagar hófust á landamærum Israels og Egyptalands, að því er bezt er vítaó, en önnur Arabaríki gengu þegar til líðs viö Egypta. í Jerúsalem hafa harðir bardagar átt sér stað miili israelsmanna og Jórdaníumanna. Á Gaza-svæðinu hafa israelsmenn umkringt hersveitir Egypta og náð borginni Khan Younis á sitt vald, og sækja fram tH Ghaza. Tel Aviv, — Kairó. (ntb-reuter). 5. júní. í birtingu í morgun hófst styrj- öld milli ísraels og Arabaríkj- anna fyrir botni Miðjarðarhafs. Hvor aðilinn kennir öðrum um upptökin. Levi Eshkol, forsætis- ráðherra, skoraði á allar friðelsk- andi þjóðir að sitja ekki aðgerða- lausar héldur senda ísraelsmönn- um hjá’lp. A því er Kairóútvarpið sagði í morgun hófst' styrjöldin með loft árásum ísraelsmanna á Kairó. — Tilkynnt var i útvarpinu, að á landið hefði veriö ráðist og eg- ypzkir hermenn hefðu snúizt til varnar. Egyptar báðu Jórdana og Sýrlendinga að hrinda árás ísra- elsmanna og meðan loftorrusta var háð í Kairó var tilkynnt, að sýrlenzkar, jórdanskar, líbanískar og ísraelskar fluglhersveitir ættu í bardögum við ísraelsmenn ann- ars staðar í landssvæði Araba. — Síðar í dag tilkynnti Kairóútvarp ið, að ísraelsmenn hefðu gert á- rásir á hersveitir Egypta á Sínaí skaga, en þeim hefði ekki tekizt að brjóta vörn Egypta á bak aft- ur. Egyptar halda því fram, að ísraelsmenn hafi orðið fyrir miklu tjóni í bardögum. M. a. hafi þeir misst meiri hluta þeirra 30 skriðdreka, sem beitt var í bardögum á' Gazasvæðinu. Kairó útvarpið segir, að ísraelsmenn hafi neyðzt til að hörfa eftir harða bardaga. Egyptar segja, að ísraelskar flugvélar hafi ráðizt á flugvelli í Kairó og á Súezsvæð- inu. í útvarpsfrétt frá Kairó seg- ir, að 86 ísraelskar flugvélar hafi verið skotnar niður og 14 ísra- elskir flugmenn verið teknir til fanga við skurðinn. Egyptar og Sýrlendingar halda þvi fram, að þeir hafi samanlagt eyðilagt yfir 150 ísraelskar flugvélar. Egypt- ar segjast' hafa misst tvær flug- vélar, en flugmönnunum. hafi tek- izt að koma sér undan með því að kasta sér niður í fallhlífum. Egypzkar heimildir halda því fram, að amerískt olíuskip hafi reynt að loka Súezskurðinum, og að ísraelskar flugvélar hafi ætl- að að ráðast gegn frönsku skipi, sem var á leið í gegnum skurð- inn. Opinberir aðilar í Washing- ton og París hafa tilkynnt, að þeir hafi ekki fengið neinar stað- festingar á þessum fullyrðingum Egypta og bendir ekkert til þess að þær eigi við rök að styðjast. Fólk í Kairó fékk fyrsta hug- boð um það, sem í aðsigi var, þegar það var á leið í vinnu í morgun og heyrði í loftvarna- byssunum. Það hélt í fyrstu að þetta væri markleysa, en þegar það heyrði bergmáiið af vélbyss- unum, skildi það, að liér var al- vara á ferðum. í dag sögðu áreiðanlegar heim- ildir, að flugvöllurinn væri lok- aður, en ekki fékkst nein opin- ber staðfesting á því. Það var spennt ástand i Ka- iró í dag, segja blaðamenn frá Vesturlöndum, sem eru þar. — Fólk gekk um götumar með út- varp í höndum og uiigir menh hrópuðu slagorð svo sem: „Við skulum drepa ísrael” — og „Við skulum vinna aftur landið okk- ar.” Arabalöndin létu ekki standa á aðstoð sinni við Egyptaland. Sýrlendingar tilkynntu, að sýr- lenzkar flugvélar hefðu ráðizt á ísraelsk þorp, og seinna sögðu Sýrlendingar, að þeir hef'ðu varpað sprengjum á olíustöð í Framhald á 15. síðu. Meira um ófriðinn bls. 2 o ALÞÝÐUFLOKKURINN VILL Um næstu aldamót verða íslendingar orðnir 400.000. Augljóst er, að koma þarf traustum fótum undir nýjar atvinnu- greinar til þess að tryggjiafjölgandilands búum örugga atvinnu. Alþýðuflokkurinn telur, 'að stórefla eigi íslenzkan iðnað í þessu skyni. Nokkur tollyernd er íslenzkum iðnaði nauösyn- leg og eðlileg. En innflutningshöft og háir toll- múrar eru iðnaðinum skaðleg til lengdar, eins og öllum öðrunt atvinnugreinum. Hins vegar þarf að aðstoða iðnaðinn við að laga sig að breyttnm aS- stæðum, það þarf að styðja nýja iðnðarframleiðslu til útflutnings og hjálpa iðnfyrirtækjum til mark- aðskönnunar erlendis. í þessu skyni telur Alþýðuflokkurinn a3 koma eigi á fót aölögunarsjóði fyrir iðnaSinn. Við fslendingar eigum mlklar auðlindir, þar sem er orkan í fossum okkar og hverum. Mikil fram- tíð er í ýmis konar léttri málmvinnslu, þar sem nota þarf mikla raforku. Álbræðsla er þegar ákveð- in. T.d. sjóefnaverksmiðja er athugunarverð. Uppbygging nýrra iðngreina er eitt mikiívægasta verkefnið í íslenzku atvinnulífi. Alþýðublaðið viH nefna nokkur verkefni á þessu sviði: 1) Salt- og kalívinnsla með notkun gufu á F.eykja- nestá. 2) Ullarvinnsla, sem íslenzkir og norskir verkfræS- ingar hafa verið að athuga. 3) Sútunarverksmiðja eða verksmiðjur, þar sem allar íslenzkar gærur yrðu sútaðar til útflutn- ings. 4) Þaravinnsla á Reykhólum. 5) Stálsklnasmíði og uppbygging dráttarbraaita. Þetta er raunhæf stefna í málefnum iðnaðarins. Þannig er stefna Alþýðuflokksins.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.