Alþýðublaðið - 10.06.1967, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 10.06.1967, Blaðsíða 1
Laugardagur 10. júní 1967 — 48. árg. 195. tbl. — VERÐ 7 KR. Aðeins 267 af- kvæði trygg^u kosningu hans síðasi í ÞESSUM þingkosningum er að ýmsu leyti um meiri óvissu að ræða en áður vegna þess, 'að nú eru í Reykjavík sex framboðslistar í kjöri. Þess vegna hvílir meiri ábyrgð á hverjum kjósenda. Atkvæði hvers og eins getur valdið óvæntum úrslitum. I síðustu Alþingiskosningum Maut Sjálfstæðisflokkurinn 6 þingsæti í Reykja- vík, en hinir þingflokkarnir 2 þingsæti hver. Alþýðuflokkurinn hlaut þá fæst at- kvæði og fékk 12. og síðasta þingmanninn kjörinn, Eggert G. Þorsteinsson- Ef Alþýðuflokkurinn hefði fengið 267 atkvæðum færra, hefði Eggert ekki náð kosn ingu. Enginn vafi er á því, að framboð Hannibals Valdimarssonar breytir niðurstöð- um frá því, sem síðast var. Hann vinnur eflaust talsvert fylgi af Alþýðubandalag inu og Framsóknarflokknum. Fraonboð hans skapar almenna óvissu um úrslit- in, auk þess sem enginn getur vitað, með vissu hverjum akvæði hansi raunveru- lega koma að gagni. Hann sjálfur leggur þó áherzlu á að þau verði reiknuð Al- þýðubaaidalaginu, þrátt fyrir skammir hans um þá, sem Alþýðubandalaginu ráða, og kommúnistamir þar vilja þiggja þau, þrátt fyrir fyrirlitningu sína á Hannibal og kjósendum hans. Þessi óvissa má ekki skapa neina hættu fyrir Eggert G. Þorsteinsson. Hann verður að halda þingsæti sínu. En til þess að svo geti orðið, verða allir stuðnings- menn Alþýðuflokksins að leggja sig alla fram. Nú getur oltið á einu afkvæði ATKVÆÐI ÞITT GETUR KOMIÐ I VEG FYRIR UPPLAUSN OG ÁBY RGÐARLEYSI ALÞYÐym£>MgfÍINN TREYSTIR ÞER m : ÞÉR ER ÓHÆTT AÐ TREYSTA HONUM

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.