Alþýðublaðið - 16.06.1967, Side 1

Alþýðublaðið - 16.06.1967, Side 1
Föstudagur 16. júní 1967 — 48. árg. 200. tbl. --- VERÐ 7 KR ive SUNNAN kaldi og kvika var á síldarmiðunum s. 1. sólarhring og veiðiveður því fremur óhagstætt. Veiðisvæðið var um 70 gráður norður breiddar og 4 gráður vest- ur lengdar. Tuttugu skip tilkynntu síldarieitinni á Raufarhöfn og Daiatanga um veiði og var afla- ÞETTA unga fólk er skiptinem endur frá Þýzkal. og Banda ríkjunum, sem hafa stundað nám í Menntaskólanum í Rvík í vetur. Myndin var tekin við skólauppsögn í gser, en þar afhenti rektor skólans þeim bókagjöf til minningar um dvölina hér. Frá skólauppsögn- inni er annars sagt. á bls. 2 og 3 í blaðinu í dag. hæsta skipið Ásgeir RE með 290 lestir, en heildaraflamagn þeirra skipa, sem tilkynntu um veiði var 3.4X5 lestir. Þessi skip tilkynntu aflamagn: ísleifur IV VE .. . Lestir. 140 Héðinn ÞH 130 Sigurbjörg CF .. . 200 Ásgeir RE 290 Gullberg NS . . . .... 170 Bára SU .. .. 100 Jörundur III RE . 200 Framhald á 14 siou. Líkur eru taldar á því, að Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna verði kallað saman til aukafundar um lielgina. U Thant forstjóri samtakanna skýrði frá því í New York í gær, að 22 ríki hefðu gefið jákvætt svar við fyrirspurn hans um það, hvort kalla skuli saman aukafund, og er talið að þar með sé tryggt að tillagan um aukafund hljóti nægilegan stuðning. Meðal þeirra sem hafa þegar falllzt á aukafund eru Bretar, en tillagan um hann er komin' frá Sovétríkjun uin, og verkefni aukafundarins verður auðvitað að fjalla um ástand ið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. 62 aðildarríki S. þ. þurfa að fallast á tillögu um aukafund til jþess að skylt sé að verða við kröf unni um hann, en þegar sá fjöldi ihefur fengizt, er hægt að boða fundinn með sólarhrings fyrir- vara. Líklegt var talið í gær, að til fundarins yrði X>o3að um helg ina, og ætti hann að vera búinn að afgreiða formsatriði og far- inn að fjalla um málið sjálft á mánudag. Ekki var vitað í gær, hverjir verða fulltrúar stórveldanna á 600 þús. hermenn þarf í Vietnam Saigon 15. júní (NTB-Reuter) 1>AÐ verðrar að hafa 600.000 amr eríska hermenn í Suður-Víetnam, ef Suður-Víetnamar eiga að hafa í fullu tré við hermenn þjóðfrels ishreyfingarinnar og Norður-Víet namhermenn í Suður-Víetnam, að Framhald á 14. síðu. væntanlegum aukafundi, en talið var líklegt, að Kosygin forsætis- ráðherra Sovétríkjanna Ihéldi til New York til að sitja fundinn. Verði af komu hans, mun að öll- um líkindum fara fram fundur æðstu manna stórveldanna í sam bandi við aukafundinn, því að þá er búizt við að forsetamir John- son, de Gaulle og Wilson forsæt- isráðherra muni sækja fundinn. Tilkynnt var í London í gær, að Bretar hygðust birta leynilegar upplýsingar úr skjölum allra flug valla og flugvélamóðurskipa sinna í nágrenni Gaza, Alexandríu og Kaíró, til þess að sanna, að á- sakanir Egypta væru rangar um að Bretar hefðu lagt ísraelsmönn um lið í styrjöldinni. Denis Healy hermálaráðherra tilkynnti þetta á þingfundi í gær, en hann tók fram að slík gögn væru yfirleitt ekki birt af öryggisástæðum. Sovétmenn ásökuðu ísraels- menn í gær fyrir að hafa tekið' arabíska stríðsfanga af lífi og fyrir að hafa afréttað opinberlega konur og böm í herteknu löndun- um. Þessu er haldið fram í for- ystugrein í Isvestía, málgagni So- vétstjórnarinnar, og þar segir, að ísraelsmenn hafi gert sig seka um mesta ódæði sem átt hafi sér stað í Mið-Austurlöndum og sé þar engu öðm til að jafna en að- ferðum þýzku nazistanna á styrj- aldarárunum síðari. Prestastefna ámánudðoinn HIN árlega prestastefna verður haldin hér í Reykjavík dagana 19. til 21. júní þ. m. — Hún hefst á mánudaginn 19. júní með messu í Dómkirkjunni kl. 10,30. Dr. Helge Brattgárd, dómprófastur í Linköping prédiikar, en altaris- þjónustu annast séra Sigmar Torfason, prófastur á Skeggja- stöðum og séra Ámi Pálsson í Söð ulsholti. KI. 14 sama dag verður Prestastefnan sett í kapellu Há- skóians og flytur þá toiskupinn á- varp og yfirlitsskýrslu. — Kl. 15 þann dag verða prestskonur í boði biskupsfrúarinnar á Tómasarhaga Framhald á 14. siðu. Kosningafagnaður á Vesturlandi A-USTINN í Vesturlandskjördæmi heldur kosningafagnað í fé- lagsheimilinu Arnarstapa á Mýrum í kvöld kl. 9. Benedikt Gröndai alþingismaður flytur ávarp. Gu3mundur Jónsson óperusöngvari syngur einsöng. Ekon og Eyþór leika og syngja fyrir dansi. Veitingar. ' Sætaferðir frá Akranesi, Stykkishólmi Ólafsvík og Hellissandi. Akurnesingar, athugið að það er aðeins klukkutíma akstur frá Akranesi til Arnarstapa. Allt stuðningsfólk A-listans í Vesturlandskjördæmi er vel- komið, meðan húsrúm Ieyfir.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.