Alþýðublaðið - 20.06.1967, Side 10
kmfstióTT Örn Eidssoní
ÍBA lék vel á köflum
- og sigraði KR 3:7
,,B’Uí>LREYNT í fjórða sinn“ má
segja eftir leik Akureyringa og
KR á Laugardalsvellinum á sunnu
daginn. Þrívegis áður en sá leikur
fór fram, máttu Akureyringar láta
í niinni pokann í viðskiptum sín-
um við mótherjana, þó með litl-
um mun. En í fjórðu lotu, skipti
sköpum. Þá yfirgáfu Akureyring-
arnir leikvanginn eftir harða bar-
áttu að vísu, en sem ótvíræðir sig
urvegarar. Og þeir réðust ekki
fram til atlögu, þar sem garður-
inn var lægstur. Þeir öttu kappi
við jafnsterkasta lið fyrstu deild-
arinnar, KR. Að vísu höfðu Akur
eyringar „allt að vinna“ eftir
þrjá undangengna ósigra, og því
lsannarle(ga kominn tími til að
„duga eða drepast". En þrátt fyr-
ir það, mun víst fáum hafa komið
Staöan í
7. deild
í 1. deild er nó þessi;
Valur
Fram
KR
Keflavík
Akureyrj
Akranes
til hugar, að úrslitin yrðu þau,
sem raun varð á, og það næsta
réttmæt úrslit, eftir öllum gangi
leiksins. KR-liðið í heild dugði
hvergi nærri eins vel og undan-
farið, þó einstaka leikmenn þess
berðust af miklum dugnaði. Þá
skorti samræmdar aðgerðir í leik
framlínunnar og þá snerpu, sem
þar hefur verið. Má í því sam-
bandi nefna báða útherjana, eink
um þó Hörð Markan, sem jafnan
'hefur verið kappsfullur, viðbragðs
fljótur og fylginn sér, svo af hef
ur borið. Baldvin Baldvinsson,
miðherji, sem fyrst og fremst Ihef
ur verið ógnvaldur varna mótherj
anna, vegna viðbragðsflýtis og
spretthörku, — en ekki að sama
skapi knattleikinn, kom í þessum
leik lítið við sögu. Hann átti t.
d. aldrei skot á markið, sem orð
var á gerandi, og er slíkt óvenju-
legt. Það voru einkum þrír menn
í liði KR, sem báru af í þessum
leik. Ellert Schram, sem sýndi og
sannaði enn einu sinni, með yfir-
veguðum leik sínum og réttum
sendingum, að hann er einn okk-
ar bezti knattspymumaður í dag.
Eyleifur Hafsteinsson, sem vann
af miklum dugnaði frá upphafi
til enda, og svo Guðmundur Pét-
ursson, markvörður, sem með
leikni sinni, lipurð og réttum stað
setningum bjargaði liðinu frá
frekari ósigri en orðið var.
yfir, áður en KR tókst að skora.
Þannig að leikurinn stóð 2:1 í
hléi. Það var Skúli Ágústsson,
sem skoraði bæði mörkin. Það
fyrra er um 9 mín. voru af leik,
eftir snögga sókn og fyrirsend-
ingu Steingríms frá endamörkum.
Skúli sendi svo boltann inn, án
þess að hinn snjalli markvörður
KR fengi rönd við reist. Og 20
mínútum síðar var það enn Skúli,
sem ógnaði markinu og skoraði.
Upphafs þess marks var að leita
i rangri sendingu Bjarna Felix-
sonar, er knötturinn hafnaði hjá
mótherja, sem svo skapaði mögu-
leika fyrir sóknarlotu, sem lauk
með skoti Skúla og marki.
Rétt fyrir leikhé jöfnuðu svo
KR-ingar nokkuð metin, er Gunn
ar Felixson skoraði, úr sendingu,
sem Baldvin renndi til hans, eftir
að vörninni mistókst að hreinsa,
en boltinn hrökk til Baldvins.
Framhald á 13. síðu.
Guðmundur Pétursson ver naumlega í horn.
Valur sigraði Keflavík
2:0 í hörkuleik
! Akureyringar komust tvö mörk
Hér er sótt hart að vörn Akureyringa.
10 20. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Á sunnudagskvöldið kræktu
Valsmenn sér í tvö dýrmæt stig
í baráttunnni um íslandsmeistara
titilinn, er þeir sigruðu Kefla-
vík með tveimur mörkum gegn
engu suður á Njarðvíkurvelli.
Þrátt fyrir blautan og hálan völl
inn sýndu bæði liðin mjög þokka
legan leik og víst er um það að
hann var allspennandi og með
spaugilegum atvikum. Valsmenn
14 ára gömul
stúlka bætti met
Hrafnhildar;
SIGRÚN Siggeirsdóttir, Ár-
manni setti nýtt íslandsmet í
100 m. baksundi í fyrrakvöld,
hún synti á 1:16,1 mín. og
bættl met Hrafnhildar Guð-
mundsdóttur, ÍR um 1/10 úr
sek. Mótið fór fram í Sundlaug
Vesturbæjar. Sigrún er aðeins
14 ára gömul og því mjög efni-
leg. Millitími hennar á 50 m.
var 36,8 sek. og er nýtt teipna-
met.
áttu mun meira í leiknum og var
sigur þeii-ra sanngjarn, en með
honum er Valur í fyrsta sæti í
deildinni og er Fram eina félagið,
sem á möguleika að ná Val eftir
fjórar umferðir.
í fyrri hálfleik áttu Valsmenn
mörg tækifæri en tókst aðeins að
nýta eitt þeirra og það undir lok
hálfleiksins. Kom markið úr horn
spyrnu er Reynir skaUaði laglega
í netið. Áður í hálfleiknum höfðu
Keflvíkingar bjargað í tvígang
á línu. í annað skiptið fékk Magn
ús Torfason knöttinn af miklu
afli í andlitið og varð að yfirgefa
völlinn. í seinni hálfleik jafnaðist
leikurinn að mun og sóttu nú
Keflvíkingar allfast’ á köflum.
Hættulegasta tækifæri þeirra
kom er Magnús Haraldsson bak-
vörður óð upp völlinn og var orð-
inn óvaldaður en Gunnlaugi tókst
að loka markinu, en Einar Gunn-
arsson fékk knöttinn í góðri að-
stöðu en skot hans lenti í þverslá.
En Valsmenn áttu líka sín tæki-
færi. Hermann átti gott skot í
gtöng og þegar hálftími var af
hálfleiknum skeði óvænt atvik.
Hermann skaut háum bolta fyrir
markið og virtist hann fara langt
framhjá og ætlaði Kjartan mark-
vörður að fara að sækja knött-
inn aftur fyrir mark þegar knött-
urinn var aUt í einu fokinn í netið
öilum til mikillar furðu Þarna
voi'u Valsmenn svo saxmarléga
heppnir. Fleiri urðu mörkin ekki.
Beztu menn Vals voru Gunn-
laugur í markinu, Hermann og
Ingvar. Beztu menn Í.B.K. voru
Högni og Magús Haraldsson. Dóm
ari var Steinn Guðmundsson.
Unglingameistaramót' íslands,
sem halda átti dagana 8. og 9.
júlí á Akureyri, mun verða hald-
ið 1. og 2. júlí á’ sama stað.
Einnig mun Drengjameistara-
mót íslands sem halda átti 1. og
2. júlí flytjast til og verða hald-
ið dagana 8. og .9. júlí á í-
þróttaleikvanginum í Laugar-
dal.
Tvö íslandsmet
Á sundmeistaramóti íslands,
sem hófst í Laugardal í gærkvöldi
voru sett tvö íslandsmet. Guð-
mundur Þ. Harðarson, Ægi,
synti 1500 m skriðsund á 19:09,9
mínútum, sem er 3,7 sek. betra
en met Davíðs Valgarðssonar.
Hrafnhildur Kristjánsdóttir, Ár-
manni, setti met í 800 m skrið-
sundi kvenna, synti á 25,7 mín.
Nánar á morgun.