Alþýðublaðið - 24.06.1967, Síða 8
AD SIGRASI
11
NA-samtökin hafa náð athyglisverð
„Ég þjáðist af sjúklegu þung-
lyndi. Ég gat ekki notið lífsins,
því að ég var alltaf miður mín.
En nú er ég eins og annar mað-
ur. Ég hef ekki fundið til von-
leysis í langan tíma, og ég er í
fyrsta sinn á ævinni raunveru-
lega hamingjusamur. Ég er full-
ur af lífskrafti og lífsgleði, og
það er dásamleg tilfinning, dá-
samlegri en ég get lýst með
nokkrum orðum.”
Sá sem talar heitir Grover.
Það er skírnarnafnið hans, en
ættarnafni sínu heldur hann
leyndu samkvæmt reglum félags-
skapar síns. Hann er stofnandi
NA eða Neurotics Anonymous,
félags sem hefur AA-samtökin
(Alcoholics Anonymous) að fyr-
irmynd.
Grover er fyrrverandi tauga-
sjúklingur sem fengið hefur
fullan bata með því að fylgja
reglum þeim er AA-menn hafa
í heiðri. Og það er hugsjón
hans að komast' í samband við
aðra taugasjúklinga eða tauga-
veiklað og óhamingjusamt fólk
og hjálpa því til að öðlast eða
endurheimta trú á lífið.
Hann átti erfiða bernsku og
uppvaxtarár og þjáðist af asma
er stafaði af sálrænum orsökum.
Hann gekk til geðlæknis tvisv-
ar í viku um árabil án þess að
hljóta lækningu. Fimm sinnum
reyndi hann að fremja sjálfs-
morð. Loks fór hann að drekka.
En það varð honum til gæfu á
þann hátt, að sem drykkjusjúkl-
ingur komst hann í samband við
FORLÖGIN EÐA NAFNBREYTINGIN?
Gerry Dorsey voru aSBar dyr lokaðar, en Esgeibert Hurperdinck
hreppti hnossið
3
MAÐUR skyldi ekki ætla^ . að.
nafnið Engelbert Humperdinck
væri heppilegt fyrir poppsöngv-
ara á uppleið. Myndi e.kki hver
vitiborinn umboðsmaður byrja
á að breyta því í eitthvað stutt
og þægilegt, eitthvað er hægt er
að bera fram og muna? Eins og
til dæmis . . Gerry Dorsey?
Ónei. Engelbert Humperdinck
heitir nefnilega réttu nafni
Gerry Dorsey. Og undir því
nafni ætlaði hann að syngja og
verða frægur. En það gekk ekki.
Aumingja Gerry komst aldrei
langt. Hann vann keppni og
fékk fyrir náð að syngja inn á
plötur sem vöktu enga athygli,
svo komst hann að stöku sinn-
um á skemmtistöðum. En þá
veiktist hann og varð að liggja
á spítala í nokkra mánuði. Þar
með var draumurinn á enda.
Þegar hann ætlaði að byrja aft-
ur að syngja, var hann gersam-
lega gleymdur og fékk engin
frekari tækifæri.
Hann komst að þeirri niður-
stöðu, að sér væri eins gott að
gefast upp, og hann giftist kær-
ustunni sinni, og þau eignuðust
son og dóttur. En Patricia, kon-
an hans, vildi endilega, að hann
reyndi enn einu sinni, og vinur
hans og umboðsmaður, Gordon
Mills, fékk þessa snilldarhug-
mynd að breyta nafninu í hvorki
meira né minna en Engelbert
Humperdinck. Og allt í einu
virtust allir vegir færir. Hann
fékk ágætan samning við gamla
plötufélagið sitt sem hafði ekki
hugmynd um, að þetta væri
Gerry Dorsey. Og plöturnar
hans vöktu feiknalega hrifningu,
sú þriðja í röðinni var efst á vin-
sældalistanum í Bretlandi vikum
saman, og nú streyma tilboðin
að honum úr öllum áttum.
Samt er Gerry eða Engelbert
alls ekki eins og nýtízku popp-
söngvarar eru taldir eiga að
vera. Hann er hár og sólbrúnn
og snyrtilegur, laglegur og vel
greiddur, auk þess kvæntur og
tveggja barna faðir. En það virð-
ist ekki skipta neinu máli. Vin-
sældir hans eru með fádæmum.
Hann fæddist í Indlandi og
ólst upp í Englandi með sjö
systrum sínum og tveimur
bræðrum. Hann ákvað að verða
söngvari strax og hann hætti í
skóla. En það tök nokkuð lang-
an tíma að ná því marki.
Hann segist vera forlagatrúar.
„Ég hef hugsað og brotið heil-
ann um þetta”, segir hann, ,,og
ég held, að það hljóti að hafa
verið fyrirfram ákveðið allt sam-
an. Ég átti bara ekki að vinna
sigur of snemma. Og allt í einu
snerust örlögin mér í vil.”
AA-samtökin og læknaðist ekki
aðeins af áfengisnautn sinni,
heldur einnig taugaveikluninni.
Þetta varð til þess, að hann
réðst í að stofna áþekk samtök
til hjálpar taugasjúklingum eða
fólki sem þjáist af taugatrufl-
unum, tilfinningalegu jafnvægis-
leysi, sjálfsmeðaumkun, sjálfs-
hatri eða sjálfseyðingarhvöt.
„Mér fannst aðferðir AA-
manna alls ekki þurfa að ein-
skorðast við drykkjusjúklinga,”
segir hann. „Sjálfur hafði ég
þjáðst af taugabilun eða tauga-
truflunum löngu áður en ég fór
að bragða áfengi, og AA-aðferð-
irnar læknuðu einmitt þessa
undirrót drykkjuhneig'ðarinnar
sem síðar gerði vart við sig hjá
mér. Drykkjusýkin var aðeins
sjúkdómseinkenni og hvarf af
sjálfu sér þegar taugahnúturinn
var leystur. Og úr því að AA-
aðferðirnar gátu læknað tauga-
truflanir mínar, ættu þær að
verka jafnt á taugasjúklinga
sem ekki drekka.”
Ethel var fyrsti taugasjúkling-
urinn sem Grover komst í sam-
band við. Hún drakk ekki á-
fengi, en hún þjáðist af sífelld-
um ótta, áhyggjum og þung-
lyndi og fannst hún ekki geta
ráðið neitt við líf sitt. „Ég er
alveg örvilnuð,” sagði hún Grov-
er. „Ég er að hugsa um að fara
frá manninum mínum, leggja á
flótta eða fremja sjálfsmorð.
Allt fer í taugarnar á mér —
maðurinn minn, starfið sem ég
gegni, bókstaflega allt. Ég hef
3 24. júní 1967
ALÞYÐUBLAÐIÐ