Alþýðublaðið - 24.06.1967, Qupperneq 13
KÓBftM&G-SBt.'Ó,
íslenzkur texti.
OSS 117 í Bahia
Ný ofsaspennandi OSS 117 mynd
í litum og Cinemascope segir
frá baráttu við harðsvíraða upp-
reisnarmenn í Brasilíu.
FREDERIK STAFFORD.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BQnnuð innan 16 ára.
Á 7. degi
Víðfræg og snilldarvel gerð am-
erísk stórmynd í lituai.
WILLIAM HOLDEN.
SUSANNAH YQPtK.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 9 • T rp
Tom Jones
Sýnd kl. 5.
Allra síðasta sinn.
ÓTTAR YNGVASON, hd!.
BLÖNDUHLÍÐ 1, S(MI 21296
VIÐTALST. KL. 4—6
MALFtUTNINGUR LÖGFRÆÐISTÖR9
BÆNDUR
Nú er rétti tíminn til að skrá
vélar og tæki sem á að selja.
TRAKTORA
MÚGAVÉLAR
BLÁSARA
SLÁTTUVÉLAR
ÁMOKSTURSTÆKI"
ViS seljum tækin.
Bíla- og
Bdv^asalan
v/MBtlafcrg, súni 23136.
Látið stilla í tíma.
Hjólastillingar
Mótorstillingar
Ljósastillingar
Fljót og ömgg þjón-
usta.
BÍLASKOÐUN &
STILLING
Skúlagötu 32
Sími 13-100.
— Mamma, sjáðu kastalann!
Ég byggði hann til að standast
árás óvinanná. Er hann ekki
fínn? Hún horfði á bygginguna
augum listamanns og klappaði
á sandinn.
— Alexie er dugleg, vældi
móðir hennar.
Carló brosti til litlu stúlk-
unnar brosi, sem ítalir nota
handa litlum börnum og skipti
svo yfir í annað bros til stóru
stúlkunnar við hlið hans.
Mér fannst leitt að rjúfa
þennan frið, en ég fór og bað
um glas handa frúnni og not-
færði mér um leið mína lélegu
og nýlærðu ítölsku.
— Drykkirnar hafa beðið í 10
mínútur, sagði hann hranalega.
Honum gekk ekki alltof vel með
dömuna, sem virtist hafa meiri
áhuga fyrir dóttur sinni en hon-
um.
— Af hverju komstu þá ekki
með þá? spurði ég.
— H ú n sagði mér, að bíða
eftir þér. Hann talaði eins og
einn þjónn við annan. Ég ákvað
að leggja ekki strax til orrustu
heldur tók upp bakkann. Hann
var sérlega þungur, hlaðinn niu
glösum og stórri könnu, sem ég
vissi að í voru kokkteilar fyrir
sítrónusneiðar og ísmola og
langar skeiðar. Auk þess var
hrúga af þessum bragðslausu||
kexkökum, sem fólk borðar á
Ítalíu.
— Sjúss! kallaði Patricía og
virtist undrandi. — Þekkja
ekki allir Julie? Julie hittu
fólkið!
Hún baðaði út öllum öngum
en það merkti: — Nú þekkja all-
ir alla og geta séð um sig —
og leit aftur á manninn sem
stóð við hlið hennar. Hann var
Terense de Witt, stjórnandi síð-
ustu myndar James og þeirrar
bezt heppnuðu. Maður um fimm
tugt, laglegur, gyðinglegur. —
Hvítt hár hans var burstað í tvo
sveipi sín hvorum megin við
ennið, þannig að maður hafði
það á tilfinningunni að hann
væri að hefja sig til flugs. Hann
var með fæðingarblett við vin-
stra augað eins og átjándu ald-
ar fegurðarblett, undarlegt
merki á andliti sem annars var
hugsandi, gáfulegt og yfirleitt
dálítið leitt. En þegar hann hló
komu glaðhlakkalegar hrukkur
við augun og ég skildi hvers
vegna sagt var að hann væri
göldróttur. Allir virtu Terense
de Witt. Ég fann alltaf hvernig
andrúmsloft'ið breyttist, þegar
hann var kominn i herbergið og
það löngu áður en ég sá hann.
Trish sat við hlið hans í hæg-
indastól og hlustaði á hvert orð,
sem fram gekk af hans munni.
Trish sat við hlið hans í legu-
stól og hlustaði á hvert orð
hans. Hún var kyrrlát og hljóð.
Undir næstu sólhlíf lá Díana
Edwards sem var glæsileg leilc-
kona, rauðhærð og með hvíta
húð, sem hún gætti vandlega að
sólbrynni ekki. Hún var meyjar-
leg og frekknótt og dádýri lík.
„Ef einhver hræðir mig, hleyp
ég á brott“. Hún neitaði hlægj-
andi kokkteilnum, sem ég bauð
henni og bað um appelsínusafa.
Trish var hrifin af Díönu pg
talaði alltaf um hana ,!
24. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐK) 13
.tilvonandi leikkonu” og mér
fannst hún óþolandi löngu áður
en ég kynntist henni, því hrós
Trish var heldur leiðigjarnt. Nú
var ég ekki hrifin af dádýra-
látbragði hennar. Ég horfði lengi
í grá augu hennar og ákvað
að vera lengi að sækja appels-
ínusafann.
Tveir karlmenn lágu við hlið
hennar. Einn var ljóshært
vöðvafjall úr kvikmyndum Jam-
es, Rex Baylay. Hann lék
drengjalegan vin hetjunnar,
unga rómverska piltinn, sem
bjargaði honum, sá, sem féll
síðast og varði hetjuna til síð-
ustu stundar.
Patricia sagði, að Rex ætti
skilið „að sjá stafina sína skrif-
aða með ljósum.” Hann var ekta
Ameríkani, beinaber, bjarteygð-
ur og alltof einfaldur. Félagi
hans, sem líktist mest' lagleg-
um hvolpi var dökkhærður
með stór, grá augu. Rex og Dí-
ana átu allt, sem hann sagði.
Þau sátu þarna og tilbáðu hann.
Hann var kvikmyndahöfundur
og skáld og orð lá á að hann
væri svo stórkostlegur, að
leikarar slæjust um að vera í
kvikmyndum hans.
Þá er eftir að telja þá, sem
síðast fengu í glasið sitt. Það
var feitlaginn maður í kryppl-
uðum hvítum fötum sem át allt
sem enginn vildi eta og mið-
aldra kona, sem sagði sífellt:
„Nei, nei!” við félaga sinn og
kom mér svo til að skella upp
úr með því að segja skyndilega:
„Reyndu nú að vera Englend-
ingur, Georg!”
Þegar kokkteillinn var upp-
urinn — ég drakk hann ekki —
fór ég á brott. Hlutverk mitt
var heldur litið breytt frá' boð-
úm Midge, ég sótti enn ís og
glös. Hafið var slétt og kyrr-
látt og öldurnar lágar og ég
fór bak við stóra steina til að
komast í sundbolinn. Eftir heit-
an vindinn og bakaða ströndina
var gott að .komast í goluna.
— Svona nú, áfram, áfram,
var kallað. — Ég heiti Rex Bay-
ley. Farðu ekki að fela þig, —
þetta var góður kokkteill! Áfram
með þig! Hann stökk niður að
sjónum eins og flugfiskur. Fyrst
glotti hann við hlið mér, svo
þaut hann gegnum vatnið eins
og hákarl. Hann kom jafn fljótt
til baka og hristi af sér vatnið.
— Þér getið svei mér synt,
sagði ég hrifin.
— Það þarf æfingu til. Við
syndum í næstu mynd eins og
þér vitið. Hann brosti og tenn-
ur hans voru jafn fallegar og
tennur James, svo hvarf hann
undir vatnið og birtist' aftur
eins og korktappi.
Við syntum saman í tíu mín-
útur Rex Baylay og ég. Vatnið
tengdi okkur saman. Hann virt-
ist eiga heima í sjónum; hann
var fremur fiskur en drengur.
Það var fallegt að horfa á hann
og þegar ég hélt áfram að synda
eins og mér hafði verið kennt
sá ég bjart hár hans glampa
undir vatnsyfirborðinu og svo
kom hann upp og hristi af sér
dropana eins og hundur af sundi
dreginn.
— Trish veifar tii okkar.
— Þú lofaðir að kafa og
sækja rauða steininn handa
mér. Ég • var búin að stein- _
gleyma því að hann var leikari
en ekki leikfélagi minn.
— Ekki get ég beðið, þegar
frúin kallar!
Og hann synti til strandar
með löngum tökum.
Trish og hennar lið voru á
leiðinni til bílanna sem biðu
undir pálmunum. Trish kallaði
mig til sín. Vatnið draup af
mér, þegar ég gekk til hennar.
— Safnaðu öllu saman, elsk-
an og gerðu upp við Carlo. Ég
á' við reikninginn. Og komdu
ekki of seint í matinn.
Ég fór aftur upp á steinana
og fór í kjólinn yfir blautan
sundbolinn. Kjóllinn límdist
við mig. Þegar bílarnir voru
farnir, fór ég inn í veitingahús-
ið. Carlo var enn að daðra við
giftu konuna. Alexie sat á stól
í skugganum, rautt hár hennar
var vandlega greitt og hún
borðaði salat úr tómötum og ol-
ívum. Gifta konan handlék glas.
— Hvar eru glösin? spurði
Carlo óþolinmóður.
— Sæktu þau.
— Einkaritarinn gerir það
alltaf.
— Ekki þessi einkaritari,
svaraði ég.
Hann virtist undrandi.
— Þú átt glösin og ég geri
ráð fyrir að þú viljir fá' þau
aftur. Sæktu þau vinurinn og
ég skrifa upp á reikninginn. Ég
hafði séð föður minn margsinn-
is skrifa upp á reikninga.
Hann gretti sig hryllilega, en
rétti mér reikninginn og ég
slcrifaði upp á hann. Hann
hvíslaði að Alexie og giftu kon-
unni að hann kæmi bráðlega
og fór að sækja glösin.
Ég hafði losnað úr þrælkun-
inni um stund og fengið ein-
hvern til að stjana við mig. Ég
var ánægð. Sundferðin hafði
gert mér eitt skiljanlegt alveg
eins og samtalið við Carlo. Ég
saknaði ekki aðeins frelsisins
heldur lika karlmanna. í fyrsta
skipti síðan ég varð fullvaxta
átti ég engan aðdáanda.
í Manchester voru þeir marg-
ir. Ég dansaði, fór í veizlur og
á veitingahús, á kvikmyndir,
í leikhús og kyssti þá. Og allir
gullhamrarnir! Ég þarfnaðist
þeirra! Hvaða stúlka er gáfuð
og lagleg þegar enginn segir
henni frá því?
Eftir matinn fór ég inn í eld-
hús og ég var enn að hugsa um
karlmenn. Ekki um Rex Bayley,
“‘sem var afar háttprúður við
• -matarborðið eins og hann ótt-
aðist að ég kynni að leggja sér-
staka merkingu í umhyggju þá,
er hann hafði sýnt mér, heldur
um karlmenn yfirleitt og tómið,
sem þeir skildu eftir sig.
Lúcíana var að drekka kaffi
og jafna sig eftir matseldina.
Barnavagnar
SMJHI * teawtíöa.
via» k
Seadvm
Suðwr^öte 14- ®ml 2HK20.
HEILDVERZLUN
PÉTURS PÉTUTCSSWIAR
AliT "HL SMíMA