Alþýðublaðið - 29.07.1921, Page 1
G-efið tít aí AlþýðnflokkHum.
\
1921 | Föstudaginn 29. júlí.
Verð
á kolnm er kr. 120,00 tonnið heimflutt.
»------» » 110,00 — afhent við skipshlið.
á steiBolíuL » 72,00 pr. 100 kg. bezta Ijósaolía.
» --- » 70,00 » » » bezta mótorolía.
á fsykri, stey-ttuLna kr. 1,25 kílóið.
»-----höggnum » 1,40---------
Reykjavík 29. júlí 1921.
Landsverzlunin.
€nski
verkanannajiokkurinn.
Ársfundur I Brighton 1921.
Gnskir verkamenn hafa á sein
asta ári gengið í gegnum þungan
skóia. Og það er alt útlit á því,
að þeir hafi mikið lært og muni
reyna nýjar ieiðir á næstu árum,
áður óreyndar þar í landi.
Seinast í júní var ársfundur
verkamannaflokksins haldinn í
Brighton á suðurströnd Englands.
Mörg mál og merkileg voru rædd
og skal hér drepið á þau helátu,
Undanfarið hafa enskir verka
menn ekki stranglega fylgt stefnu
jafnaðarmanna, en þó hefir henni
mjög vaxið fylgi. Sérstakir flokk-
ar hafa myndast, sem tekið hafa
upp jafnaðarmannastefnuskrá fyrst
Independent Labour Party — ó
háðir verkamenn — og nú enn
ákveðnar kommúnistaflokkur
Englands. Enn hefir þó meiri
liluta verkamannanna ekki fallist
á stefnu þessara flokka, einkum
ekki hins síðarnefnda, og þegar
kommúnistar fóru fram á það á
fundunum, að flokkur þeirra fessgi
upptöku í verkamannaflokkinn, þá
var það felt með 4 milj. atkv.
gegt) 1/4 'oiij
Alimikið var rætt um alþjóða-
sambönd verkamanna, og varð
það lokum Skveðið, að reyna að
koma á samvinnu með miðflokk-
um jafnaðarmanna og Öðru Iut-
ernationale. í því skyni var sam-
þykt að boða jafnaðarmenn frá
ýrusum iöndum á fund í London
í haust, tii þess að ræða um
stofnun alþjóðabandalags verka-
msnoa, er sem flestir gætu að-
hyist.
Afar harðar árásir voru gerðar
á ensku stjórnina fyrir dugleysi
hennar og axarsköft í afskiftum
hennar af atvinnuleysinu og at-
vinnulífi Englands yfir höfuð —
Kendi fuudurinn henni fremur öllu
öðru um hungur það er nú vofir
yfir verkalýðnum í Englandi. Þá
tók hana ekki heldur milt á fram-
komu hennar i Irlandsraálunum.
Hrein fordæming var iátin f Ijósi
yfir framferði hennar og enska
hersins gagnvart írum. Áskorun
var samþykt þess efnis, að heripn
yrði kallaður heim frá írlandt, að
ábyrgðin á innanlandsfriðnum yrðt
lögð á herðar staðarvaldanna í
hverju héraði um sig í írlandi og
að frskt þjóðþing, kosið með
hlutfallskosningum, verði kallað
saman hið bráðasta með valdi
til þess að ákveða um stjórn ír-
lands.
En það var ekki einasta fram
172 tölubl.
koman við írland, sem fundurinn
fordæmdi, heldur öll utamíkis-
pólitík núverandi stiórnar — frið
arsamningarnir við Míðveldin og
framfylging þeirra, tollapólitíkin,
hndvinningasteínan og herbúnað-
urinn. Hann mótmælti kröftuglega
þeirri svikapólitík, sem rekin væri
af þjóðabandalaginu. í raun og
veru notuðu Bandamenn það til
þess eins að geta ráðið eins og
þeim sýndist yfir smáþjóðunum
Á meðai þeirra, sem kosntr
voru f stjórn verkamannaflokksins
eru nokkrir, sem róttækir jafnað-
armenn hljóta að gera sér góðar
vonir um, að muni halda vel á
málstað verkamanna f Englandi
á næsta ári. Fiest atkvæði af
þeim ölium hlaut hinn nafntogaði
námumannaforingi, Frank Hodges.
Af öðrum stjórnendum má nefna
Jowett, sem fer með forsætið í
miðstjórninni, Sidney Webbs,
varaforsetann, Clynes og Mac
Lean.
Loks var svohljóðandi fundar-
ályktun samþykt:
„Fundurtnn fordæmir gersam-
léga alia samvinnu verkamanna-
flokksins við borgaraflokkana,
hvort hddur frjálsiynda flokkinn
eða íhaldsmenD, og lítur svo á,
að mark verkamanna eigi aö vera
að ná völdunum einir, bháair öll-
um, öðrum Jlokkum", En þeir
skuldbinda sig lfka til þess, að
berjast fyrir welferð allra og að
tryggja þjóðinni slíka notkun auð-
lindanna, að öllum megi að gagai
koma*.
Fundarályktun þessi var sam
þykt í einu hljóði. Sýnir hún vel
hvernig ensku verkamennirntr,
sem áður hafa einatt rekið sam-
komulagspólitík — hvemig þeir
smásamaa eru að fallast á síefnu
kommúnistanna, þrátt fyrir ýmis-
leg aukaatriði, sem enn aðskilja.
Kolaskip kom í morgun til
Kveldúlfs.