Alþýðublaðið - 28.06.1967, Side 2

Alþýðublaðið - 28.06.1967, Side 2
Hámarkshraði hækkaður Borgarráð Reykjavíkur sam- l»Skkti á fundi sínum í dag til- löjíu umferðarnefndar um haekk- ui| hámarkshraða á 15 götum í Réykjavík úr 35 km/klst. í 45 kt t/klst. Þessar götur eru: Ánanaust, Bi irgartún, Grensásvegur Háaleit is iraut, Hofsvallagata, Kleppsveg ur, Kringlumýrarbraut, Langa- hlíð, Laugarásvegur, Laugavegur austan Nóatúns, Reykjavegur, 'Snorrabraut, Sóleyjargata, Suður gata sunnan Hringbrautar og Ste- ti%i. Samkvæmt 46. gr lögreglusam þykktar Reykjavíkur má á svæð- inu vestan Elliðaánna eigi aka hraðar en 35 km/klst., enda séu umferðarskilyrði góð. Austan Ell iðaánna má með sama skilorði aka allt að 45 km/klst. Borgar stjórn er þó heimilt að ákveða annan hámarkshraða á einstökum vegum. Borgarstjórn Reykjavíkur hefur áður samþykkt að leyfa 45 km. hraða á eftirtöldum 6 götum. Miklubraut frá Suðurlandsbraut Framhald á 13. síðu. IÁRSÞ1NG UNGTEMPLARA HALDIÐ Á SIGLUFIRÐI ÁRSÞING ísl. ungtemplara verð- ur haldið á Siglufirði 30. júní til 2. júlí n. k. Jafnframt verður 9. landsmót ísl. ungtemplara háð þar dagana 1. og 2. júlí. Dagskrá mótsins verður með fjölbreyttu sniði. Mótið verður eett e. h. á laugardaginn (1. júlí) •og hefjast þá íþróttir. Þátttakend- ur eru úr ungtemplarafélögum víðsvegar að af landinu. Um kvöld ið verður skemmtikvöld og dans istiginn fram eftir nóttu. Á sunnudaginn heldur mótið á- fram. Árla morguns verður gengið á Hólshyrnu, síðan verður fylkt fliði og haldið til kirkju, þar sem flilýtt verður á messu hj'á séra Ragnari Fjalar Lárussyni. Síðari hluta dagsins lýkur íþróttamótinu. Um kvöldið verður kvöldvaka og i varðeldur og er mótinu slitið um j kvöldið. Þátttakendur munu búa í tjald j borg á meðan á mótinu stendur. j Ungtemplarafélagið Hvönn á Siglufirði hefur veg og vanda af undirbúningi mótsins. Þetta er í fyrsta sinn, sem landsmót ísl. ungtemplara er Sialdið utan Reykjavíkur. Þeir ungtemplarar, sem enn ekki hafa tilkynnt þátttöku, eru beðnir að liafa samband við við- komandi ungtemplarafélög sem fyrst. -« Vel heppnub skemmtiferð ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG Reykja víkur efndi til skemmtiferðar í Þjórsárdal s. 1. sunnudag. Tóku 100 manns þátt í ferðinni og tókst hún mjög vel í alla staði. Veður var nokkuð gott og ánægja rtkti meðal þátttakenda í förinni. Ekið var í fyrstu austur á I>ing völl og staðnæmzt á Lögbergi, en 4>ar flutti dr. Gunnlaugur Þórðar- són stutt spjall um sögu staðarins. Þá var ekið um Lyngdalsheiði að Laugarvatni og snæddur þar 'há- degisverður. Flutti Eggert G. Þor- steinsson ráðherra stutta ræðu undir borðum. Því næst var ekið inn í Þjórs'árdal. Var farið að Stöng og gamli bærinn þar skoð- aður. Síðan var ekið að Gjá og síðdegiskgffið drukkið þar. Að lokum var (höfð stutt viðdvöl við Hjálparfoss, en síðan ekið heim- leiðis. Fararstjórar voru þeir Sigurð- ur M. Helgason og Emanúel Mor- thens, en leiðsögumaður var dr. Gunnlaugur Þórðarson. Var fólk- ið mjög ánægt með ferðina og eru þessar sumarferðir nú orðnar fastur liður í starfi Alþýðuflokks- félags Reykjavíkur. Á efstu myndinni sjást fararstjórarnir tveir og formaður og ritari Alþýðuflokksfélagsins framan við Hótel Valhöll. Frá vinstri: Björg. vin Guðmundsson, Sigurður Helgason, Emanúel Morthens og Am- hjörn Kristinsson. ’ Miðmyndin er af hópnum við snæðing í Gjá í Þjórsárdal. Neðsta myndin er af yngstu þátttakendunum í ferðinni, börnum Arnbjarnar Kristinssonar, og með þeim er Eggert G. Þorsteinsson fé- Iagsmálaráðherra. IIBÍÍSI ■'■•' :. • 2 28. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.