Alþýðublaðið - 19.07.1967, Side 4
Ritstjórl: Benedikt Gröndal. Símar 14900—14903. — Auglýsingasíml:
14906. — Aðsetur: AlþýðuhúsiS viö Hverfisgötu, Rvik. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins. Siml 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — t lauaa*
Bölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandl: Alþýðuflokkurlnn.
Erlent fjármagn
FRAMKVÆMDIR eru að hefjast við álbræðsluna
irniklu í Straumsvík og höfn þar á staðnum. Komið
hefur til deilu milli verktaka og verkalýðshreyfing-
arinnar í Hafnarfirði, en vonandi leysist það mál.
Verkalýðshreyfingin mun standa því fastari vörð um
hagsmuni sína í Straumsvík sem þar er um meiri
framkvæmd að ræða en hér ha'fa áður gerzt.
Morgunblaðið gaf síðastliðinn sunnudag í skyn, að
olíuhreinsunarstöð yrði næsta stórframkvæmd. Hefði
ríkisstjórnin haft það mál tilbúið, en ákveðið að láta
það bíða, þar til eftir álverið. Þetta er ekki öldungis
rétt, því að samkomulag náðist alls ekki um þær
leiðir til að koma upp olíuhreinsunarstöð, sem boðnar
voru. Slík stöð er án efa æskilegt og gott fyrirtæki,
hvernig sem réttast verður að standa að byggingu
hennar, en vel má vera, að saltvinnsla eða annar iðn-
aður verði næstu stórverkefni. Fara nú fram ítarlegar
rannsóknir á þeim málum á vegum iðnþróunarráðs.
Sumir aðilar hér á landi vilja opna allar gáttir og
Sijóða heim eins miklu erlendu fjármagni og fram-
ast er unnt að fá til íslands. Slík stefna er jafn ó-
hyggileg og hin, að negla aftur glugga og hurðir. I
þessum málum sem víðar mun meðalhófið hin skyn-
samlega leið.
Alþýðuflokkurinn hefur í þessu máli markað stefnu,
sem telja má víst, að meirihluti þjóðarinnar aðhyll-
ist. Hún er á þá lund, að íslendingar eigi að hagnýta
sér erlent fjármagn í sérstökum verkefnum, þar sem
ástæða er til. Flokkurinn telur hins vegar ekki rétt
að setja almenna löggjöf um innflutning erlends fiár-
magns, heldur vill hann dæma hvert atvik fyrir sig
eftir aðstæðum og meta, hvort það er æskilegt eða
eklti.
Haldið er fram, að álbræðslan verði upphaf að
straumi erlendra fyrirtækja til landsins. Þetta er mis-
skilningur. Hún er og verður einstakt mál, dæmt
eftir aðstæðum, en ekki fordæmi fyrir önnur.
Svo til allar þjóðir, einnig austan járntjalds, leita
nú eftir erlendu fjármagni, sérþekkingu og tækni-
hjálp á einhverjum sviðum eða í einhverju formi.
Það væri fásinna af íslendingum að notfæra sér ekki
þessa leið til framfara. í þeim efnum eigum við að
koma fram sem frjálsir og framsýnir menn, en hafna
minnimáttarkennd og einangrunarstefnu.
Alþýðuflokkurinn hefur í þessu máli vísað á bug
öfgum til beggja banda, en mótað ábyrga, íslenzka
j stefnu, sem þjóðin getur óhrædd tileinkað sér.
\
| Aglýssn3:asím5 A'þýðublaðsins er J49Ö6
' 4 19. julí 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Nýtízku kjörhúð
Örskammt frá Miklubraut
Kynnizt vörum, verði og þjónustu.
Góð bílastæði.
KRON Stakkahlíð 17.
ST'AKKA HI.ÍD
MNOAHl
ÚTSALA - ÚTSALA
SUMARÚTSALAN
Hefst á morgun, fimmtudaginn 20. júlí
Fjölbreytt úrval af ódýrum kápum, frÖkkum, drögt-
um, úlpum, höttum og töskum.
MIKIL VERÐLÆKKUN
BERNHARD LAXDAL, Kjörgarði.
Laugavegi 59. — Sími 14422.
krossgötum
★ BIFREIÐAEFTIRLIT OG
DRULLUSOKKAR.
Hcr var um daginn vikið að Bif-
reiðaeftirliti ríkisins og drullusokkunum svo-
nefndu, sem Bifreiðaeftirlitið vill kalla aurhlífar,
en ættu þó frekast að kallast grjóthlífar samkvæmt
skilgreiningu Bifreiðaeftirlitsins. Svar þess hefur
nú vcrið birt hér í blaðinu, ekki í þessum dálki
að vísu, en vonandi hafa menn séð það.
í svari Bifreiðaeftirlitsins er því
lialdið fram, að ótvírætt gagn sé að aurhlífunum,
eða drullusokkunum, cða hvað menn vilja kalla
þessa bleðla, sem þeir eru neyddir til að hengja á
bíla sína. Það getur verið að eitthvert gagn sé í
þeim sérstaklega hvað varðar aurslettur, en reynsla
bifreiðaeigenda virðist hins vegar sanna, að aur-
hlífarnar geri lítið gagn eða ógagn að því er grjót-
kastið varðar. Engin rök hafa komið fram sem-
sýna fram á eða sanna, að þessar hlífar dragi úr
grjótkasti. Ekki kom heldur fram í svari bifreiða-
eftirlitsins hvers vegna var hætt við að nota þess-
ar hlifar í Danmöi'ku.
Annað var eftirtektarvert í svar-
inu, en það er að þar segir, að menn ættu að forð-
ast liraðan framúrakstur. Þetta er andstætt því
sem stöðugt er verið að predika í umferðarþáttum
Ríkisútvarpsins. Þar segir að menn eigi að vera
fljótir að fara fram úr, ekki að vera að tvinóna
við það langa lengi og aka lengi með hlið bílsins,
scm fara á framúi’. Þarna virðist sem sé um ólíkar
skoðanir á framúrakstri að ræða, og væri nú fróð*
legt að vita hvor aðilinn þarna hefur meira til síns
máls.
r
★ MÁL TIL KOMIÐ.
r
En í svari Bifreiðacftirlitsins var
fleira athyglisvert. Þar kom það fram í fyrsta
skipti, að bifreiðaeftirlitið telur öryggisbelti góð
og nauðsynleg, þótt ekki hafi.þar verið mælt mefl
því að innleiða þau sem skyldu. Sama máli-gegnitf
um rúðusprautuniar, sem allir telja nú sjálfsagðar,
og bifreiðaeftii’litið líka að því er virðist og var
sannarlega mál til komið, að stofnunin léti frá
sér heyra um þetta.
Líklega eru bráðum fjögur ár
frá því fyrst var spurt um það hér í Alþýðublað-
inu hvað eftirlitið segði um öryggisbelti. Nú loksins
er svarið komið og ber að sjálfsögðu að fagna þvú
Við væntum þess, að bifreiðaeft-
irlitsmenr. verði jafnduglegir að semja reglugerðir
um notkun öryggisbelta og rúðusprautna og þeic
hafa vei’ið við að semja reglugerðir um aurhlífar.
Þess verður vonandi ekki langfc
að bíða, að sú reglugerð sjái dagsins ljós. — KARL,