Alþýðublaðið - 19.07.1967, Page 5
Sumarhátíb í
Húsafellsskógi
í blaðinu í gær var sagt lít-
illega frá iijnu glæsilega sumar-
móti æskulýðssamtakanna í Borg
arfirði að Húsafelli um verzlun-
armannahelgina. Myndirnar hér
að ofan eru af mótssvæðinu, hin-
um blandaða kór Reykdæla, sem
syngja á hátíðinni og þeim Guð-
mundi Böðvarssyni skáldi og séra
Einari Guðnasyni sóknarpresti í
Reykholti, en þeir munu báðir
flytja ávörp og hugvekjur.
Nánari dagskrá mótsins er á
þessa leið:
Á föstudag verður mótssvæðið
opnað fyrir tjaldbúðafólk. Á laug
ardag hefjast skemmtiatriði. Kl.
14 er íþróttakeppni og kl. 20 hefst
dans á þrem danspöllum, þar sem
leiknir verða, bæði gömlu dans
arnir og þeir nýju. Kl. 1 hefst
miðnæturvaka með því að Vil-
hjálmur Einarsson formaður
TJMSB flytur ávarp. Þá verður
flugeldasvning, varðeldur og þjóð
lagasöngur. Skemmtikraftarnir
Baldur og Konni, Birna Aðal-
steinsdóttir og Jón Gunnlaugsson
koma fram. Um tvöleytið lýkur
vökunni með samsöng.
Dagskrá sunnudagsins hefst kl.
10 með knattspyrnukeppni. Að
henni lökinni verður hátíðadag-
skrá þar sem koma fram þau
Ásgeir Pétursson sýslumaður for-
maður ÆMB, séra Einar Guðna-
son, Guðmundur Böðvarsson
skáld og Birna Aðalsteinsdóttir.
Þá mun einnig blandaður kór
Reykdæla syngja undir stjórn
Kjartans Sigurjónssonar. Um
15.30 fer fram úrslitakeppni
íþrótta og að henni lokinni hesta-
sýning og kappreiðar. Skemmi-
dagskrá hefst svo kl. 17 og verð-
ur Jón Gunnlaugssön kynnir og
stjórnandi hennar. Hún byrjar
Frh. á 14. síðu.
Hver sá sem eitt sinn hefur
•heimsó.tt Karpatafjöllinn mun
aldrei’ gleyma hinni ljómandi
Verkhovina, Uzhandadalnum
vöfðum himinbláu mistri, hinni
léttu og hröðu Tisu né dynj-
andi fossunum. Gestirnir láta
heillast af Karpatafjöllunum,
niðandi ánum, ríkulegum ávaxta
gjfðum og vínekrum. Skógurinn
kallar á þig og það gera líka
•varðeldar fjárhirðanna, upp-
spretta söngva og þjóðsagna.
Við allt þetta getum við bætt,
að þarna 1 fjöllunum er ótæm-
andi uppspretta hreysti og hed-
brigði. Á hverju ári er viðkvæð-
ið hjá lækningastöðvunum, sum
arbúðunum, hotelunum, íþrótta-
búðunum og ferðamannastoovun-
um hið sama: „Allt upptekið".
Það er hreint engin tilviljun að
23. flokksþingið lagði svo ríka
áherzlu á uppbyggingu heilsu-
•baða og lækningastöðva í Karp-
atafjöllum.
Sannleikurinn er sá, — að
þar til nú nýlega voru livorki
lækningastöðvar né dvalarheimli
í Karpatafjöllunum ef frá eru
taldir nokkrir frumstæðir bað-
staðir í einkaeign, þangað sem
tignarfólk Vestur Evrópu lagði
leið sína hér áður fyrr. Nú hafa
verkamenn yfir að ráða fjöldan-
um öllum af bað- og lækninga-
stöðvum.
Og hver er svo ástæðan fyrir
hinnu miklu uppbyggingu heilsu
stöðva i Karpatafjöilum Vitan-
lega liinar miklu ölkeldur. Ekk-
ert hérað Ukraínu getur státað
af slíkum f jölda öikeldna. í Karp
atafjöllum ex-u meira en 300 upp
sprettur og margar þeirra þekkt
ar fyrir olkeiduvatn, sem notað
er til lækninga.
Aðallækningastöðvunum er val
inn staður með tilliti til um-
hverfis og loftlags. Sérstök upp-
bvggingarstofnun var sett á lagg
irnar og á síðustu 7 árum hefur
aðeins verið varið rúmlega 5
milljónum rúblna í þessu skyni,
en fjárveiting fyrir 5 ára áæti-
unina var 6 milljónir rúbina.
Ko.mið hefur verið á fót vís-
indastofnun, sem. er gretu af
Heilbrigðisrannsóknarstofnun
Odessu. Verkefni hennar er aö
skapa vísindalegan grundvöil
undir frekari uppbyggingu lækn
ingastöðva í Karpatafjöllum,
líta til með nýjum átöppunar-
verksmiðjum fyrir ölkelduvatn
og rneta gildi nýopnaðra upp-
spretta o.s.frv.
Lækningamáttur ölkelduvatns-
ins í Karpatafjöllunum er mik-
ill. Hægt er að nefna fjölda
dæma, þar sem sjúklingarnir
komu þangað í mjög siæmu á-
standi, en fóru aftur hressir og
kátir, ef svo mætti segja. Siny-
ak lækningastöðin, sem ein!k-
um sinnir fólki með truflanir í
hreyfitaugunum, hefur komio
upp sé'stöku safni, þar sem sj-
fellt bætist við af hækjum lækn-
aðs fólks.
Til þess að koma gestum þægi
lega á óvart, hafa framkvæmda
stjórar okkar komið upp nokki -
um hótelum og mótelum á ár-
bakkanum.
Hvert viljið þér fara?
Nefnið siaðinn. Við flytjum
yður, fljótast og þœgilegast.
Hafið samband
við ferðaskrifsiofurnar eða
A.MERICA.tV
Hafnarstræti 19 — sími 10275
SAMKEPPNI VIÐ 6UÐ
MORGUNBLAÐIÐ kuvni svo
sem svar við þeirri aðfinnslu,
að ennþá hefur ekki verið sett
þak á áhorfandastiiku nýja leik-
vangsins í Laugardal. Það lét
þess cjetið í Staksteinum á dög-
unum, að ek.ki sé hægt að gera
allt í einu. Þetta er bærileg
málsvörn út af fyrir sig. Reyk-
vikingar, sem lemjast stormi og
regni undir beru lofti i Laug-
ardal, eiga að sætta sig við mót-
lætið í hógværri ást og kristi-
lcgri aðdáun á spaniaðarvið-
leitni borgarstj órnarmeirih lut-
ans.
Þér landnemar . . .
Kann hann að spara eins og
skyldi? Hér skal rifjað upp
dæmi um eyðslu, sem hefði
kannski getað setið á halcan-
um, meðan verið var að setja
þakið á áhorfendastiikuna.
Inni við Elliðaárvog hafa
borgaryfirvöldin ráðizt í um-
fangsmikið landnám. Mörgum.
mun þó finnast, að Geir borgar-
stjóra og köppum hans hefði
verið þörf á öðru fremur en
gerast í þeitn skilningi land-
nemar í ríki sínu. Og fróðlegt
værí að vita, hvað landnámið
við Elliðaárvog kemur til með
að kosta, þegar framkvæmd-
inni er lokið.
Markið sett hátt.
Þakið á áhorfendastiíkuna í
Laugardal má bíða, þó að það
yrði þúsundum Reykvíkinga
mikið hagræði. Slíkt er van-
rækt, enda þótt önnur mann-
virki, sem kosta milljónatugi,
komi til sögunnar á skötnmum
tíma. Hitt finnst borgaryfir-
völdunum ekkert áhorfsmál að
efna til landnáms inni við Ell-
iðaárvog. Reykvíkingum er víst
sú framkvæmd lífsnauðsyn,
þrátt fyrir alkunnan sparnað
og viðurkennda ráðdeild vald-
hafa sihna.
Þetta stafar sennilega af
frægum samkeppnisvilja ráða-
manna Reykjavíkurborgar. Þeir
geta ekki selt markið lægra en
efna til samkeppni við guð al-
máttugan, sem gaf okkur land-
ið, en gleymdi að ganga frá
Elliðaárvoginum eins og Geir
borgarstjóra og félögum har,s
þykir hæfa. Þess vegna er mok-
að þar jarðvegi, hlaðið og sléit-
að, þó að áhorfendastúkan í
Laugardal sé opin öllum veðr-
um.
Skyldi þetta ásamt fleira
verða til þess, að meirihhni
Sjálfstæðisflokksins í Rcykjar
vík fjúki í næstu borgarstjór n
arkosningum?
HEiLSULINDIR
I ÚICRAÍNU
19. júlí 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5