Alþýðublaðið - 02.08.1967, Page 9

Alþýðublaðið - 02.08.1967, Page 9
ÉG GET EKKI GLEYMT FÁTÆKA FÓLK- INU MÍNU HEIMA I MISSISSIPPI EF að ég væri hundelt mundi ég fyrst leita liælis hjá ungling unum, áður en ég flýði til kirkj unnar, segir blökkukonan Marie Singer. Marie Singer er þekktur sálkönnuður í Bretlandi, kennari við háskólann í Cambridge, starfs maður við hina frægu Anna Freud sálkönnunarstofnun fyrir börn í London, ekkja eftir skozka ljóðasmiðinn, vísindamanninn og bókmenntagagnrýnandann Burns Singer, sem dó fyrir fáum ár- um. Marie Singer er um þessar mundir stödd i Kaupmannahöfn, þar sem staðið hefur þing sál- könnuða. Hún segir: — Um allan heim er það ungt fólk, sem fyrst reynir að skilja vandamál blökkumannanna og berst gegn kynþáttamisrétti. Helmingur vina minna í Cam- bridge eru unglingar. Ekki svo að skilja, að í hópi þeirra háskólakennara, sem ég tilheyri sé gerður munur á fólki eftir hörundslit þess, — þar er bara litið niður á kvenfólk. Þar er svo algjört karlmannaveldi, að margir vildu sjá okkur kven- fólkið í gálganum, — segir Marie Singer og hlær. — Afstaða unga fólksins til kynþáttavandamálanna er upp- reisn gegn því óréttlæti, sem fullorðna fólkið hefur beitt í þessum málum. Hið sama er að segja um marihuana og LSD- neyzlu unga fólksins. Það er líka uppreisn gegn því gamla. Þótt einkennilegt sé, finnst fólki það miklu liræðilegra, að ungt fólk neyti lyfja en hinir eldri. Mjög margt fullorðið fólk treð ur í sig svefnpillum fyrir nótt- lina. Önnur kynslóðin tekur lyf sín á daginn, — hin á nóttinni. Önnur kynslóðin tekur lyfin til þess að upplifa eitthvað nýtt innra með sér, hin til að forðast það. Það má þó enginn skilja þetta sem svo, að ég sé hlynnt því, að unga fólkið taki inn lyf. Þetta er mjög aívarlegt mál og vandamáþ í Cambridge, þótt það sé ekki eins alvarlegt þar og í London, Við gerum allt, sem við getum, til þess að hjálpa há- skólastúdentunum yfir þetta. Ann að hvort reynum við að lækna þá með sálrænni meðferð heima eða við sendum þá á spítala, — en leyfum þeim að koma aftur í háskólann, — jafnskjótt og þeir eru færir um það. Það kemur sjaldan fyrir. að neita verði þeim Framhald á bls. 15. IBM - GÖTUN Stúlka óskast strax til starfa við IBM-götun á skrifstofum vorum við Hagatorg. Þarf helzt að hafa nokkra æfingu við götun. Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrifstofum vorum, sé skilað til skrifstofu Starfsmanna- halds fyrir 10. ágúst. Tilkynning frá bönkun- um varðandi greiðslur víxla Vegna þess að bankarnir eru lokaðir n. k. laugardag 5. ágúst og mánudaginn á eftir, verzlunarmannafrídaginn, verða víxlar, sem falla í gjalddaga n.k. föstudag, 4. ágúst, af hentir til afsagnar að loknum afgreiðslu- tíma bankanna þann dag, hafi þeir ekki verið greiddir eða framlengdir fyrir þann tíma. 1. ágúst 1967. Erlendir framleiðendur og útflytjendur Við óskum eftir nákvæmum og yfirgripsmikl- um tilboðum í eftirtaldar vörur, bæði fyrir- liggjandi og enn í framleiðslu: Harðfiskur, alls konar sjávariðnaðarvörur, vefnaðarvör- ur, prjónavörur, tilbúin föt, knipplinga, flau- el, handgerðar vörur, nærföt, töskur, inn- kaupatöskur og körfur, jakka, regnkápur og skó. Skrifið sem fyrst til: IMPROVERT (NIGERIA) COMPANY, 22, Ondo Street, Ebute-Metta (East) Lagos-Nigeria. Blaðburðarbörn Vantar til að bera blaðið í eftirtalin hverfi: Barónsstíg Framnesveg Bræðraborgarstíg Sörlaskiól. 2. ágúst 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.