Alþýðublaðið - 02.08.1967, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 02.08.1967, Blaðsíða 11
og unglinganna frá IBK Eins og skýrt er frá í blaðinu í dag léku B-lið Akurnesinga og Keflvíkinga í Bikarkeppni KSÍ á Akranesi á' laugardag. Útaf fyrir sig hefði þetta ekki þótt merki legur leikur, en af sérstökum á- stæðum er mikið um hann talað og ýmsir knattspyrnuunnendur fylgjast vel með þessu B-liði Skagamanna. Ástæða? Jú, í liði þessu eru nær eingöngu þeir knattspyrnumenn, sem gerðu garðinn frægann í nærri áratug og tugþúsundir Reykvíkinga hafa átt margar ánægjustundir með þessum snjöllu knattspyrnumönn- um. Snemma í sumar hófu áður- nefndir leikmenn æfingar, ekki með þátttöku í meistarakeppni í huga, heldur sjálfum sér til hressingar og ánægju. Það hefur samt atvikazt svo, að B-lið Akur- nesinga er skipað þessum frægu leikmönnum og gaman verður að sjá þá í næsta leik, því að „gömlu mennirnir" sigruðu unglingana frá Keflavík með 3 mörkum gegn 2. Efri myndin er af liðinu og sú neðri sýnir Þórð Þórðarson skora. ÍR 11. ágúst n. k. 60 ára afmælismót ÍR í frjáls- um íþróttum, fer fram 11. ágúst á Melavellinum í Reykjavík og verður keppt í eftirtöldum greiD- um: Karlar: 1 100 m hl., 400 m hl., 800 m hl„ 1000 m boðhl., kúluvarp, stang- arstökk, sleggjukast og hástökk. Konur: 100 m hl. hástökk og 4x100 m boðhlaup. Drengir: 100 m hlaup. Sveinar: 100 m hl. og piltar og stúlkur 12 ára og yngri 60 m hl. Þátttökutilkynningar eiga að skilast til Guðmundar Þórarins- sonar, á Melvöllinn í Reykjavík i síðasta lagi fyrir 8. ágúst n.k. ÚRVAISRÉTTIR á virkutn dögutn oghátiöum (S^ Á matseðli vikunnar: STEIKT LIFUR BÆJAKABJÚGU KINDAKJÖT NAUTASMáSTEIK IIFRARKÆFA Á liverri dós er tlllagp. um framreiðslu . j ^VKJÖTIÐNAÐARSTÖÐ/^0 Haukadals- skóli 40 ára Á þessu ári eru 40 ár liðin síðan íþróttaskólinn í Haukadal var stofnaður. Hefur skólinli starfað á hverjum vetri síðan og er nemendahópurinn, sem þar hefur verið við nám um 800, auk þeirra pilta sem dvaiið hafa í skól anum stuttan tíma, á ýmiss kon- ar námskeiðum. Sigurður Greipsson liefur frá upphafi verið skóiastjóri íþrótta- skólans, enda stofnaði Sigurður skólann og hefur starfrækt hann á sínu heimili, svo sem kunnugt er. í tilefni af 40 ára afmæli skól- ans, er ákvcðið að efna til nem- endamóts að Haukadal þriðjudag- inn 22. ágúst n.k. en þann dag verður Sigurður Greipsson 70 ára. Gert er ráð fyrr að þeir Hauk- dælir sem koma á mótið mæti í Haukadal kl. 14 og dvelji þar fram til kvölds — rifji upp gömul kynni — „verði ungir í annað sinn“. Um kvöldið verður efnt til sam sætis í Aratungu, til heiðurs Sig- urðu Greipssyni og eiginkonu hans Sigrúnu Bjarnadóttur. Er það Héraðssambandið Skarphéð- inn, sveitungar þeirra Haukadals- hjóna og nemendur Haukadais- skólans, sem gangast fyrir sam- sætinu. — Þeir nemendur skólans sem ætla að mæta í Haukadal 22. ágúst eru beðnir að tilkynna það til Kjartans Bergmanns Guðjóns- sonar, Bragagötu 30, sími 21911, Reykjavík, Hjálmars Tómassonar, Rauðalæk 55, sími 33125 eða 10700 Reykjavík, Hafsteins Þor- valdssonar, sími 1545, (eða 1554) Selfossi, fyrir 10. ágúst n.k. ÍA (b) sigraði ÍBK (b) 3:2 B-lið Akurnesinga, sem skipað er að mestu knattspyrnumönn- um, þeim, sem gerðu garðinn frægann síðasta áratuginn sigr- aði b-lið ÍBK á laugardag 3.2 I Bikarkeppni KSÍ. Allir eru leik- mennirnir af léttasta skeiði, en svo var þó ekki að sjá í leiknum. á laugardag. Mörk Akurnesinga skoruðu Ríkharður Jónsson, Þórður Þórð arson og Þórður Jónsson úr víta- spyrnu. í gærkvöldi fór fram á Melavell- inum fjórði leikurinn í Bikar- keppni KSÍ. Áttust þar við Sel— foss^ og Víkingur b. Leiknum lauk með verðskulduðum sigri Selfyss inga 1 'marki gegn engu. Héraðsmót UMSK Héraðsmót Ungmennasam- bands Kjalarnesþings i frjálsum iþróttum fór fram á Varmárveíli í Mosfellssveit helgina 22. og 23. júlí sl. Keppt var í karla kvenn- og sveinagreinum. Mótstjóri var Sigurður Skarphéðinsson. Veður var gott -en aðstaða á vellinum slæm. Gefnir voru bikarar fyrir beztu afrek samkvæmt stigatöflu og unnu þá þau Lárus Lárusson fyrir kúluvarp, Dröfn Guðmunds- dóttir fyrir kringlukast og Ólaf- ur Oddsson fyrir kúluvarp sveina. Keppendur voru frá’ Umf. Dreng í Kjós og Umf. Breiðablik í Kópavogi. Fyrst í einstökum greinum urðu þessi: Karlar: 100 m hlap Gunnar Snorrason B 12,8 sek. 400 m hlaup Gunnar Snorrason B 58,7 sek. 1500 m hlaup Gunnar Snorrason B 4:40,5 mín. 3000 m hlaup Gunnar Snorrason B 11:33,5 mín. 1000 m boðhlaup Sveit Breiða- bliks 2:22,1 mín. Kúluvarp Lárus Lárusson B 13,88 m. Kringlukast Þorsteinn Alfreðsson B 43,24 m. Spjótkast Dónald Jóhannsson B 43,20 m. Langstökk Dónald Jóhannsson B 6,33 m. Hástökk Magnús Steinþórsson B 1,55 m. Þrístökk Steingrímur Jónsson B 10,99 m. Stangarstökk Magnús .Takobssoa B 3,30 m. Konur: * 100 m hlaup fna Þorsteinsdóttir B 14,5 sek. / Langstökk ína Þorsteinsdóttir B 4,05 m. Hástökk ína Þorsteinsdóttir B 1,20 m. Kúluvarp Ragna Lindberg B 8,28 m. Kringlukast Dröfn Guðmundsdótt ir B 30,32 m. Spjótkast Arndís Björnsdóttir B 32,19 m. Sveinar: 100 m hlaup Helgi Sigurjónsson B 13,7 sek. 1500 m hlaup Helgi Sigurjónsson B 5:31,2 mín. 4x100 m boðhlaup Sveit Breiða- bliks 60,5 sek. Hástökk Björn Magnússon D 1,40 m. v Langstökk Daníel Þórisson B 5,01 m. Kúluvarp Ólafur Oddsson ö 10,81 m. Kringlukast Björn Magnússon D 34,19 m. Spjótkast Björn Magnússon D 36,76 m. 2. ágúst 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ %%

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.