Alþýðublaðið - 01.09.1967, Síða 8

Alþýðublaðið - 01.09.1967, Síða 8
TVÍFAR Framhald af bls. 7. legt. Þa5 var líka yfirvofandi ógn eitthvað illgjarnt og illt, sem um kringdi hann og ógnaði honum. Hann fann návist þess eins og rafmagnsstraum. En fimm mínútum eftir að skip ið var komið út á rúmsjó. hvarf þetta allt eins og hann værj kom inn út úr illri þoku. Þetta virt- ist varla skiljanlegt. Jafnvel þó vondir andar geti gefið frá' sér vonda dampa, er erfitt að skilja að þeir séu bundnir við föður- land manns og nái aðeins í fárra mílna fjarlægð frá ströndum þess. Samt var það svo. Eina stundina stóð hann þarna við rúmið sitt og hélt á byssunni og óhugnaleg löngun var að taka af honum völdin. Hann átti að stinga hlaupinu inn í munn sér og hleypa af og . . . Svo var því lokið. Honum leið eins og manni, sem batnar skyndi lega hann titraði og andaði ótt og títt, en liann var raunveru- legur aftur. Hann opnaði kýr- augað og hann segir mér að frá þeirri stundu hafi sér byrjað að batna. Hann vissi ekki, hvernig skam- byssan komst inn í klefan hans. Hann vissi, að hann hlaut að hafa komið með hana þangað í einu minnisleysiskastinu. En hann mundi það ekki. Hann leit lífið nýji^m |augum. Honum fannst hann hafa bjargast af högg- stokkinum. Það hefði verið skiljanlegt, ef hann thefði hent byssunni fyr- ir borð, en hann gerði það ekki. Honum fannst byssan ráðgá'ta. Hann virti hana fyrir sér. Brow ning 38, belgísk byssa, fullhlað in. Eftir fyrstu fimm dagana (þá læsti hann byssuna inni) fór hann að skoða hana stundum. Hann ætiaði að fáÞa með hana heim. Þetta var sönnunargagn í martröðinni. Það virtist enginn undrast byssuna í tollstöðinni í New York. Hann fór með hana til Cleve- land., Salt Lake City, Chicago, San Francisco og til Honolulu. Þeir reyndu að taka hana af honum í Yokohama en hann mút aði þeim til að sleppa henni. Eftir það bar hann hana á sér og það var aldrei leitað á hon- um. Eftir því sem taugar hans jöfnuðu sig fór hann að líta æ meira á byssuna sem heillagrip. Hann bar hana við Indlandshaf, Rauðaihaf og Miðjarðarhaf. Til Port Said og Kairó., Napólí og Marseilles og Gíbraltar . Hún var í rassvasa hans rúma átta mán- uði eftir brottför hans, þegar hann lenti aftur í Southampton. Það -snjóaði um. nóttina og Tony vissi að enginn myndi taka á móti honum. Hann hafði farið að fyrirmælum sínum og engum skrifað. En 'hann Ihafði ifka ákveðið að koma viku fyr ir ákveðinn tíma til að vera iheima um jólin. Eftir einn eða tvo tíma myndi hann hitta Jud- ith aftur. Samferðamenn hans í lestinni ræddu lítið saman. Það var leið inlegt veður úti fyrir. I N N — Gamaldags jól. sagði einn. — Huh, sagði annar og klór- aði í frostrósimar á glugganum með nöglunum. — Iskuldi, sagði sá þriðji. — Hversvegna er aldrei heitt í lest? Ég ætla að kvarta. Eftir Iþað fóru allir að lesa blöðin sín. Þá skildi Tony fyrst að hann var kominn aftur til Englands. Hann var kominn heim. Hann lézt lesa en hann hlustaði á lestina og hugsaði um það, sem hann ætlaði að gera. Klukkan tíu kæmu þeir til Waterloo. Þar ætlaði hann að taka leigubíl og fara heim til að þvo sér og skipta um föt. Svo færi hann til Judith. Und arlegur hrollur fór um hann. Hann hló að sjálfum sér og opn aði blaðið og las yfir síðurnar. • Þarna var kunnulegt nafn á miðri síðunni í smáfrétt. Hann var að lesa dánarfrétt- ina sína í blaðinu. Ekkert annað „Ilr. Anthony Dean Marwell, á Upper Avenue Road, St, Johns Wood eigandi Marwell hótel- anna, fannst skotinn til bana í gærkvöldi í svefnherbergi sínu. Kúlan hefur farið gegnum munn hans og beint í heilann. Skambyssan fannst við hlið líks jfns. í1rú Reach ráðskona hr. Marwell fann líkið. . — Sjálfsmorð. Hann spratt á fætur og fór fram ó ganginn, þar hélt hann blaðinu hátt á lofti í litlu gang týruna og las greinina aftur. Það vfrtist um engan mis- skilning að ræða. Frásögnin var of ýtarleg. Þar var sagt allt um hann, fortíð hans og nútíð. ....bróðir hins látna, hr. Stephen Marwell, hinn þekkti skurðlæknir var sóttur.... Unn- usta hans Judith Gates .. Það er álit manns að hr. Marwell hafi ekki náð sér eftir tauga- áfall það sem hann fékk s.l. september þrátt fyrir langa Pantið borð í tíma. Það komast færri að en vilja á RÖÐLI Á RÖÐLI fer saman GÓÐUR MATUR og GÓÐ HLJÓMSVEIT HRAFNS PÁLSSONAR ásamt söngkonunni VÖLU BÁRU. RÖÐULL er hinn vinsæli skemmtistaður Reykvíkinga. Öll fjölskyldan getur notíð Ijúffengra rétta og gdðrar þjdnustu hjá okkur MATSTOFA AUSTURBÆJAR ---------LAUGAVEGI 116 hvild... Tony leit á dagsetningu blaðs ins. Það var dagsett í dag, tutt- ugasta og þriðja desember. Hann virtist hafa skotið sig fyrir tveim sólarhringum. Og byssan var í rassvasa hans. Gleymið amstri dægranna í vistlegum salarkynnum KLÚBBSINS, við Ijúf- fengan mat og hljóðfall ágætra hljómsveita. Tony braut dagblaðið saman. Lestin þaut áfram með hann. Hann leit yfir ganginn. Hann sá ekkert nema einhvern, sem hann áleit að væri farþegi og sá leit út um gluggann út í hríð- ina. Hann man ekki eftir meiru fyrr en hann kom til Waterloo. En samt man hann óljóst eftir einhverju kunnuglegu við far- þegann sem stóð í ganginum með honum. Fyrst var það eitt- hvað um axlir farþegans. Svo skildi Tony að það var vegna þess að þessi farþegi var í stór um frakka með gamaldags skinnkraga. Þegar han fór út úr lestinni í waterloo minntist ihann þess að Gamli Jim Mar- well var alltaf í slíkum frakka. Fjöldi sérrétta á boðstólum. ® .35355 KLUBBURINN LÆKJARTEIG 2. REYKJAVIK • ICELAN Framhald á bls. 9,

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.