Alþýðublaðið - 31.10.1967, Side 9
FLUGSAMGÖNGUR
SST-vélin mun fljúga með
hraðanum Mach 2,7-3, en það
er 2900 og 3000 km á klst. í
sömu hæð. Sú vél tekur 240 —
300 farþega.
Ferðin frá London til New
York 5750 km), sem nú er farin
á ca. 7 klst., verður þá farin
á 3 klst. og 17 mín. með Con-
corde og 2 klst. og 40 mín.
með SST.
— o —
En að baki alls þessa liggur
mikið tæknilegt starf og háar
fjárupphæðir til starfsins. Það
þarf að leysa vandamálin á
þann hátt, að öllum öryggiskröf-
um sé fullnægt. Það mikilvæg-
asta er ekki hraðinn (þegar eru
til sprengjuflugvélar, sem geta
náð hraðanum Mach 3) heldur
er það öryggið, sem er aðalat-
riðið. Og öryggið verður að vera
meira en í þotum nútímans, af
því að í framtíðarvélunum munu
hundruð þúsunda farþega fljúga
'á þeim hraða og í þeirri hæð,
sem aðeins nokkrir herflugmenn
þekkja nú.
Vissir hlutar í flugvélunum,
er fara hraðar en hljóðið, hitna
upp í 250 — 300 gráður og það
skapar ýmsar hættur fyrir far-
þegana, einnig verður vélin fyr-
ir sterkri geimgeislun ef hún
þarf skyndilega t. d. að lækka
sig úr 20 þús. m í 15 þús. m.
En farþegar eiga að komast hjá
að finna neitt fyrir slíku.
Mismunurinn á hraða þessara
tveggja tegunda flugvéla er at-
hyglisverður: Að hraðanum
Mach 2,2 er hægt. að þekja
flugvélarskrokkinn að utan með
sömu málmtegund og gert er í
dag og þó stenzt hann hita þann
sem myndast við mótstöðu lofts-
ins. Ef að hraðinn er meiri er
nauðsynlegt að nota ryðfrítt
stál eða titanium, og það eykur
kostnaðinn geysilega.
y
Áætlanir eru líka gerðar um
,,vagna“ eða ,,ferjur“ á milli
jarðar og geimstöðva. Bygging
þeirra verður að vera alveg sér-
stök, þær verða að geta skipt
sér í nokkra hluta í mikilli hæð,
þar sem hver hluti hefur sitt
sérstaka verkefni.
Annað vandamál eru þær
geysilegu drunur, sem heyrast,
er vélin fer í gegnum hljóðmúr-
inn, en þær orsakast af loft-
þrýstingnum. Þær taka á sig
keiluform og æða til jarðar með
þvílíkum hávaða að alla mundi
æra og einnig verður svo sterk-
ur titringur í sameindum lofts-
Framhald á 15. síðu.
Alþýðuflokkskonur Rvík
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík
gengst fyrir málfundaæfingum sem hefjast í
kvöld 31. okt. kl. 8,30 í Alþýðuhúsinu v. Hverf
isgötu.
Leiðbeinandi verður Björgvin Guðmundsson.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif
stofu Alþýðuflokksins í síma 16724.
Kvenfélag Alþýðuflokksins.
Bazar
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík heldur BAZAR
á morgun, miðvikudag 1. nóv. kl. 2 í Góðtemplarahúsinu,
uppi.
NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ GERIÐ GÓÐ KAUP
Bólstrub húsgögn
raðsófasett, 2ja sæta sófi, borð og stólar, sem
hægt er að raða upp á marga vegu.
BÓLSTRARINN,
Hverfisgötu 74.
Laust starf
Samband sÝeitarfélaga í Austurlandskjördæmi
óskar -að ráða sér framkvæmdastjóra frá næstu
áramótum, eða síðar.
Umsóknir um starfið, ásamt launakröfum og
upplýsingum um fyrri störf, sendist formanni
sambandsins, Sveini Jónssyni, Egilsstöðum,
fyrir 1. des. 1967.
________________ Stjórnin.
IÐNSKÓLINN
í REYKJAVÍK
Skrifstofustúlka óskast til starfa í skrifstofu
skólans nú þegar.
ÁSKILIÐ: Vélritunarkunnátta, góð rithönd
og nokkur kunnátta í ensku og einu Norður-
landamáli.
Eiginhandar umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist skrifstofu skól-
ans eigi síðar en 7. nóvember.
Laun samkvæmt hinu almenna launakerfi
opinberra starfsmanna.
SKÓLASTJ ÓRINN.
AugKýsið í AlþýðubEaSinu
31. október 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9