Alþýðublaðið - 31.10.1967, Síða 10
fcsRitstióri Örn Eidsson
(T^þmSmomtXtXI
Þorsteinn Björnsson varði
af snilld í marki Fram
•Á SUNNUDAGINN léku danska
1 liðið Stadion annan leik sinn hér
;og aS þessu. sinni gegn íslands-
jmeisturum Fram. Leikurinn fór
fram fyrir nær fullu húsi áhorf-
^enda, sem urðu fyrir nokkrum
;vonbrigðurn með leikinn. Allan
tímann var hann leiðinlegur og
■ alls ekki vel leikinn. Framliðið
'■vantaði Ingólf og Danirnir voru
sýnilega þreyttir eftir ferðalag-
ið og leikinn við Víking kvöldið
áður.
Fram byrjaði að skora og gerði
það Gylfi Jóhannsson, síðan jafna
Danir, en Guðjón Jónsson, sem
aftur lék með Fram, skoraði tvö
falleg mörk. Guðjón virðist vera
kominn í góða æfingu og styrkir
hann Framliðið verulega. Staðan
í hálfleik var 8:5 fyrir Fram og
í byrjun síðari hálfleiks komst
Fram í 10:5, en Danirnir gerðu
aðeins þrjú mörk í öllum síðari
hálfleik.
Bezti maður Framliðsins var
Þorsteinn Björnsson í markinu,
sem stóð sig frátoærlega vel og
varði allan leikinn af hreinni
snilld. Þá voru þeir Gunnlaugur
og Guðjón góðir, aðrir stóðu sig
sæmilega.
Danska liðið var alls ekki upp-
örvandi, en sennilega hefur þroyta
háð leikmönnum liðsins.
Síðasti leikur þeirra verðúr í
kvöld við FH.
Stadion leikur við FH í ii
íþróttahöllinni í kvöld
I kvöid kL 8,15 hefst leik-
ur danska liðsins Stadion og FH
sem er íslandsmeistari í úti-
handknattleik. Eins og kunnugt
er sigraði Stadion Víking á
laugardag, en tapaði fyrir
Fram daginn eftir. Búast má
við mjög skemmtilegum leik
FH og Stadion, en Hafnfirð-
ingarnir liafa ávallt átt góða
leiki geign erlendum liðum.
Segja má, að þetta sé fyrsti al
vöruleikur FH á keppnistíma-
bilinu.
Gunnlaugur Hjálmarsson í góðu skotfæri og þá er ekki að sökum að spyrja. (.Mynd: Bj. Bj.)
STADION ÁTH EKKI í ERFIÐ-
LEIKUM MEÐ VÍKING, VANN 26:19
Guðjón Jónssou lék vei í leiknum á sunnudag. Hann hefur brotizt í gegnum vörn Stadion og skorar.
STADION, handknattleiksliðið frá
Kaupmannahöfn, sem hér er statt
á vegum Víkings lék við gestgjaf
ana á laugardaginn. Stadion sigr-
aði auðveldlega í leiknum með 26
mörkum gegn 19. Að vísu komst
Víkingur í 2:1 í upphafi, en Dan
irnir náðu fljótlega öruggu for-
skoti og í leikhléi var staðan 12:6.
Síðari hálfleikur var jafnari, en
þó héldu Danir forystu í þeim
hálfleik og einu marki betur, og
munurinn var 7 mörk eða 26:19
eins og fyrr segir.
Eins og oft áður bar mest á
Einari Magnússyni og Jóni Hjalta
lín í iiði Víkings, en aðrir leik-
menn eru töluvert lakari. Danirn
ir tóku fljótlega upp sérs^ika
gæzlu á þessum tveimur leikmönn
um, og þá var lítill kraftur í
Víkingsliðinu.
Það varð aldrei nein spenna í
þessum leik, til þess var sigur
Stadion of öruggur eiginlega frá
upphafi.
Skemmtifundur
Frjálsíþróttadeildar ÍR
ÍR-ingar! ÍR-ingar! — Frjáls-
íþróttadeild ÍR heldur skemmti-
fund fimmtudaginn 2. nóvember
í ÍR-húsinu við Túngötu og hefst
•hann kl. 20.30. — Sýndar verða
íþróttakvikmyndir og Guðmund-
ur Þórarinsson mun tala um þjálf
un íþróttafólks.
Mætið öll og takið með ykkur
gesti.
10 31. október 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ