Alþýðublaðið - 31.10.1967, Síða 14
HÁTÍÐAFUNDURF‘
-K
Félag ungra jafnaðarmanna í Reykjavík efnir til hátí ðarfundar í tilefni af 40. ára 'afmæli félagsins, í Átt-
hagasalnum, Hótel Sögu, miðvikudagskvöldið 8. nóvember kl. 20,30.
Á dagskrá fundarins verður;
1. Minnst afmælisins.
2. Heiðraðir verða stofnfélagar F. U. J. í Reykjavík.
3. Lýst tillögum stjórnar um nýtt félagsmerki.
Allir velunnarar F. U. J. í Reykjavík eru velkomnir á fundinn en þar sem húsnæði er takmarkað eru þeir
sem áhuga hafa á því að sækja fundinn vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku í skrifstofu Alþýðuflokks
ins í símum 13374 og 16724 fyrir þriðjudagskvöld 7. nóvember.
Á fundinum verða fram bornar veitingar. — Þátttökugjald er kr. 100,00. í
F.U.J.
STJÓRN F.U.J. í REYKJAVÍK
Annir í stjórnm.,
Framhald af 1. síðu.
Búizt var við, að þetta mál
yrði rætt í þingflokki Framsóknar
síðdegis í gær. Hugmyndin er
vissulega ekki ný, en ef henni
fylffja að þessu sinni ný úrræði,
sem áður hafa ekki heyrzt, gæti
verið tíðinda von í stjórnmálunum
á næstunni.
Augljóst er af viðburðum dags-
ins í gær, að í þessari viku liljóti
að koma í Ijós, hvort frestur
verkalýðshreyfingarinnar og við-
ræður við ríkisstjórnina bera ár
angur eða ekki, og hvað þá taki
við. Framsóknarmenn eru sýni-
lega að reyna að komast inn í
leikinn á ný og spurningin var í
gær: Gera Framsókn og Alþýðu-
TBLKYNNING
Samkvæmt heimild í lögum nr. 54 frá 14. júní
1960 hefir verðlagsnefnd- í samráði við ríkis-
stjórnina ákveðið, 'að frá 31. október að telja
þegar ,,lög um heimild til iverðstöðvunar falla
úr gildi, skuli fyrst um sinn óheimilt að hækka
verð eða álagningu á hvers konar vörum og
þjónustu, nema leyfi verðlagsnefndar komi til.
Gildir þetta um allar vörur, sem ekki eru
verðlagðar samkvæmt sérstökum lögum, eða
eru seldar úr landi, enn fremur um alls konar
þjónustu og greiðslur fyrir hvers konar verk,
sem ekki hafa verið ákveðnar með samning
um stéttarfélaga.
Reykjavík, 30. október 1967
Verðlagsstjóri.
bandalag stjórnarflokkunum til-
boð um fjögurra flokka þjóð-
stjórn? Ef svo — hverju mundi
það breyta?
f
Sigrún A.
Guðmundsdóttir
FRÁ ARNARDAL
F. 1. nóv. 1890. D. 10. okt. 1967
KVEÐJA FRÁ ÁSTVINUM
Sofðu vært er vetrarlín
vefur jörð og birtan dvín
í svörtum sorgarranni.
Leiði þig Drottins ljúfa mund
um ijóssins helga dýrðargrund
Guðdómsgeislinn sanni.
Ástvinir munu minnast þín
er morgunröðull bjartur skín
og bros hans bræðir hjarnið.
Þjökuð sál nú sigur ber,
syngur lofgjörð, Drottinn, þér
sem alsælt englabarnið.
Kveðjuorðin, amma mín,
eflaust geta náð til þín
í nýjum náðarheimi.
Með þökk um allt sem áður var
og unaðsríku stundimar
sem gull ég ávallt geymi.
Guðbjörg Ólafsdóttir.
Bílar til sölu og leigu
bíloiscilci
GUÐMUNDAR
Bergþórugötu 3.
Símar 19032 og 20070.
• Daggjald kr.
S00.00. Kr.
yo á eklnn km.
RAUÐARÁRSTlB 31
• Sf MI 220 22
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við frá-
fall
GUÐMUNDAR KNÚTSSONAR.
Jóna B. Ingvarsdóttir, Kristjana, Gyða og Guðfinna Breið-
fjörð, tengda og barnabörn.
OLAFUR OLAFSSON,
bóndi Skálavík,
andaðist í Landspítalanum mánudaginn 30. okt.
Fyrir hönd aðstandenda
KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR.
14 31. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ