Alþýðublaðið - 09.11.1967, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 09.11.1967, Blaðsíða 8
0 9. nóvember 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ afleiðingarnar Ég veit ekk kemur á fljúgf áttinni, sem é honum. Öllum hugsaði ég me bílstjórann. S; legur meðan h, en með tilliti iþótti mér ör einn dálítinn í eða að hvíta st ir henni í tve Ekki var ég ki leið að strikin ur bíll úr r« mér) og hrek 'til sama lane veit að tauj eru ekki mjög as,t að segja i öilu má ofbjó? Eftir að ha um hríð og fy inni af gaum, (þetta var föst armegin komu úr austri, en una komu þe uppgötvaði mi að hér ríkir v: an, þar sem \ er þessu öfug lega er ekki 1: að gæsir, sem inni á heiðum, inni fyrsta da: um. Eftir þetta eins og i sögu stað og í þetta inn minn með á síðustu mym við erum kom og stundarkor við farin að Hljómskálagar Þetta er sa Herra ritstjóri. Okkur hefur verið tjáð að þér tækjuð gjarna svari hinna smáu og smáðu í þjóðfélaginu og þó að við getum ef til vill ekki tal- izt til þessa þjóðféiags nema að nokkru leyti, þá er það samt staðreynd, að einmitt inni á heiðum ölum við upp börnin okkar og komum þeim til gæsa. Við getum sem sagt ekki orða bundizt öllu lengur. Eins og þér hljótið að vita, hr. ritstjóri, eigum við ekki í mörg örugg hús að venda á útfluginu. Næstum alls staðar þar sem við stönzum til að heyja okkur nær ingarforða undir langt og erfitt úthafsfiug, liggja fyrir okkur byssumenn og ef við erum ekki nægilega vel á verði, endar það oftast með því, að ein eða fleiri okkar liggja eftir dauðskotnar eða helsærðar, þegar við fljúg- um upp. Þar að auki hafa sumir bændur lagt á okkur óslökkv- andi hatur og eru fúsir til að leggja mikið í sölurnar til að okkur verði hreinlega útrýmt af landinu. Okkur hefur samt tekizt að laga okkur nokkuð sæmilega að þessum aðstæðum og þar sem gamlir og reyndir steggir hafa forystu fyrir hópum, er ekki svo mikli hætta á ferðum og ég held að ég megi fullyrða að ,,gæsaskyttur“ beri minna úr býtum nú orðið en hér áður fyrr. Við höfum þó komizt að raun um ,að á einum stað á landinu öllu er okkur óhætt að þessu leytinu. Og það er hér í Vatns- mýrinni og í Hljómskálagarðin- um. Þessu fyigir mikil öryggis- kennd eins og þér getið merkt af stóru myndinni, þar sem mað urinn gengur óhikað inn í miðj- an hópinn, án þess svo mikið að hugsa um gæsasteik (vonum við) og að hinu leytinu dytti okkur ekki í hug að gera hon- um hið minnsta mein eða fljúga upp. Vandamálið, sem við eigum við að stríða er sameiginlegt með okkur og ykkur mönnunum. Þér rennið sjálfsagt grun í hvað ég á við. — Umferðarvanda- málið. Milli Vatnsmýrarinnar og Hljómskálagarðsins liggur mikil umferðaræð, þar sem er Hring- brautin og á bökkum (þér af- sakið, en mér er þetta orðaJag tamt orðið) hennar byrjar vand inn. Ég þarf ekki að hafa um þetta mörg orð, því að myndirnar tala sínu máli. : Eftir fyrstu myndinni getið þér dæmt, að nokkur hundruð gæsir eru ekki lengi að kroppa það litla, sem er ósölnað af grösum i mýrinni, en við vitum af Hljómskálagarðinum handan við götuna og þar er venjulega rneira að hafa, því að hann er vel ræktaður og stendur lengur en mýrin. Á annarri mynd hef ég tekið mér forystuna fyrir dálitlum hópi, sem ætlaði að nema land á ihinum bakkanum. Ég gái vel og vandlega eftir umferð- inni austur Hringbrautina og það var einmitt þar, sem mér varð á í messunni. Næsta mynd sýnir hvar við leggjum út á brautina og enn horfði ég í vestur og á næstu þremur myndum getum við séð

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.