Alþýðublaðið - 09.11.1967, Qupperneq 11

Alþýðublaðið - 09.11.1967, Qupperneq 11
l=R»tsÝiór» Örn Eidsson Júgóslafar / hópi þeirra beztu Tekst Fram að sigra Partizan? Ungt félag með glæsilegan feril Á laugardag eru væntanlegir liingað til Reykjavíkur, Partizan, júgóslafnesku meistararnir í hand knattleik, ásamt 70 áhorfendum liðsins. Liðið leikur fyrri leikinn við Fram í Evrópubikarkeppninni , en hann hefst á sunnudag kl. 4 í íþróttahöllinni í Laugardal. Partizan Bjelover er ungt fé- iag, en með glæsilegan feril að baki. Félagið var stofnað 1957 og . er því 10 ára á þessu ári. Frami félagsins í júgóslavneskum hand- knattleik varð skjótur, því að 19 58 komst félagið í 1. deild og varð Júgóslavíumeistari sama ár. Fél- agið vann meistaratililinn aftur 1961 og 1967. Árið 1960 varð Par tizan bikarmeistari Júgóslavíu og hefur síðan komiz tvisvar sinnum í úrslit í bikarkeppninni. Einn glæsilegasti kaflinn í sögu Partizan Bjelovar á árununj 1961 og ‘62 en þá komst liðið í úrslit i Evrópubikarkeppninni. Éii í úr siitaleiknum tapaði Partan naum lega fyrir v-þýzku meisturunum Frischauf Göppingen, eða 11:13. Eins og af þessu má sjá er fer ill Partizan í 10 ár litríkur og glæsi legur. Og núna á þessu ári, þegar liðið tekur þátt í Evrópubikar- keppni í annað sinn, hefur það sett sér hátt marlc. Liðið er skip- að upgum leikmönnum, kja.rnann úr júgóslavneska landsliðinu, og efiaust gera Júgóslavar sér rniklar vonir í Evrópubikarkeppninni. Spurningin er, tekst Fram að gera þessar vonir að engu? / Að lokum nokkur orð um heima bæ Partizan. Félagið es, frá Bjel- voar, sem er iítill bær á júgóslav neskan mælikvarða, en ibúar hans eru um 20 þúsund talsins. Bjelovar státar af því að hingað til hafi enginn leikmaður frá öðrum borg um leikið með liði þeirra. Hér á eftir fara nokkrar upp- lýsingar um leikmennn Partizan Bjelovar, sem hingað korna,, en í liðinu eru sex júgóslavneskir landsliðsmenn: Markverðir: Zvonko Jandrolcovie, 28 ára gamall iðnfræðingur. Hefur leik- ið 33 landsleiki. Boris Bradic, tvitugur lögfræði stúdent. Miroslav Dolenec, 24 ára íþrótta kennari. Ivan Djuranec, 25 ára gamall hagfræðingur. Hefur leikið 63 landsJeiki eða fleiri en nokkur annar i liðinu. Vlado Smiljanic, 17 ára gam- all nemi. v Josip Pecina, 26 ára gamall land mælingamaður. Vidoslav Purgar, 23 ára gamall iðnfræðingur. Milan Djeric, 20 ára gamall lögfræðistúdent. Þjálfari liðsins er Zeljko Seles.; ÞAÐ er ekki ofsögum sagt að í Mið-Evrópu rísi handknattleik- urinn hæst. Núverandi heims- meistarar er Tékkar en þar á und an héldu Rúmenar heimsmeistara titlinum. Þótt nágrannar þeirra Júgóslavar, hafi aldrei orðið heims meistarar, eru þeir í hópi beztu handknattleiksþjóða heims. í lokakeppni HM í Svíþjóð á þessu ári voru þeir meðal þeirra 16 þjóða, sem kepptu um heims- meistaratililinn. Þeir. „byrjuðu mjög vel í riðlakeppninni 'og unnu Sviss í fyrsta leik 26:11. Þar næst ■mættu þeir Svíum og sigruðu þá örugglega 21:17. Þriðji leikur Júgóslava var gegn Dönum og voru þeir fyrirfram taldir öruggir sigur vegarar. En margt fer öðruvisi en ætlað er, Danirnir unnu mjög ó- vænt 14:13 og tryggðu sér þar með sæti í undanúrslitum. Þessi úrslit urðu mikil vonbrigði fyrir Júgóslava, því að með ,þeim var útilokað að þeir gætu lireppt eitt af fyrstu sætunum. E.. t v. varð þetta til þess, að þeir töpuðu síð- an fyrir Vestur-Þjóðverjum með eins marks.mun 30:31, en í síð- asta leiknum, sem var. gegn Ung- verjum, unnu Júgoslavar 24:20 og hlutu þar með 7. sætið í keppn: inni. Sigur gegn Svíum og Ungverj-' um sýnir vel styrkleika júgósiavn esks handknattleiks. Nokk.rir af HM-leikmönnum Júgóslava er 1 liði Partizan, sem leikur gegn Fram í Evrópubikarkeppninni i dag. Það er því engum vafa bundið, Fram fær erfiða naótherja. . Dómari í fýrri Evrópubikar leik Fram og Partizan Bjelov ar er Einar Fredlund Holm frá Osló, Noregi. Markadómarar verða Magnús V- Pétursson pg Válur‘Benédiktsson. Wolves- Coventry Á laugardag verður sýndur leik ur Wolves og Coventry í sjónvarp inu. Aðgöngumiðar Sála aðgöngumiða að Jeik Fram og Partizan hefst í dag í Bóka- verzlun Lárusar Blöndal, Skóla- vörðustíg og Vesturveri. Sérsamband / badminton Eins og skýrt hefur verið frá á. íþróttasíðurini var. stofn- að ..sérsamband í badminton , úm .síðustu helgi. ..Þpssi. mynd var tekin að loknum fuhdinum. í fremstu röð eru taldir frá vinstri: Þorvarður Árnason, úr stjói-n ÍSÍ, Guðjón Einar^son, varaforseti ÍSÍ, Kristján Bene- diktsson, fundarstjóri , Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ, Kristj án Ben jamíisson, formaður Badrbintönsambandsins, ' Her- mann Guðmundsson. fram' kvæmdastjóri ÍSÍ og Gunril. J. Briem, gjaldkeri ÍSÍ. Útileikmenn: Miroslav Pribanic, 22 ára gam- all járniðnaðarmaður. Hefur leik ið 20 landsleiki. Drago Cukovic 27 ára gámall verkfræðingur. Marijan Jaksekovic, 25 ára gam all hagfræðingur. Zeljko Jandrokvic, 25 ára gam- all eðlisfræðingur. Hefur leikið 1 landsleik. Hrvoje Horvat, 21 árs lögfræði stúdent. Hefur leikið 33 lands- leiki. Albin Vidovic, 24 ára gamall tannlæknir. Hefur leikið 20 lands ieiki. Nikola Hasan, 25 ára gamall vél fræðingur. 3. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.