Alþýðublaðið - 09.11.1967, Side 13

Alþýðublaðið - 09.11.1967, Side 13
INGMAR BERGMANS FBRSTE LYSTSPIL I FARVER 7BLADE /ENKER fOR MT IHTE TAIA OM AUA DESSA KVINNOR HARRIET ANDERSSON BIBI ANDERSSON EVA DAHLBECK JARL KliLLE Allar þessar konur Skcmmtileg og vel leikin gam j anmynd. Sýnd kl. 9. BÍLAKAUP 15812 — 23900 Höfum kaupendor aH fleat- um tegundum og árgerðum af nýlcgum blfrelðum. Vlnsamlegast látlð skrá bli- reiöina sem fyrst. BÍLAKAUP Skúlagötu 55 við Ranðari Símar 15812 - 2390». ÓTTAR YNGVASON héraðsdómslögmaður MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA BLÖNDUHLfÐ 1 • SÍMI 21296 ÖKUMENN Látið stilla í tíma. Hjólastillingar Mótorstillingar Ljósastillingar Fljót og örugg þjón- usta. BÍLASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32 Sími 13-100. ÖRI Christina Lafferty: AGAVAI DIIR U l\ L 23 . n VJ n V n L 1/ U i\ ir hennar hafði ekki hagað sér eðlilega frá því að þau David komu heim um kvöldið og það merkti það, að þau hefðu áform- að eitthvað og að Janice hefði reynt að villa um fyrir Meg með því að gera sér upp kæruleysi. Sama kvöld sá Meg að hann var óvenjulega spenntur eins og hann biði einhvers. Þau sátu saman í setustöfunni og lásu og Anna sat inni hjá þeim með prjónana sína. Loks reis Anna á fætur. — Ég ætla að hátta, Meg. — Ég líka. David leit á klukkuna og Meg sá, hve spenntur liann var. — Ég held að ég fari í gönguferð áður en ég sofna. Meg hugsaði og hugsaði. Hún var sannfærð um að þetta yrði engin venjuleg gönguferð. Hvað ætlaðist hann fyrir? Hún beið, þangað til Anna hafði lokað, þá læddist hún nið- ur. David hafði farið út skömmu áður en hún sá hann ganga yfir hæðina að steinnámunni. Hún var sannfærð um að hann ætlaði að hitta Janice. Hann þurfti að fá eitthvert ökutæki, ekki hafði hann keypt sér bíl og það voru margir vörubílar við námuna. Hann ætlaði án efa að taka einn þeirra og nota hann til að hitta Janice. Meg opnaði dyrnar og hljóp á eftir honum. Heiðin var óhugnanleg í tunglsljósinu og Meg læddist á- fram eftir stígnum unz hún vissi að runnarnir myndu varna David að sjá hana. Hún sá að hann gætti sín jafn vel og lnin. Hann leit marg sinnis umhverfis sig og það var hrein tilviljun að hann sá hana ekki. Hún horfði á hann úr góðu skjóli við skrifstofubygginguna og eins og hún hafði átt von á, gekk hann að vörubílunum, En henni til mikillar undrunar settist hann ekki í einn bílinn og ók af stað, heldur lyfti hann upp segldúknúm, sem var yfir þeim og rannsakaði vörurnar, sem voru á pallinum. Meg vissi að á bílunum voru steinblokk- ir sem átti að flytja daginn eft- ir — það hlaut hann að vita líka. Hann hikaði um stund, síðan gekk hann yfir að þeim hluta námunnar sem járnbrautartein- ar voru við. Það biðu vagnar líka hlaðnir af steini, sem átti að senda með vöruflutningalest. Hann leit inn í vagnana og svo fór hann aftur að vörubíl- unum og byrjaði rannsókn sína á nýjan leik. Meg heyrði hann andvarpa, en svo tók hann stein- blokkir af bílnum og benti þeim á jörðina. Hvað var hann að gera? Það var áreiðanlega ekkert sem Jan- ice viðkom og Meg var of for- vitin til að finna, hve mjög henni létti við þá tilhugsun. Nú lædd- ist liún nær. Hann var búinn að laka marga steina af bílnum, þegar Meg heyrði hann gel'a frá sér sigri- hrósandi óp meðan hann lyfti upp stórri pappaöskju. Hún þurfti ekki einu sinni að hugsa um, hvað væri í öskjunni, því hann tók upp vasaljós og lýsti á hana. Sígarettur. .... Stolnar sígarettur! — Hún mundi eftir því, að hún hafði lesið frétt um sígarettur í dag- blöðunum. Vörubíl hafði verið stolið nálægt Polzennor og hann hafði haft meðferðis sígarettur, sem kostuðu fleiri þúsund pund. Hún hafði alltaf vitað að hann var afbrotamaður, en nú, þegar hún sá sönnun þess, greip ör- vænting hana. Ilún leit aftur á vörubílinn, liún vissi ekki hvort hann tilheyrði steinnámunni eða ekki, því að liún vissi ekki, hve margir bílarnir voru, en þeir voru líka allir ósköp venjulegir vörubílar. Allir vörutíílar eru líkir, hugsaði hún. Það er auðvelt fyr- ir bílþjóf að aka honum að stein- námunni, leggja honum nálægt hinum vörubílunum og stafla fá- einum steinum ofan á pallinn til að hylja farminn. En vitan- lega þurftu þeir að hafa ein- hvern vitorðsmann á staðnum og þar kom David Carew til sögunnar. Hvernig losnuðu þeir við þýf- Hagkvæmt verð HÚS OG SKIP Laugavegi 11. ið? hugsaði hún, en svo minnt- ist hún þess að David hafði ver- ið að líta á járnbrautarvagnana. Vitanlega! Þeir fluttu bara þýf- ið yfir í járnbrautarvagnana og það lék enginn efi á því að ein- hver myndi aðstoða þá við af- hleðslu farmsins í London. Nú beindist athygli hennar aftur að David, sem var búinn að taka fleiri sígarettulengjur af bílnum, en hann bar þær allar að námunni. Meg elti hann. Hún gætti þess alltaf að til hennar sæist ekki. Hún sá hann líta hugsandi á kranann, en svo virtist hann hætta við að nota hann, því að hann lyfti kassa á öxlina og gekk niður stigann í námuna. Skömmu seinna kom hann upp til að sækja meira. Meg varð rugluð. Hvers vegna faldi hann sígaretturnar í nám- unni? Því setti hann þær ekki í járnbrautarvagnana? Kannske á- leit hann að það væri öruggara að bíða til morguns, en þá gat hann falið sígarett.urnar inn á milli steinblokkanna. En þá varð Fljót afgreiösla hann að leiða athygli mannanna frá sér. Nú kom David aftur að sækja sígarettur og þá varð aðeins einn kassi eftir. Meg sá enga ástæðu til að hanga þarná lengur. Hún læddist burtu. Það var ekki að undra, að hann vildi eignast Polzennor, — hugsaði hún. Það var ekki eign- in sjálf heldur náman, en þar var auðvelt að fela stolna hluti. Var það ástæðan fyrir því, að David Carew kom til Polzennor? Nei, það gat ekki verið, en það var sennilega ástæðan fyrir því, að hann hafði ákveðið að vera um kyrrt. Hann hlaut að hafa séð möguleikana sem náman bauð upp á og hann hafði notfært sér það leynitak, sem liann hafði á föður hennar til að neyða hann til að sjá um, að honum yrði ekki vísað á dyr. TRÉSMIÐJA Þ. SKOLASONAR Nýbýlavegi 6 Kópavogi sími 4 01 75 Auglýsið í Alþýöublaöinu Áskriftasími Alþýðublaðsins er 14900 HÚSBYGGJENDUR - HÚSEIGENDUR OSTA eldhúsinnréttingar fást nú hjá okkur. — Nýtt sýnishorn af hinni ódýru OSTA-LIPP innréttingu á staðnum. Seljum FORMAT innréttingar sem fyrr, algeng- ustu gerðir afgreiddar tafarlaust af lager. 9. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ |3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.