Alþýðublaðið - 09.11.1967, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 09.11.1967, Blaðsíða 15
Bækur. Framhald af 5. síðu. Jóhann Hjálmarsson er af yngstu kynslóð íslenzkra skálda, þeirra sem eru vaxin upp í borg, eftir bæði formbyltingu ljóðsins og lífsháttanna á íslandi. Lands- lag borgarinnar er náttúrlegt ljóðum hans, en ekki Reykjavík- ur fremur en annarra borga, ís- lands fremur en útlands; ljóð hans eru sprottin af almennri ljóðrænni tilhneigingu og til- finningum fremur en áskapaðri þjóðlegri kveðskaparhneigð. Það væri full-mikið upp í sig tekið að kalla Jóhann frumlegt skáld enn sem komið er, flest ljóð hans gerast ennþá á víðavangi skáldlegra hughrifa, skynjana tilfinninga þar sem hver þiggur af öðrum, en jafnframt sanna þau það að ástundun skáldskap- ar með alúð og einlægni er vís- asti vegurinn til árangurs. Hið hreinlega, ópersónulega landslag í Ijóðum hans kann senn að taka á sig sérstakara svipmót. Bók Jóhanns Hjálmarssonar er snyrtilega gerð í sömu sniðum og aðrar bækur sem Almenna bóka- félagið gefur út í nafni Bóka- verzlunar Sigfúsar Eymunds- sonar. Kápa Eyborgar Guðmunds- dóttur er með snotrustu verkum hennar sem ég hef séð. — Ó. J. Esóp. Framhald af 5. síffu. Oftlega sökin aumingjanna er þess háttar, að þeir reynast minni máttar; mun það nægja til vansáttar; ’ illt er sig fyrir illum manni að verja. Önnur sú, ef orð til bata eitt sér mælir, munu þá verða að hopa á hæli; en hægt er gegna stúmum þræli; illt er sig fyrir illum manni að verja. Soddan úlfa sjáum vær að sönnu marga, sem því með valdi og vél- um farga, er vesalingum er til bjarga; 'illt er sig fyrir illum manni að verja. Áhugamönnum um þjóðfélags- ádeilu og uppreisnarhug kann að þykja matur í þessu. Og í kvæði um freyjurnar og konung þeirra • má sjá’ tekið í sama streng;, froskunum í tjörninni leiðist sjálfræðið og kalla yfir sig eina óstjórn annarri verri: Ærinn veit á ófagnað, þá undirgefnir gjöra það að heiðra ei þann sem hóft fer að í herradæmi sínu; illt er að hafna yfirvaldi sínu. Annað fá þeir yfirvald, sem ekki kemur betur í hald, og munu játa maklegt gjald, þó mæti af því pínu; illt er að hafna yfirvaldi sínu. Og kvæðið um asnann kemur enn að þeim lærdómi að yfirvöld geti einungis verið ill; barátta asnans fyrir bættum lífskjörum, eins og það mundi heita á nú- tímamáli leiðir hann undir æ þyngra þrældómsok. Af því leið- ir kenning kvæðisins: Yfirvöldin ættu menn með undirgefni að líða: bágt er á móti broddunum að stríða. Ef náðugt ekki nægist þér, nökkru seinna trúðu mér, þig mun ske hvað þyngra er; þessu megum hlýða; bágt er á móti broddunum að stríða. í Góðan seinna gjörir hinn, gá þess muntu, húsbóndinn, kóngsins þjón og kramarinn, klerkar og so víða; -bágt er á móti broddunum að stríða. Vit, að allir vegir manns í valdi standa drottparans; skeður þetta að skikktm hans; skyldum vér því hlýða; bágt er á móti brodduúum að stríða. $ En hvaða lestrarlag eða út- legging sem menn kjósa að við- liafa við kvæðin er gaman að fá þau í hendur í þessari snotru útgáfu. Um séra Guðmund er þess getið að hann hafi jafnan ort nokkuð hvern dag, og getur nærri að svo léttkvæður maður kveður ekki allt jafn-snjallt. Það er þó gáta mín að lesendur hafi lieldur meira gaman en minna af sögunum í þessari gerð en „trúrri” þýðingu en þau munu teljast. Eins og sögurnar sjálfar upprunalega ^vitna kvæðin, kvæðalagið sjálft um heim þar sem öllum hlulum var skipaður staður, heim sem stóð kyrr, og var því í hverri grein öndverður okkar eigin heimsmynd hvort sem hún reynist nú réttari þeg- ar til kemur. En hér er þessi al- þýðlega heimspeki heimfærð ís- lenzkum menningarheimi sem einnig er liðinn undir lok. Ó. J. svo miklu leyti sem það væri unnt, þannig að öll kurl mættu til grafar koma. Logi kvað það nú vera yfir- valdanna að svara til um, hver yrði næsti þáttur málsins. Bjarg. Fran-hald af 1. síffu. Fréttamaður Alþýðublaðs- ins spurði því næst bæjarfó- geta, hvort spurning eins dag- blaðsins í Reykjavík því að lút andi, að Logi Guðbrandsson, lögfræðing ráðunaut starfs kvenna að Bjargi hafi kært meðferð bæjarfógeta Hafnar- fjarðar á málinu, hefði við rök að styðjast. Bæjarfögeti vildi engu til svara um þetta atriði og vísaði á Loga í því sambandi ef blaðið vildi fá svar við þess ari spurningu. Blaðið náði sambandi við Loga Guðbrandsson í gær- kvöLdi og spurði hann, hvort áðurgreind spurning væri á rökum reist. Vildi Logi lítið um málið segja. Kvað liann það ekki vera rétt, að hann hafi kært meðferð bæjarfógeta embættisins í Hafnarfirði á málinu. Hins vegar væri rétt að hann hefði óskað eftir, að málið yrði tekið til dómsrann sóknar. Sagði hann, að það væri vilji sinn, að fram færi vönduð rannsókn á málinu, að Fé hverfur. Framhald af 1. síffu. Snæhólm rannsóknarlögreglumann síðdegis í gær og spurði hann um gang rannsóknarinnar í Reykjavík, en Njörður hefur rann- sókn málsins í Reykjavík með hönd um. Hann kvað ekkert nýtt að frétta í málinu. Sagði hann, að yfirheyrslur hafi byrjað í málinu á þriðjudag og væri þeim haldið áfram. Fleira vildi Njörður ekki segja af málinu að svo stöddu. Rræla. Framhald af 1. síffu. ladað SV-tands. Hagnýting þess afla er ólyjnn. Heildarafli vertíð- a'-innar er nú orðinn 312,264 lestir og ráðstöfun hans þessi: lestir. í salt 29.435 (201.612 uppstn.) ‘ Hræðslu 275.085 f frystingu Í.084 T •'ndað erlendis 6.660 T.andað SV lands (verkun ókunn) 78 Á sarna ‘tíma í fyrra var heildar sflinn 576.058 og ráðstöfun hans Hessi: Iestir. -e-ávCn k7aflan T <=alt 55.904 (382.900 upps.tn.) T frvstingu 4.800 4 *"-æffsiu 515.354 Uelztu löndunarstaffir eru þess Seyffisfjörffur, 69.654 lestir, "ío-luf.iörffur 58.408, Ranfarhöfn «68. Neskaunstaður 32.651 og .'kjavík 28.183 lestir. Faxveiði. Framhald af 3. síffu. til 200 tonn. Óttast Norðmenn, að -ukning verði á þessari veiði á næstu árum. Samstarfsnefnd Alþjóðahafrann sóknarráðsins og Fiskveiðinefnd- ar Norðvestur Atlantshafsins um laxveiðar við Grænland vinnur að því að afla gagna varðandi lax •oiðar við Grænland og í heima löndum laxsins með það fyrir aug -’m að fá úr því skorið, hvort lax veiðarnar við Grænland rýri veið arnar í heimalöndunum, og ef svo °r. þá í hvaða löndum slíkt ger- ist og að livað miklu leyti í hverju landi. Eru slíkar niður- +öður nauðsynlegar, ef koma á v°nni á laxveiðar í sjó. 'Frá veiðimálaskrifstofunni). Þingvellir. Framhald af 2. síffu. staða í þjóðgarðslandinu sjálfu, en þeir bústaðir eru flestir frá eldri tíð. Auk greinaflokksins um frið un Þingvalla flytur þetta hefti Samvinnunnar fjölbreytt efni annað af margvíslegu tagi, þar á mpðal nokkur bréf sem eins- konar eftirhreytur við skóla- málagreinarnar i síðasta Sam- vinnuhefti. Bæjarstjórn. Framhald af 3. síffu. haldi af þessu fluttu bæjarfull- trúar Alþýðuflokksins tiilögu þess efnis, að bæjarstjórn mæltist til þess, að slökkviliðsstjóri sæi um, að slökkviliðið hefði a.m.k. eina slökkviliðsæfingu á ári í samráði við brunavarnaeftirlit ríkisins. Til laga þessi féll bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins ekki í geð. Töldu þeir, að með lienni væri ver ið að gera árás á slökkviliðsstjóra. Þetta töldu bæjarfulltrúar Alþýðu flokksins ekki rétt, heldur væri hér aðeins verið að skapa góða reglu í öryggismálum Hafnar- fjarðar og gæfu hinir tíðu og miklu eldsvoðar í Reykjavík tilefni til aukningar aðgæzlu í brunamálum. Þá spurði þeir fulltrúa meirihlut- ans, hvort meirihlutinn hefði lagt slökkviliðsstjóra bann við því að slökkviliðið héldi brunaræfingar. Þeirri spurningu var ekki svarað og tillagan um a.m.k. eina æfingu slökkviliðsins á ári felld af meiri hluta bæjarráðs. Hann telur því ekki þörf á að æfa slökkviliðið og er því ekki slökkviliðsstjóra að sakast um það. Þá gerðist það undir þessum umræðum, að Eggert ísaksson (S) fann sig tilknúinn til þess að setja ofan í við flokksbróður sinn Stefán Jónsson fyrir léttúðugt tal um svo alvarleg mál sem bruna- varnamálin væru. Aftur hitnaði í fundinum, þeg- ar Vigfús Sigurðsson (A) bað um að fá að heyra bréf, sem bæjar- stjórn hafði borizt frá iðnnemum í Hafnarfirði, en í því mótmælltu iðnemar því atferli meirihluta bæjarstjórnar að neita skólanefnd Iðnskóla Hafnarf jarðar um að taka á leigu húnæði undir verklega kennslu í skólanum. Bæjarritari las bréfið en Stefán Jónsson (S) brást hinn reiðasti við og fann bréfinu allt til foráttu og taldi helzt, að bréfið væri skrif að af Alþýðuflokknum. Aðalfundur Framhald af 3. síffii. átti F.H.K., en það var haldið á vegum Háskólans fyrir tilstilli menntamálaráðuneytisins. Sú breyting var gerð á lögum félagsins að aðalfundir verða framvegis haldnir í júnímáhuði, og auðveldar það félagsmönnum úti á landi að sækja þá. Erlendur Jónsson baðst ein- dregið undan endurkosningu og var Jón Baldvin Hannibalsson M.A. .kosinn formaður félagsins. Stjórnina skipa nú auk hans: Jón Böðvarsson cand. mag. varafor- maður, Hörður Bergmann B.A. ritari, Guðmundur Hansen B. A. gjaldkeri og Úlfar Kristmunds- son cand. theol. meðstjórnandi og Guðmundur Þorláksson mag- ister. Vetrarhjálpin Framhald af 2. síffu. hjón með mörg börn eða að fyr- irvinna á heimilinu á við veikindi að stríða. Loks eru svo einstæðar mæður, þ. e. ekkjur fráskildar konur og ógiftar mæður. Er þessi síðasttaldi hópur hópur stærs:tur. Verkefnið er mikið og þörfin er vissulega brýn. Vetrarhjálpin heitir því á alla borgarbúa að rétta sér hjálparhönd við þetta erfiða verkefni. Hún heitir á all- an almenning að láta ekki breytta söfnunaraðferð á neinn hátt skerða þátttöku sína. Framlögum er veitt móttöku á skrifstofu Vetrarhjálparinnar að Laufásvegi 41 eða á afgreiðslu dagblaða borgarinnar. Stjórn Vetrarhiálparinnar er’ þannig skipuð í ár: Séra Jón Þori varðsson, form.. Kristján Þor-1 varðsson, læknir og Þorkell Á. Þórðarson, fulltrúi. Framkvæmda stjóri er Miagnús Þorsteinsson. Kaupum hreinar léreftstuskur ( prentsmiðja ) Þökkum auðsýnda vinsemd, samúð, hjálp og góðvilja við and. lát og útför ÓLAFS ÓLAFSSONAR, bónda í Skálavík. Affstandendur. v 9. nóvember 1967 — ALÞÝÐUBLAÐI0 J5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.