Alþýðublaðið - 22.11.1967, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 22.11.1967, Blaðsíða 4
HAFNARFJÖRÐUR HAFNARFJÖRÐUR Bltstjórl: Benedlkt Grðndal. Slmar 14900—14903. — Auglýslngaslml: 14906. — ABsetur: AlþýBuhúsIB vl6 Hverflsgötu, Rvík. — PrentsmlOJn AlþýOublaBsIns. Slml 14905. — Askrlftargjald kr. 105.00. — t laui» ■ölu kr. 7.00 elntaklO, — útgeíandl: AlþýBuflokknrlnn. Gengisbreyting ÞEGAR RÆTT ER um gengi íslenzku krónunnar, verður að hafa tvö atriði í huga öðrum fremur. Hið í'yrra er verðlag á íslenzkum afurðum í markaðs- löndum okkar, en hið síðara er tilkostnaður við framleiðslu aíurðanna hér heima. Við getum lítil áhrif haft á verðlag afurða erlendis. Hins vegar ættum við að geta haft áhrif á fram- leiðslukostnað þeirra innaniands. Þegar framleiðslukostnaður verður meiri en verð vörunnar á erlendum markaði, er augljós hætta á ferðum, því ekki er hægt að reka megin atvinnuveg þjóðarinnar lengi með tapi. Þetta hefur oft gerzt á íslandi undanfarna áratugi. Hefur þá annað bvort verið gripið til niðurgreiðslu eða gengisbreytingar. Fyrri leiðin er sú, að ríkisvaldið leggur gjöld á þjóð ina og notar féð til að styrkja útflutningsframleiðsl- una. Gengisbreyting hefur ekki ósvipuð áhrif, því þjóðin greiðir meira fyrir innfluttar vörur, en út- ílytjendur fá meira fyrir afurðir sínar. Sá munur er hins vegar á þessum tveim leiðum, að gengisbreyting hefur mun víðtækari áhrif á ýmsum sviðum. Hún snertir til dæmis fjárhag ríkissjóðs og hefur lækkun krónunnar jafnan aukið tolltekjur ríkis ins til muna. Nú hlýtur að koma til athugunar hvort ekki er hægt að lækka tolla um leið og genginu verð ur breytt og þannig draga úr verðhækkunum á nauð synjavöru. Við það mundi þó tekjuaukning ríkis- sjóðs minnka. Það veldur töluverðum áhyggjum í sambandi við gengislækkun, að ýmsir aðilar skulda miklar fjár- hæðir erlendis. Tilfinnanlegast tjón af þessum sök- um bíða útgerðarmenn, sem nýlega hafa keypt báta frá Noregi eða öðrum löndum og hafa fengið erlend lán í því sambandi. Munu mörg skip verða fyrir 1-2 milljóna tjóni vegna lækkunar krónunnar. Þá er vit- að, að verzlunin hefur á síðustu árum tekið mikið af lánum til skamms tíma erlendis, eða fengið gjald- frest á vörum í nokkra mánuði. Mun þetta nema 7- 800 mihjónum króna og skapar alvarlegt vandamál I heild rnunu viðskipti bankanna við önnur lönd standa bannig, að Seðlabankinn hljóti nokkurn geng ishagnað. Einnig skapast gengishagnaður hjá þeim, sem eina birgðir útflutningsafurða, sem væntanlega verða seldar á hinu nýja gengi. Þ;’*ingarmest aí öllum afleiðingum gengisbreyting ar verða áhrif hennar á framfærsluvísitölu og við- brö'rð G'inbeeasamtaka til að verja afkomu fólksins. Mun ríHsstjórmn án efa lcggja meiri áherzlu á það en nokkuð annað að hafa samstarf við samtökin um að gera byrðar almennings eins léttar og framast er unnt. 4 22. nóvember 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIf) SPILAKVÖLD Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði verður í Alþýðuhúsinu í kvöld fimmtu dagskvöld 23. nóv. kl. 8.30 stundvíslega. ■fe Félagsvist. i? Kaffiveitingar. Ávarp: Vigfús Sigurðsson hæjarfulltrúi, flytur. ÍZ Myndasýning. Munið vinsælu spilakvöldin í Alþýðuhúsinu. Spilað á tveimur hæðum. Pantið aðgöngumiða í SÍMA 50499. Öllum er heimill aðgangur. SPILANEFNDIN. krossgötum ★ MILIL TÍÐINDI. Fall sterlingspundsins fyrir helgina þótti miklum tíðindum sæta hér . eins og annars staðar. Strax og fréttin barst til landsins settust regin öll a rökstóla og ihuguðu hvernig bezt yrði brugðist við hinum óvæntu atburðum. Fundir voru l.aldnir í ríkisstjórn og fjármálastofnunum, for- ustumcnn verkalýðshreyfingarinnar athuguðu sinn gangi. Vinnuveitendasambandið kynnti sér málið. Ekkj varð síður uppi fótur og fit hjá al- menningi í bænum. Hvar sem tveir menn hittust um helgina var fall pundsins umræðuefnið, — í heimahúsum, á götuhornum, í mjólkurbúðinni og strætisvagninum. alls staðar var málið tekið fyrir og rætt. Sýnt þótti þegar, að þetta myndi hafa þýðingarmikil áhrif á cfnahagsmál íslAndinga, enda barst fljótlega tilkynning um, að samkomu- lag lieíði orðið um að fresta útvarpsumræðum þeim, sem ákveðnar höfðu verið á mánudagskvöld- ið um ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál- um. Nýtt viðhorf hafði skapazt. ★ SKEIÐARÁRHLAUP í VIÐ- SKIPTALÍFINU. Það var þó ekki fyrr en á mánudags- morgun, sem áhrifanna fór að gæta verulega I bænum. Strax og búðir voru opnaðar sást, að bæj* arbúar reiknuðu með gengisbreytingu íslenzkus krónunnar og hækkuðu vöruverði. Óvenju margií voru á ferli og verzlunin örari en hún átti að sér að vera á þeim tíma dags. Þegar kom fram á' dag* inn færðist höndlunin öll í aukana og fyrirsjáan* legt var, að skeiðarárhlaup var í aðsigi í viðskipta* lííinu í bænum. Hvarvetna mátti sjá fólk á þön- um með fangið fullt af pökkum og pinklum og innkaupatöskurnar stóðu á blístri af offylli. Fólk keypti allt sem hönd á festi, frá eldspýtustokk cða sjónvarpi upp í bíl eða hús. Einhver hafði á orði, að réttast væri að kaupa búðarholuna með öllu tilheyrandi, jafnvel heilan kjörgarð, það munaði ekki um minna. j Svona getur Wilson kallinn sett allt á annan endann í heiminum með einu pennastriki. Jafnvel hér norður í hafsbotnum er allt á tjá og tundri að undanskildum gjaldeyrisdeildum bank- anna, þar sem ekkert gerist og allt er kyrrt eins og daginn fyrir sköpunina. Viðskiptaapparat lreimsins er merkileg maskína. — S t e i n n . wmmm Wiá —TCTfTBP—§ Kðiib MUNIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.