Alþýðublaðið - 11.02.1968, Síða 3
I
Hringur kóngsson og stjúpa hans, ævintýri. Teikning’in gerð árið 1945.
Hlutu viour-
kenningu
Á föstudag, afhenti Karl
F. Rolvaag, sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi,
þeim Sigurjóni Rist, for- r
stöðumanni vatnamælinga,
og Guttormi Sigurbjarnar-
syni, jarðfræðingi, skírteini
þess efnis, að þeir hefðu
lokið nómi á vegum Jarð-í
fræðistofnunar Bandaríkj-
anna. Fóru þeir til Banda.
ríkjanna á vegum Samein-
uðu þjóðanna til að kynna
sér nýjar mæliaðferðir og
aðrar nýjungar, sérstak-
lega með tilliti til vatna-
spáa.
Fékkst Sigurjón við al
menna vatnafræði, auk
stjórnunar og skipulags
Framhald 14. síðu.
Eysteinn hættii
\
Ólafur tekur vi
Skólasýning í
Ásgrímssafni
I DAG verður hjn órlega skóla
sýning Ásgrímssafns opnuð, og
hún er 5. skólasýning safnsins.
Tilraun Ásgrímssafns með sér-
staka sýningu sem einkum er ætl
uð skólafólki virðist njóta vax-
andi vinsælda. Hafa ýmsir skólar
sýnt mikinn áhuga á þessum sýn
ingum, og stuðlað að því, að nem
endum gefist tómstund frá námi
til þess að skoða listaverkagjöf
Ásgríms, 'hús hans og heimili.
■ Fyrirkomulag þessarar sýning
ar er með öðru sniði en áður hef
ur verið ó skólasýningum safns-
ins. í vinnusal Ásgríms eru ein
göngu sýndar myndir frá Húsa-
f elli; og er meginuppistaðan
Húsafellsskógur í margslugnum
ljós- og litbrigðum.
Seinni hluta æ.vinnar dvaldi Ás
grímur á Húsafelli nokkrar vik-
ur á sumri hverju. Síðast var
hann þar árið 1953. Og með allra
síðustu viðfangsefnum hans á
þessum slóðum, var birkiskógur-
inn í landi Húsafells, og urðu
þarna viss itré miklir vinir hans.
Málaðj hann þau í hinum ólík
ustu veðrabrigðum, en fróðlegt
er að sjá hvernig Ásgrímur túlk
ar sama viðfangsefnið við óHkar
aðstæður. í æviminningum sín-
um, sem Tómas skáld Gunnars-
son skráði^ segir Ásgrímur m. a.:
,,Mér fannst ég þekkja sum þessi
tré betur en sjálfan mig“.
Á sýningunni eru myndirnar
Þytur í laufi, Rok í Húsafells-
skógi, Nýlaufgað tré, Ljós og
skuggar í Húsafellsskógi. Einnig
Framhald á 15. síðu.
Mál Bandaríkjamannsins
úrskuröað í vikunni
Miðstiórnarfundur Framsóknar
flokksins hefur staðið yfir síð-
ustu tvo dagana og í upphafi
fundarins skýrði Eysteinn Jóns-
Þjóðdansa
sýningar
Danssýningar Þjóðdansafélags
Reykjavíkur verða í Háskólabíói
kl. 14 í dag og laugard. 17. ,:eb. kl.
14.30. Á efnisskrá eru þjóðdansar
frá 12 löndum og auk þess barna-
dansar. Einn af aðalkennurum
félagsins kom heim s.l. vor eftir
nokkurra mánaða dvöl í Banda-
ríkjunum og eru margir dansar
á sýningunni frá Norður og Suður
Ameríku.
Stjórnandi sýningarinnar er
Svavar Guðmundsson, einnig hef-
ir Helga Þórarinsdóttir æft nokkra
dansa. Helga Bjarnadóttir og
Jetta Jakobsdóttir hafa æff barna-
flokkana. Alls koma á þriðja
hundrað manns fram á sýning-
unni.
Elisha Kahn hefur útsett mörg
lögin og stjórnar undirleik. Marg-
ir nýir búningar hafa verið saum-
aðir, því eins og að venju verður
hver dans sýndur í viðeigandi
búningum. Yfirumsjón með bún-
ingum hefir Ingveldur Markús-
dóttir.
Styrktarmeðlimir og velunnarar
félagsins munu fjölmenna á þess-
ar sýningar, sem ávallt hafa ver-
ið vinsælar og fjölsóttar. ITpp-
selt er á fyrri sýninguna, en
eitthvað af aðgöngumiðum að
seinni sýningunni verður selt til
almennings við innganginn, nánar
í auglýsingum.
son frá því að hann gæfj ekkj
kost á sér áfram sem formaður
flokksins, og var raunar ivitað
fyrjrfram að Eysteinn hygðist
regja af sér formennskui við
þetta tækifæri. Þá baðst Sigur-
jón Guðmundsson einnig undan
endurkjöri sem ©ialdkeri Fram-
sóknarflokksins, en hann hefur
gegnt því starfi- um árabil.
Stjórnarkjör fór fram á mjð
stjórnarfundinum í gær, en Vegna
þess hve snemma Alþýðublaðið
fer í prentun á laugardöguin gef
ur það ekkj skýrt frá úrslitum
þess, en fullvíst var talið að Ól-
afur Jóhannesson prófessor, sem
verið hefur varaformaður ’ Fram
sóknarflokksins síðustu fimm ár,
yrði kjörinn formaður.
Eysteinn Jónsson, sem nu læt-
ur af formennsku í flokki ^sínum
hefur urr. meira en þriggja ára-
tugaskeið verið einn helzti for
ystumaður í íslenzkum stjórnmál
um. Formaður Framsóknarflokks-
ins hefur hann verið síðan 1962,
er hann tók við af Hermanni
Jónassyni, en áður hafði hann
um Iangt skeið verið varaformað
ur flokksins.
hjá múrurufn
Stjórnarkosning í Múrarafélagi
Reykjavíkur fer fram í dag milli
klukkan 13 og 22. í kjörj eru
tveir listar: A-listi, listi stJórnar
og trúnaðarmannaráðs, en á hon
um skipar Hjlmar Guðlaugsson,
formaður félagsins, efsta sæti,
og B-listi, borinn fram> af Berg
steini Jónssyni og fleirj og skip
ar Bergsteinn efsta sætið.
Alþýðublaðið hafði samband við
Baldur Möller, ráðuneytisstjóra
í Dómsmálaráðuneytinu í gær og
spurði hann, hvað liði máli Banda-
ríkjamannsins, sem fyrir nokkru
leitaði hælis hér á landi sem
pólitískur flóttamaður. Baldur
kvað ekkert nýtt hafa komið
fram í málinu enn. Áfram væru
í athugun ýmis lagaleg og milli-
ríkjaleg atriði, bæði hjá Dóms-
málaráðuneytinu og Utanríkis-
ráðuneytinu, málinu varðandi.
Ekkert benti til þess, að banda-
rísk stjórnvöld vildu fá manninn
framseldan.
Baldur kvað ekki vera á' rök-
um re^sR að Bandaríkjainaður
þessi væri pólitískur flóttamaður,
heldur væri hann liðhlaupi, og
væri mál hans því alls ekki stjórn-
málalegs eðlis.
Okkur er ekki kunnugt um
neina samninga á milli Norður-
landa og annarra ríkja varðandi
frams^l erlenura liðhlaupa, sagði
Baldur. Hins vegar eru sérstakir
samningar á milli Breta og Banda-
ríkjamanna í þessu efni.
Mál Bandaríkjamannsins er því
spurning um landvistarleyfi. Ef
hann væri hins vegar pólitískur
flóttamaður, hefði mál hans feng-
ið miklu hraðari afgreiðslu.
Að lokum sagði Baldur Meller,
að búast mætti við, að mál þetta
yrði ráðið til einhverra lyktá í
næstu viku.
11. febrúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐfO 3