Alþýðublaðið - 09.05.1968, Side 3

Alþýðublaðið - 09.05.1968, Side 3
Hinn nýi ambassador Belgíu lierra L. A. Van den Berglie afhcnti í dag forseta íslands trúnaðarbréf sitt við hátíðlega athöfn á Bessa- | stöðum, að’ viðstöddum utanríkisráðherra. Nýtt kvikmyndahús er rúmar 73 gesti ---—----♦ SKIPAÐUR Steindór Steindórsson settur skólameistari Menntaskólans á Akureyri hefur í dag verið skipaður í það embætti frá 1. þ.m. að telja. Menntamálaráðuneytið, 8. maí 1968. NÝTT KVIKMYNDAHÚS hef- ur tekið til starfa í Reykjavík, L i 11 a - B í ó , Hverfisgötu 44, á móti norska sendiráðinu. Litla Bíó er ætlað að sýna kvikmyndir, sem hin bíóin treysta sér aí einhverjum ástæð- um ekki til að sýna, livort sem það er af fjárhagsástæðum eða öðrum. Gat Þorgeir Þorgeirsson, sem starfrækir Litla-Bíó að hlut- verk þess væri að sýna kvik- myndir kvikmyndarinnar vegna og vel mætti hugsa sér að á vegum bíósins væri starfandi kvikmyndaklúbbur, sem tæki upp þráðinn, þar sem Filmía hætti og gætu þá jafnframt far- ið fram umræður að sýningum loknum. Verður leitazt við að sýna vandaðar, erlendar kvik- myndir, en auk þess verða sýnd ar innlendar kvikmyndir upp- fylli þær sett skilyrði. Litla-Bíó rúmar 73 í sæti. Á j sunnudag verða haldnar fjórar & sýningar, kl. 4, 6, 8 og 10. , Þorgeir Þorgeirssí u er Framhald á 14. síðu. FLOKKSSTARFIÐ AlþýSuf lokkskon u r! Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík heldur fund í kvöld 9. maí kl. 8,30 í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu- . Fundarefni: 1. Félagsmál. 2. Spilað Bingó. Konur: Fjölmennið og takið með ykkur gesti- — Stjórnin. HAFPÐRÆTTI REYKJAVÍKHBBEILDAB RAUÐA KROSS ÍSLANPS Yúuúngur Mercedes Beaz a& verðnucli 430 fiús. VERÐ KB. 100,00 DJREGIÐ 16. JÚNl í/ppRsingar R.K.I. s'mi 10093 Lokasókn fyrir -daginn Um þessar mundir er að Ihef j'ast lokasókn Fram- kvæmdaneíndar H-umferðar vegna umferðarbreyt- ingarinnar 26. maí. Bæklinum „Hægri umferð“ verð ur dreift inn á sérhvert heimili á landinu. Dagana 9. -22. maí verða haldnir 90 fundir í bæjum og sveit- um landsins og verður fjallað um hægri umferð. Um ferðarfræðsludagar verða í skólum landsins tvo síð- ustu daga fyrir breytinguna og sjálfvirkur símsvari gefur ýmsar upplýsingar. Þá hafa verið gefnir út upplýsingamiðar fyrir útlendinga. Bæklingurinn „Hægri um- ferð“ skiptist í tvo megin þætti, annars vegar er fjallað um breytinguna sjálfa og fram kvæmd hennar og hins vegar eru ráðleggingar til vegfarenda. Kaflar í fyrri þætti bæklings ins eru þessir: Umferðarbann, Bifreiðastöðui’, Umferðarstöðv- un, Ekið af stað í hægri um- ferð, Ný og breytt umferðar- merki, Hraðatakmai’kanir, Eftir lit og leiðbeiningar og Áminn- ing um hægri umferð. Seinni þátturinn skiptist í eftrfarandi kafla: Umferðaraðstæður, Gang andi vegfarendur, Börnin í hægri umferð, Hjólreiðamaður inn, Ökumaðurinn, Umferðar- rnerkin, Stigið út úr bifreið, Fatlaðir í umferðinni, Alþingi og hægri umferð, Starfið í vor, Heilræði, Hestamenn og Akstur dráttavéla. Bæklingurinn er greinargóð- ur og með fjölda mynda. Er fólk hvatt til að varðveita hann og lesa oft yfir. Dagana 9. - 22. maí efnir Framkvæmdanefnd hægi’i um- ferðar í samvinnu við umferð- aröryggisnefndir viðkomandi staða til níu funda um hægri umferð, víðsvegar úti á landi, í þæ.ium og sveitum. Erindrekar Framkv’æmdanefndarinnar og aðrir starfsmenn hennar mæta á fundum þessúm og sýna mvndir um umférðarbreyting- una og þær varhugaverðu um- ferðaraðstæður sem skapast. Á fundum þe=sum gefst fólki kostur á að koma með fyrir- spurnir í samba'ndi við um- ferðarbreytinguna og hegðun í hægri umferð. Eitt hundrað umferðarörygg- isnefndir era nú starfandi úti um land. og samtals era í nefnd um þessum 625 manns —- allt s.iálfboðaliðar. Hafa sumar nefndirnar verið mjög starfsam ar og unnið mikið að umferðar málum síðan þær voru stofnað ar á liðnum vetri á vegum Slysavarnarfélags íslands. Umiferðarverðir verða starf- andi á H-daginn og fyrstu vik una eftir H-dag á ca. 20 stöð um á landinu. Umferðarv’erðirn ir eiga að vera gangandi fólki til leiðbeiningar og aðstoðar í umferðinni, auk þess sem þeir eru lifandi áminning um hægri umferðina. Verða umferðarverð ir auðkenndir sérstaklega, og fá að launum happdrættismiða og viðurkenningarskjal fyrir sjálf boðaliðastarfið frá Fram- kv’æmdanefnd hægi’i umferðar. Sjálfboðaliðar skulu láta skrá sig á lögreglustöðvunum í R-vík og hjá Umferðarnefndinni. Tvo síðustu daga fyrir um- ferðarbreytinguna og dagana eft ir verða umferðarfræðsludagar í skólum landsins. Verða nem- endur þá boðaðir í skólana einu sinni til tvisvar og fá þeir þá leiðbeiningar og tilsögn í hægri umferð. Þá verður þessa sjímui daga skólaútvarp, með líku sniði og var í vetur. Sjálfvii-kur símsvari, Ungfrú „H“, verður tekinn í notkun núna um helgina. Verður þar að fá ýmsar upplýsingar um um- ferðarbreytinguna. Símanúmer- ið verður 8-3600. Frá og með 11. maí vei-ða á degi hverjum fimm mínútna fræðsluþættir um umferðar breytinguna í útvarpi og sjón- varpi, og verður þar fjaUað um umferðarbreytinguna og ýmsar öryggisráðstafanir. Gefnar hafa verið út þrenns konar upplýsingamiðar fyrir út- lendinga. Er þar um að ræða miða fyrir útlendinga sem koma hingað á tímabilinu frá 10. maí til 26. maí, miða fyrir útlendinga sem koma hingað eft ir H-dag og þriðji miðinn er fyrir útlendinga sem staðsettir eru hér á landi. Þá hefur verið Framhald á 14. síðu. Enginn stenzt slíkt harðæri til lengdar Borgarfirði eystra, Hér fyllti allt af hafís þann 27. apríl. Fyrstu dagana á eft ir var nokkur hreyfing á ísn- um, en nú síðustu dægrin haf þök, svo langt sem augað eyg ir. Vakir sem voru í hafísn- um hafa lagt þykkum ís. Hér snjóaði mikið fyrir. mánaða- mótin og mánudaginn 29. apríl var hér blindbylur og lxvassviðri af norðri. Gerði þá alla vegi ófæra. Vegurinn til Héraðs var opnaður laust eft- ir mánaðamótin, en lokaðist samdægurs vegna skafrenn- ings. í dag er verið að opna veginn yfir Vatnsskaró. ---------------------,------4 Hér er allt undir snjó og sér ekki á dökkan díl í byggð, en til fjalla hefur sums stað- ar rifið af. Ekki verður sagt að útlitið sé gott, enda dauít hljóð í mönnum. Bændur voru heldur illa heyj aðir í haust, en með mikilli fóðurbætisgjöf hafa þeir spar að mikið hey í vetur og eiga því vonum framar af fóðri. Hins vegar stenzt enginn slíkt harðæri til lengdar. í morgun lagði héðan af stað jarðýta með fóðurkorn á sleða áleiðis til Húsavíkur, en þáð er eina víkin, sem byggð er á milli Borgarfjarðar og Loð- mundarf jarðar. Núna undir kvöldið virðist lítils háttar hreyfing á ísnum og hefur opn azt læna þvert yfir fjörðinn. SÓP. Rauði krossinn efnir til skyndihappdrættis Reykjavíkurdeild Rauða kross - Mercedes Benz 220 af nýjustu íslands efnir um þessar mund- > gerð. ir til happdrættis til ágóða 1 Nú kunna einhverjir að fyrir fjölbreýtt starf sitt hér spyrja, hvað hefur Rauði kross í höfuðborginni. Vinningur er Framliald á bls. 14 9. maí 1968 ALÞÝBUBLAÐIÐ 3 ),

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.