Alþýðublaðið - 10.05.1968, Síða 1

Alþýðublaðið - 10.05.1968, Síða 1
Föstudagur 10. maí 1968 — 49. árg 80. tbl. Morðvopnið, sem Gunnar V. Frederiksen notaði, er hann myrti Jóhann heitinn Gíslpson, var skammbyssa af grerðinni „H.I. Standard", 22 kalíber, 9 skota. Byssa þessi var ekki á skrá lögreglunnar. Hefur henni því verið smyglað t’il landsins. Aldrei eru veitt leyfi fyrir slikum byssum sem þessari og eiga því ekki að vera til í höndum manna hér á land'i. Ekki er að fullu ljóst, hvort Gunnar var eigandi byssunnar eða ekki. Hann viðurkenndi skömmu eftir liandtöku að hafa fengið byssuna „til umráða“ hjá manni einum her í borg- inni fyrir alllöngu síðan. Við eftirgrennslan kom í ljós, að byssan var ekki á skrá lög reglunnar hvorki á nafni Gunnars eða fyrri liandhafa hennar. Fréttamaður átti stutt við tal við Bjarka Elíasson yfir Iögregluþjón í gærkvöldi og spurði hann, hver refsing væri fyrir ólöglega sölu skot vopna. Kvað hann menn venjulega í slíkum tilvikum vera dæmda „fyrir ólöglega meðferð skotvopna", en auð vitað skæri dómari úr því hverju sinni, hve alvarlegt brot’ið væri. Sagði Bjarki, að ekki væri neitt vafamál, að fyrri hand hafi morðvopnsins væri sek ur, í fyrsta lagi fyrir að hafa und’ir höndum ólöglegt skotvopn og í öðru lagi að selja eða afhenda öðrum ó- löglegt skotvopn. Framhald á bls.10. Flugstjóri réðst inn á heimili fyrrverandi yfirmanns síns og skaut hann með skammbyssu Hér var morðið framið, að Tómasarhaga 25. Örvar sýna útidyrnar .er Gunnar brauzt Snn um. Yfirmaður rekstrardeildar og tæknideildar Flugfélags íslands, Jóhann Gíslason, 43 ára að aidri, Gunnar V. Frederiksen. var skotinn til bana í fyrrinótt. Ódæðisverkið framdi fyrrverandi flugstjóri hjá F- í., Gunnar Fred eriksen- Brauzt Gunnar inn í íbúð Jóhanns heitins að Tómasar- haga 25 í Reykjavík og skaut á hann fjórum skotum úr skamm- byssu, sem hann hafði meðferðis. Atburðurinn varð um klukkan hálf fimm. en lögreglunni var tilkynnt um vopnaða árás klukkan 04.35. Nokkrir lögreglumenn komu þegar á vettvang, en er þeir lcomu, lá Jóhann heitinn í blóði sínu á gólfi innri forstofu. Var hann þá enn með lífsmarki en lézt í þann mund, að komið var með hann á Slysavarðstofuna. Kona hans fylgdi honum þang að. Öll fjölskylda Jóhanns, eigin kona og fjögur börn voru heima, þegar ódæðið var framið. Gat hún skýrt frá því, hver ódæðis maðurinn væri. Ekki var um að villast, að morðinginn var Gunn ar Frederiksen, því að nann gleymdi hatti sínum í íbúðinni og var hann merktur honum. í þann mund, er leit hófst að morðingjanum, hringdi vakt- maður, í afgreiðslu Flugfélags íslands á Reýkjavíkurflugvelli í lögregluna og tilkynnti, að Gunnar Frederiksen væri bar á flugvellinum og segðist hann hafa framið morð og væru föt hans blóði drifin. Fóru lögreglu menn þegar í stað suður á flug yöll og handtó'-.u Gunnar þar. Hafði hann þá gert tilraun til að fela sig í kompu einni í af- greiðslunni. Þegar lögreglan fann Gunn- Jóhann heitinn Gíslason. ar, hafði hann sært sig með vasahníf á brjósti og stóð hníf urinn í brjósti hans. Við athug un reyndist sár hans aðeins grunnar skeinur. Gunnar sýndi ekki mótþróa, er hann var handtekinn, virtist hann nokkuð rólegur. Hann var augljóslega nokkuð undir áhrif um áfengis. Viðurkenndi Gunnar að hafa ráðið Jc\ianni bana. Kvaðst hann hafa verið við drykkju með félögum sínum fram eftir nóttu. Síðan hafi hann farið Framhald á bls.10. OLOGLEG BYSSA!

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.