Alþýðublaðið - 17.05.1968, Blaðsíða 12
LOFTÞETTAR UMBLÐIR
tmmÐ
Jói töffi keypti sér hasa trylli-
tæki um daginn, átta gata. Sá
varð spældur þegar hann fatt
aði að tækið eyddi svo miklu
af gasi að hann valla gat dræv
að á milli benzínstöðvanna.
Þegar unglingarnir eru sakað
ir um ýmsa óáran segja þeir
það engan geta furðað, því
eldra fólkið sé fyrirmyndin.
Hins vegar þegar við reynum
að kenna þeim góða siði hlusta
þeir varla á og segja þá gam
aldags.
ÍL uii.LíL-1
Sé hönr sett fyrir negan karn
ann, ge’fur hann frá sér
vatn.. . .
ALÞÝÐBLAÐIÐ.
Að mínu áliti eru hjónabönd
algjörlega óþörf. Að minnsta
kosti meðan maður hefur ein
hvern til að rífast við.
daglegi HAlístur
Pétur eða Páll?
„Hvort er ég heldur faann sem eftir lifir, eða hinn sem dó?"
Þessum furðulegu hendingum kastaði Steinn Steinarr fram
an í samtíð sem var faeldur en ekki lítið uppnæm fyrir svo
„abstrakt11 hjali um eilífðarmálin, en trúði jöfnum höndum á
holdgaða drauga og sjálfan pokurinn með hala og höni og til-
behör.
En viti menn að ég sé ekki betur, en að með þessum faend-
ingum, sé Steinn orðinn sá spámaður, sem obbinn átti ei von á.
Við faöfum nefnilega vanizt (því að dauður maður, sé svo
kirfilega dauður, að honum er holað umsvifalaust í mold undir
háítðlegu trommtrommi í dagblöðunum og eftir nokkur ár þar
í frá, er hann svo heiðarlega gleymdur í þeirri íslenzku önn,
að halda einhvernvegin'ri í blá skottendann á verðbólgunni.
En hvar stendur þá hundurinn í kúnni? Eru menn þá ekki
lengur dauðir, iþegar þeir eru dauðir? Eða er eitthvað annað
komið til? Er upprisan kannski í nánd?
Strangt til tekið er það ekkert af þessu, en þó er svo kom-
ið, að þótt auðvelt sé að sanná að Davíð hafi keypt ölið á
brunaútsölu, er alls ekki einhlítt að. sumir menn séu dauðir,
þrátt fyrir öll vottorð þar uppá.
Manni skilst að læknar skuli ekki gefa út dánarvottorð,
nema öndun sé ekki greinileg, sjáaldur svari ekki sterku ljósi
og hjartað sé stopp til frambúðar.
Og nú veltum við grjótinu ofan af fiskinum. Það er nefni.
lega farið að rífa hjartað úr mönnum við löglegt andlát þeirra
og láta það lemjast um í öðrum skrokki.
Nú myndi ég spyrja sem svo — ef ég væri dauður og hjarta
laus:
Nú hef ég (Pétur) vottorð upp á að ég sé dauður, en jafn-
framt hefur hjartanu úr mér verið plantað í Pál og hans
hjarta hent á haug. Hvor okkar er þá í rauninni dauður, ég
(Pétur), eða hann (Páil)?
M. ö. o.: Er hugsanlegt að með hjartaflutningi — einfaldri
skurðaðgerð — sé Páll orðinn að Pétri og þá jafnframt útrýmt
úr símaskránni?
Getur verið að Pétur lifi áfram í fyrrverandi Páli þrátt
fyrir gefið vottorð upp á heiðarlegt andlát? Og er þá hugs-
anlegt að Páll skili sér ekki á degi upprisunnar? Er ekki
beinlínis verið að vinna að þvj á vísindalegan hátt að rugla
eilifðina í ríminu og hvað getur hlotizt af slíku?
Geta ekki skapazt óteljandi og óútreiknanleg vandamál af
þessu afhæfi læknavísindanna? Hverjar verða t. d. afleið-
ingarnar fyrir Pál (Pétur), faafi Pétur verið drykkfelldur, en
Páll (Pétur) góðtemplari?
Hvaða skyldur faefur þá Páll (Pétur) að rækja gagnvart ekkju
Péturs ög börnum, þegar það kemur upp úr dúraum að £
■ rauninni er faún ekkja eftir HANN (Pál = Pétur)?
Þannig vakna spurningarnar, en sú er hyggja mín, að bið
verði á svörum, þó málið sé’ svo einfalt sem á undan er lýst.
Væri ekki ráð að slá saman kirkjuþingi og læknaþingi, þar
sem þetta mál yrði eitt á dagskrá og fulitrúum bannað að
slíta þinginu fyrr en rökrétt og faárrétt niðurstaða er fengin.
— Gaddur.
m' r Sá spaki
x l 1 tj 1 W Þó að það þyki kannski erfitt
í að segja alltaf það sem mað- ur meinar, er hitt þó enn erf iðara að meina alltaf það sem
I1 < U; v % maður segir. r
VINSÆLASTA PÍPUTÓBAK
í AMERÍKU.
Prince
Albert
REYKTÓBAK.
KARLMANNASKOR
FRÁ FRAKKLANDI, ENGLANDIOG ÞÝZKALANDI
Seldir mjög ódýrt - Verð frá kr. 393,-
428.- 486.- 498 577.- 589.- 637.-
652.- 671- 686
/ ...
Skóbúð Austurbæjar
' LAUGAVEGI100