Alþýðublaðið - 25.05.1968, Qupperneq 5
Sýningin íslendingar og hafið opnuð í dag:
STÓRFRÓÐLEG SÝNING MEÐ
ÞÁTTTÓKU 73 FYRIRTÆKJA
Sýningin íSLENDINGAR OG HAFIÐ verður opnuð
almenningi í dag kl. 10. og stendur til 12. júní.
Sýningin verður ekki framlengd. Á sýningunni eru
73 þátttakendur sem sýna allt hið helzta er varðar
íslenzkan sjávarútveg. Heildarsvipur sýningarinnar
er góður, og er óhætt að fullyrða að almenningur
mun hafa gaman af að skoða þessa sýningu.
Þessir l>rír lieiffursmenn eru vistmenn á Hrafnistu og munu þeir
Laugardalshöllinni. Þe!r heita allir Jónar, og er a kcmpur miklar.
Nær þriátíu ár eru liðin frá
því að siávarútvegssýningin
hefur verið haldin hér. Var sú.
sýning opin í tvo mánuði
vegna mikillar aðsóknar. t á-
varpi, sem Pét,ur Sisurðsson,
formaður sýninearnefndarinn-
ar, birtir í sýningarskránni,
segir hann að efnahagsörðug
leikar hafi dresið nokkuð úr
upphaflega áælaðri þátttöku.
í ávarpi Pét.urs Sigurðssonar
segir ennfremur:
Megintilgangur sýningarinn
ar er að kynna almenningi í
landinu hina margbættu starf
semi s.iávarútvégsins, gildi
hans fyrir þióðina og hvert
kapp hefur verið lagt á að
efla hann.
Sýnd er í stórum dráttum
þróun íslenzks sjávarútvegs
á liffnum árátugum og á
hvaða stigi hann stendur í
dag, t- d. hinu tæknilega
sviði, svo sem siglingatæki,
veiðarfæri og hjálpartæki til
veiðanna. Einnig hvaða þjón
usta er innt af hendi á mörg
um sviðum af hinu opinbera,
til að auka öryggi sjómanna,
auka aflann og tryggja gæði
þeirrar vöru, sem úr honum
er unnin. Þá er sýnt hvern-
ig uppbygging skipastóls og
fiskiðnaðar er grundvölluð
á starfsemi lánastofnana og
sjóða, Hversu víða kaupskipa
floti landsmanna flytur afurð
ir okkar og í hverju starfsemi
sölusamtakanna er fólgin,
enda er hér m. a. um sölusýn
ingu að ræða að hefur verið
leitazt við að vekja athygli
útlendinga á sýningunni með
auelýsingum eriendis.
Þá eru méðal þátttakenda
fjölmargir inhflyjendur ým-
issa rekstrarvara sjávarút-
vegsins ásamt innlendum
þjónustufyrirtækjum.
Eegert G. Þorsteinsson, sjáv
arútvegsmálaráðherra, sagði
m. a. við opnunina.
,.Engin þjóð á jafnmikið
undir neinni einni grein at-
vinnuvegar eins og Xslending
ar eiea. oe munu eiga um ó-
fyrirsiáanlega framtíð. undir
sjávarútveei. — Þjóðinni
ahr; er því bein lífsnauðsyn
að fá sem haldbeztar upplýs
inear og fræðslu um alla
þætti þeirrar starfsemi sem
á sér stað á hafinu og við
það.
Sýningin íslendingar og
hafið á að skapa landsmönn-
um möguleika á að kynnast
þessum mikilvægu málum í
sjón og raun.“
Einkunnarorð sýningarinnar
eru „Brimrúnar skalt kunna“
og eru gerð að fyrirmynd lodu
vísu Sigurdrífumála í Sæmund
ar-Eddu. Til frekari skýringar
segir svo í sýningarskránni:
„í upphafi sjóferða nor-
rænna manna var það þekk-
ing á rúnum, sem bjarga
skyldi „á sundi seglmörum“,
hinum seglbúnu hestum, skip
unum. Rúnirnar átti að rista
á stafn skipsins og stjórnblað.
Það voru brimrúnar og um
leið bjargrúnar, en einnig
varð að „leggja eld í ár“. í
þessum orðum geymist hinn
forni átrúnaður á verndar-
eldinn. Með því að marka
með eldi á tækl sín, bægðu
menn frá illvættum; og enn
tíðka sjómenn í Noregi
þetta.“
í sýningarskránni er löng
og fróðleg grein eíí:r Lúðvík
Kristjánsson er hann nefnir
Árin og seglin. Þá fylgir ítar
leg greinargerð með hverri
stúku á sýningunni og er ó-
hætt að segja að skráin veiti
mjög ítarlegar upplýsingar
um stöðu íslenzks sjávarút-
vegs í dag og upplýsingar um
ýnýs þjónustufyrirtæki er
standa sjávarútveginum
nærri.
Á virkum dögum er sýning
in opin frá kl. 14—22. Veit-
ingasalur rúmar í sæti um
200 manns. Kvikmyndasýning
ar í sambandi við sýninguna
verða í Laugarásbíó milli kl.
7—9.
Verndari sýningarinnar er
herra Ásgeir Ásgeirsson, for
seti íslands. Þess má geta að
bæði forsetaefnin voru við-
sýna sjóvinnu í kjallaranum
stödd opriun sýningarinnar i
gær.
Nánar verður greint frá ein
stökum atriðum sýningarinn
ar í næstu blöðum.
Á myndinni til vinstri er
Forseti íslands, ásamt ráð-
herrum og fleiri fyrir-
mönnum, að skoða eina
stúkuna á sýningunni að
lokinni setningarathöfn. Á
hinni myndini sjáum við
fallegt fley, €r nefnist Far
sæll, og er það fyrir utan
höllina rétt við aðalinn-
garig.
25- maí 1968
- ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5