Alþýðublaðið - 28.05.1968, Qupperneq 1
ÞriSjudagur 28. maí 1968 — 49. árg. 95. tbl-
Umferðarbreytingin tókst með ágætui
mm
\m m
Breytingin yfir til hægri umferðar hefur tekizt
mjög vel og ef til vill mun betur en bjartsýnustu
menn þoiðu að vona. Umferðin á sunnudaginn var
mjög mikil, enda munu flestir eða allir þeir, sem
gátu komið því við, hafa farið út í umferðina strax
á sunnudagsmorgun til að kynna sér nýjar og heppi |
legar ákstursleiðir og kannski ekki síður til þess að
æfa sig í hinni nýju og um margt breyttu umferð.
Slys urðu nær engin, hvorki á sunnudaginn né í gær
en nokkuð bar á að menn færu fullgreitt.
Samkvæmt upplýsingum
sem Upplýsinga- og fjarskipta-
miðstöð lögreglunnar hafði
fengið um kiukkan 18 í gær- ■
kvöld, hafði talsvert borið á
því, að settar reglur um öku-
hraða væru ekiti virtar og
gerði lögeglan bæði í Reykja-
vík og annas staðar á landinu
mikið af því í gær að mæla
ökuhraða bifreiða og annarra
ökutækja með aðstoð ratsjár
og á annan tiltækan hétt.
Um klukkan 18 í gær hafði
lögreglan stöðvað hvorki meira
né minna en 63 bifreiðir í
Reýkjavík og kært ökumenn
þeirra fyrir of hraðan akstur.
Auk þess höfðu lögreglumenn
á bifreiðum og bifhjólum
kært þá allmarga ökumenn
fyrir of hraðan akstur,
Sömu sögu er að segja frá
öðrum stöðum á Landinu. Á
Reykjanesbrautinni (Kefla-
víkurveginum) höfðu þá sex
bifreiðir verið stöðvaðar fyrir
of hraðan akstur frá því, að um
ferðarbreytingin hófst, fjórir á
sunnudag og tveir í gær. Allir
voru þessir ökumenn hátt yfir
hraðamörkunum og óku lög-
reglumenn fram fyrir þessar
b'Utreiðir á 80—90 kílómetra
hraða. Var bifreiðin tekin af
honum og sömuleiðis. Öku-
skírteini hans.
Ekki liggja fyrir tölur um
alla þá, sem stöðvaðir hafa
verið fyrir of hraðan akstur,
en þó er ljóst, að tala þeirra
er allt of há.
r
Féttamaður ræddi nokkur
orð við Arnþór Ingólfsson, sem
stjórnar Upplýsinga- og fjar-
skiptamiðstöð lögreglunnar
um þetta vandamál í gær.
Framhald á síðu 14.
Beð/ð með
óþreyju
Myndin hér að ofan var tek
in nokkru áður en umferðar-
breytingrin átti sér stað á
sunnudagsmorgun. Áhugasam-
ir ungir vegfarendur voru þeg
ar komnir á vettvang til þess
að taka þátt í breytingunní,
og biðu þess með óþryju að
tími yrði til að færa sig yfir
á hægri kantinn. Þetta veríia
án efa góðir vegfarendur í
hægri umferð,
Engar óeðlilegar um-
ferðartafir lengur
Á SUNNUDAG var umferð í
Reykjavík, óvenjumikil og mynd-
uðust víða miklir umferðartapp-
ar í borginni. Hins vegar gekk
umferðín miklu greiðar fyrir sig
í gær, og urðu hvergi verulegar
tafir, og munu sízt hafa verið
meiri en venjulega var á anna-
tíma fyrir breytinguna.
í stuttu viðtali, sem fréttamað-
ur Alþýðublaðsins átti við Arn-
þór Ingólfsson lögreghivarðstjóra
um sjöleytið í gærkvöldl, sagði
hann, að umferðin á annatímum
dagsins hafi gengið fyrir sig
mjög í sama dúr og venjulega á
virkum degi og verulegir umferð-
artappar hafi alls ekki myndast
og menn því komizt klakklaust
leiðar sinnar í umferðinni. Sagði
að aðeins eitt atriði skyggði á
umferðina í gær, en það væri
hinn hái f jöldi þeirra, sem teknir
hafi verið fyrir of hraðan akstur.
Annars kvað hann umferðina
hafa gengið mjög eðlilega fyrir
sig. Ekki hafi myndazt neinir
erfiðleikar á mesta annatímanum
eða í hádeginu.
Umferðarstraumurinn var óeðli
legur á sunnudaginn, sagöi Arn-
Þór, enda mikinn þátt f
umferðinni í leit að nýj-
um og heppilegum aksturs-
leiðum og til æfingar í hægri
umferð. í gær hafi umferðar-
þunginn á götum borgarinnar
verið hins vegar eðlilegur miðað
við virkan dag. Raunveruíegt um-
ferðaröngþveiti varð hvergi í
umferðinni í gær, enda löggæzla
mjög víðtæk, sagði Arnþór.
H-IiD SJONVARPS KOSTADI300.
H-TÍÐIN í sjónvarpinu á
laugardagskvöld tókst með á-
gætum, og mun almennt vera
talin langbezta skemmtiefni,
sem sjónvarpið hefur flutt. En
það var m’iklu til kostað, því
aS dagskráin í heild kostaði
um 300.000 krónur óg er lang
dýrasta efni sem framleitt hef
ur verið fyrir sjónvarp hér á
land’i
Framleiðsla á sjónvarpsdag-
skrá, sem eru samsettar úr
mörgum liðum, sýna marga
skemmtikrafta og nota margt
tónlistarfólk, eru mjög dýrir,
hvar sem er í heiminum. fs
lenzka sjónvarpið verður að
sníða sér stakk eftir vext’i í
þessum efnum og neita sér
um slíka framleiðslu að miklu
leyti. Dýrasti þáttur, sem áð
ur hefur verið gerður hér, var
fluttur síðastliðið gamlárskvöld
og kostaði um 100.000 krónur.
Venjulegir skemmtiþættir með
einni hljómsveit og söngvara
kosta 40-50.000 krónur.
Að þessu sinni var ákveðið
að kosta sérstaklega t’il , og
var það hægt af því að H-
nefndin hljóp undir bagga,
enda lagði hún blessun sína
yfir dagskrána. 'Hefur hún
fengið nokkuð fyrir sinn snúð
því að þessi dagskrá hafði án
efa míkil áhrif á 60-90.000
manns, er horfðu á hana. Hef
ur það sérs+aklega komið fram
í brosi fólks og þeirra stemn
ingu, sem var yfir H-deginum.