Alþýðublaðið - 29.05.1968, Blaðsíða 5
Islenzk abstoð
á Indlandi
Á DEGI Sameinuðu Þjóðanna
þann 24. október 1966 var geng-
izt fyrir almennri söfnun í fjöl-
mörgum Evrópulöndum til
hjálpar flóttafólki frá Tíbet, sem
þá' dvaldi við hinar hörmuleg-
ustu aðstœður í Norðurhéruðum
Indlands. Hafði fólkið unnið þar
við vegavinnu í 7 ár samfleytt
í mikilli eymd. Hlutverk Flótta-
mannasöfnunarinnar 1966 var að
afla nægilegs fjár, til þess að
hægt væri að veita þessu tíbezka
fólki varanlega lausn á vanda-
málum sínum.
Þann 10. marz 1967 kom hing-
að til lánds hr. Brouwer, fulltrúi
Flóttamannastofnunar S. Þ., og
í samráði við hann var ákveðið
að fé það, sem safnaðist á ís-
landi skyldi renna til uppbygg-
ingar trefjaglersiðnaðar í Nah-
an héraði á Indlandi, þar sem
Tíbetar höfðu fengið landsvæði
til afnota.
í viðtali við fréttamenn hér
í Reykjavík skýrði hr. Brouwer
svo frá, að lahdsvæði þetta væri
gjöf Indlandsstjórnar til flótta-
mananstarfsins, en þar hefðu
Tíbetar möguleika á að byggja
sér hús, rækta landið, og vinna
við léttan iðnað.
Að lokinni athugun af hálfu
S. Þ. kom í ljós, að heppilegt
yrði að koma á fót trefjaglers-
iðnaði í Nahan. Verksmiðju gætu
Tíbetar byggt sjálfir, og yrði
hún síðan samvinnufyrirtæki,
sem Tíebtarnir ynnu við. Geng-
ið var frá því strax, að fram-
leiðsiuvörur verksmiðjunnar, svo
sem baðker, vaskar, vatnsgeym-
ar, stólar o. fl. hefðu örúgga sölu
nokkur ár fram í tímann.
Vorið 1967 voru síðan 17 ung-
ir Tíbetar sendir til New Delhi
til þjálfunar í iðnaðar- og verk
smiðjuStörfum. Þessi þjálfun
tók rúma sex mánuði, en að þeim
Ioknum tóku þessir ungu menn
til við að kenna löndum sínum
þessi nýju störf í Nahan. Flótta-
mannastofnun S. Þ. réði svo dug-
mikinn framkvæmdastjóra, Mr.
Bawa, til þess að veita trefja-
glersverksmiðjunni forstöðu, og
skömmu síðar var verksmiðj-
unni valinn staður við Paonta í
Nahan. héraðj í Himachal Px-ad-
eshi-íki Indlands.
Um miðjan októbermánuð
1967 komu svo 500 Tíbetar til
Paonta í Nahan og hófu nær
samstundis störf við byggingu
verksmiðjunnar. Þegar byggingu
verksmiðjuhússins'var lokið, var
hafizt handa við byggingu fyrstu
íbúðai'húsanna.
Hr. Brouwer heimsótti Nalian
þann 24. marz s.l. til þess að
kynna sér framvindu mála þar,
og tók hann þá m. a. myndir
þær, sem fylgja hér með. — í
skýrslu sinni til Flóttamannaráðs
íslands segir hr. Brouwer m. a.:
„Það vakti sérstaka athygli
mína hve áhugasamir og dug-
miklir Tíbetarnir voru við bygg-
ingu húsanna. Þeir hafa setí sér
það takmark að ljúka við flest
húsin fyrir rigningartímann, sem
hefst snemma í júní. Það var
líka ánægjulegt að sjá það, að
landið hafði verið fullræktað.
Vetrar-uppskera hveitis, græn-
metis, og jarðepla var sönnun
fyrir mikilli og ötulli vinnu
þeirra.”
Framtíðarhorfixr Tíbetanna í
Nahan vii'ðast því bjai’tar. Áætl-
að er að 60 af 100 liúsum svæð-
isins verði tilbúin í júní, en end-
anlega verða þau öll byggð í
Framhald á síðu 14.
Ný fslhogun á útgáfu
Máls og menningar
0
r.Ji
FYRSTU TVÆR BÆKUR ÁRSINS
ERU KOMNAR ÚT
ÞORLEIFUR EINARSSON:
Jarðfræði. Saga lands og bergs
Bók þessi fjallar m.a. um verkanir jarðelds, jarðskjálfta, frpsts, jökla, vatnsfalla, vinds
og sjávar. — Lengsti kafli bókai’innar fjallar um jarðsögu íslands, gerð bergs, mótun
landslags, breytingar á loftslagi og gróðurfai'i. Bókin er jöfnun höndum hugsuð sem
handbók og yfii'litsrit við alþýðuhæfi. Hún er 335 blaðsíður, veglega úr garði gxrð,
með fjölda mynda.
HJALMAR BERGMAN:
/
Viðreisn í Wadköping
Skáldsaga. Njörður P. Njarðvík þýddi.
Hjálmar Bergman er einn hinn frumlega stir,I hópi sænskra sagnaskálda, og Viðreisn
í Wadköping (Markurells í Wadköping) einhver vinsælasta skáldsaga hans. Sögufólkið
í þessari bók er afar fjölbreytilegt og á, þann dag sem sagan gerist, Við ævintýraleg og
fráleit vandamál að etja, en er engu að síð ur trúir fullti'úar fyrir hinn tilbúna smábæ
Bergmans, Wadköping.
Félagsmenn
í Reykjavík vitji bóka sinna í Bókabúð Máls og menningar, Lauga-
vegi 18. Bækurnar hafa verið sendar umboðsmönnum úti um land.
Þrennskonær árgjald sem fclagsmcnn
gcta valið um:
a) Kr. 650,00: fyrir það fá félagsmenn Tímaritið og
tvœr bækur.
b) Kr. 1.000,00: fyrir þaö fá félagsmenn Tímaritið og
fjórar bækur.
c) Kr. 1.280,00: fyrir það fá félagsmenn Tímaritið og
scx bækur.
Fclagsbækur á árinu vcrða þcssar:
1) Jarðfræði, eftir Þorleif Einarsson.
2) Viðreisn í JVadköping, skáldsaga eftir
Hjalmar Bergman, þýdd af Nrrði P. Njarðvík.
3) Sagnaritun tslcndinga að fornu, eftir
Sigurð Nordal.
4) JVjj skáldsaga, eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson.
5—6) „Pappirsbökur“ 1.—2. Standaríkin og
Jiriðji bcimurinn eftir David Horowitz,
Inngangur að fclagsfræði eftir Peter L.
Berger.
Fclagsmcnn scm grciða árgjald a) eða b)
velja sér tvær eða fjórar af þessum bókum. Auk þess fá
allir félagsmenn í kaupbæti nýtt hefti af bókaflokknum
Myndlist: Paul Gauguin. Þeir sem kjósa bækurnar
bundnar þurfa ,að greiða aukagjald fyrir bandið, en
bækur 5)—6) og myndlistarbókin verða aðeins heftar.
Með þvi að reikna tímaritið sem eina bók kostar hver
bók (óbundin) félagsmenn tæpar 217 krónur ef þeir
greiða árgjald a), 200 krónur ef þeir greiða árgjald
h) og aðeins 183 krónur ef þeir greiða árgjald c), og
er þá myndlistarbókin ótalin. Verðið fer því lækkandi
eftir ]>vi sem teknar eru fleiri bækur.
29. maí 1968
ALÞÝÐLBLAÐIÐ 5