Alþýðublaðið - 18.08.1968, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 18.08.1968, Qupperneq 4
 SSSSSSSSKS! ■i :::: ■■■■■■■■■■■ í s: ■■ ■■ :: ■■ ■■ s: | :: ■■ :: *■ ■■ :: ■■ ■■ :: :: :: TVEIR SNJALLER PÁLL ÓLAFSSON og ÖRN ARNARSON eru báðir meðal kunnustu ljóðskálda íslenzkra, frábærir bragsmiðir og ágætir heimspekingar, hvor á sinn hátt. Ekki sízt eru stökur þeirra ýmsar mestu listasmíð ar, svo að ekki yrði um bætt, þó að stórskáld ættu hlut að máli. Visnaþátturinn er að þessu sinni helgaður þeim tveim, því að sjaldan er góð vísa of oft kveðin, eins og þar stendur. Um Ragnhildi konu sína, sem Páll skáld unni mjög, kvað hann margt forláta gott; meðal þess er þessi ágæta vísa; „Ástin þín er ekki dyggð, ekki skyida lieldur, hún er ekki heldur tryggð, hún er bara eldur.“ Og hér er önnur til þeirrar sömu: „Mjúkar hendur hefurðu, hálsinn minn þá vefurðu, góða kossa gefurðu, hjá gamla Páli sefurðu." Þá hefur Ragnhildur og ið fullsæmd af þessari: á hverjum degi hvolpatík, heldur en íslands pólitík." Og ekki má gleyma þessari snilldarstöku, þar sem hann á gamansaman hátt gerir lítið úr ver þingmannshæfileikum sínum (og annarra?): „Eins og gull af eigi ber, I eða sumar vetri, öllum konum ertu hér yndislegri og betri.“ Og þá er þessi ekki slorleg: „Þú hefur mig lúinn leitt, látið sól mér skína, árum saman blessun breitt og blóm 'á götu mína.“ J Skyldj annars nokkurt ís- lenzkt skáld hafa ort jafn vel og Páll Ólafsson? I Um þingmennsku sína, sem stóð reyndar harla stutt, kvað Páll þessa alkunnu vísu: „Heldur vildi ég hafa í barmi mínum VÍSNA-þáttur „Á alþingi sitja mér aldrei var hent og yrðast við spekinga slíka. Mig vantaði „talent" og „temp- erament" og talsvert af þekkingu líka.“ Um Ingibjörgu, vinnukönu sína, kvað Páll: „Ingibjörg er aftanbrött, en íbjúg framan. Skyldi ekki mega skera hana sundur og skeyta ‘ana saman?“ f Önnur vísa um sömu mann- eskju: „Svo hef ég líka lifað það, við lokum okkur inni. Þá fannst mér nú ekkert að Ingibjörgu minni.“ Um L. Popp, verzlunarmann á Eskifirði, kvað Páll svo: „Ég kann ei við að kalla hann Popp. Klerkur ætti að skíra hann upp úr heitum keytukopp og kalla hann heldur sykur- topp.“ ' Skyldi ekki í þessu felast dá góð mannlýsing? Páll kveður okkur að sinni með sannkallaðri bersöglis- vísu: „Aldrei bilar beinharkan í bes efanum. Ég hef gigt í útlimonum öllum, nema rétt í honum.“ Og víkur þá sögunni til Arn ar Arnarsonar, þess ljóðfræga bragsnillings, sem aldrei tókst eins vel upp og í ferskeytlunni. Bitra sjálfslýsingu má lesa úr eftirfarandi stöku: „Mér varð allt að ís og snjó. Oft var svalt í förum. Ekki skaltu undrast, þó andi kalt úr svörum .“ Við annað tækifæri orti Örn: „Hrekkvís kyndir heiftarbál. Hræsnin veður elginn. Aulabárði er alltaf mál orð að leggja í belginn." Og hér er enn ein: „Syngur klóin, kveður röng, kyngisnjóar heyja þing, klingir glóhærð kólguþröng kring um mjóan súðbyrðing." I Örn Arnarson kveður með eftirfarandi stöku, einni sinni allra beztu: \ „Vinsemd brást og bróðurást, breyttist ást hjá konum. Matarást var skömminni skást, skjaldnast brást' hún honum.“ (G. A. tók saman). :: :: ■■■■■■■■■■■■■■■ !■■■■■■■■■■! Afstaða kirkjunnar til óvígörar sambúðar Maður spyr: Hafa skoðanir kirkjunnar nokkuð breyzt með tilliti til sambúðar karls og konu, sem ekki liafa geng- ið í hjónaband? Ekki myndi jeg halda því fram, að stefn- an sjálf hefði breyzt í þessum efnúm, nema að því leyti, að ekki er gengið jafn-harkalega fram í því að hindra slika sam- búð, og áður fyrr. Dr. Björn Björnsson hefir leitt rök að því i doktorsrit- gerð sinni, að slík sambúð sem þessi sje sjer-íslenzkt fyrir- bæri meðal siðaðra manna. Á það rætur sinar til forns skiln ' ings á hjúskapnum, frá þeim tímum, að trúlofunin hafði meira lagalegt gildi en sjálf hjónavígslan. Samkvæmt gild andi lögvenjum nú á dögum hefir trúlofunin, sje h-ún gerð opinber, lagalegt gildi sem loforð um hjúskap, og sje trú- lofun riftað, getu-r sá aðilinn, sem svikinn er, h-öfðað skaða- bótamál, ef hann vill. Og það er ekki alveg dæmalaust, að kona, sem búið hafði með manni sem unnusta bans, gerði við sambúðarslit ikröfu til ráðskonukaups þau ár, sem sambúðin hafði staðið yfir. Sambúð trúlofaðs fólks hefir heldur ekki sama gildi og hjú skapur, þegar um er að ræða ógiftra persóna syndsamlega? sambúð. Eða svo að jeg forðist hið guðfræðilega orðtæki „synd.“, — að hvaða leyti er slík sambúð varhugaverð eða skaðleg? Auðvitað er hægt að benda á ótal mörg dæmi þess, að sam- búðin hafi gefist vel. „Sarna- sem-hjóni-n“ hafi- elskað hvort -annað, verið hvort öðru styrk ur í gleði og sorg, og alið börn Atma órabelgur Þú getvr ekki farið svona kámug á Landbúnaðarsýninguna, ViUa. 4 18. ágúst 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ sín upp með sóma. Þessu má alls ekki gleyma. En einhver ástæða hlýtur að vera til þess, að þjóðfélagið og sömu-leiðis trúfjelög hafa sett r-eglur um hjúskap. Það er,u settar regl- ur og boðorð um það, sem er þýðinganminna en stofnun heimilis. Og það ætti heldur ekki að líta á það sem smá- atriði, hvort fylgt er hjúskap- arreglum kristinna manna, hindúa eða Múhameðstrúar- man-na. Slík boðorð hljóta að fela í sjer, hvort hjúskapur- itin á að vera einkvæni eða fjölkvæni, á hvaða aldri fólk sje talið nógu þroskað til að eiga börn og sjá þeim far- borða. Ennfremur heils-ufars- leg skilyrði o.fl. Þeir, sem búa saman, án þess að ganga í formlegt hjónaband, hafa gert það, sem jeg kalla að greiða atkvæði á móti því, að form og reglur gildi um sambúð karls og konu. Þeir stuðla að upplausn og óreiðu, sem vel má vera, að þeim sjálfum sje þó þvert -um geð, ef þau tækju sig til, og skoðuðu málið frá hlið samfjelagsins. Eitt ©r það í þessu máli, sem jeg fyrir mitt' leyti hefi aldrei getað skilið, svo að jeg tali í fullri hreinskilni, Hvers vegna fólk vill heldur búa saman ó- gift en gift, ef þaff á annaff borff ætlar sjer aff búa saman til æfiloka. Nú hygg jeg raun- ar, aff skilnaffur sje mun al- gtJigari hjá „samasemhjónum“ heldur en vígðum lijónum, og stafai' þaff mefffram af því, aff æffi oft er tregffan til aff gifta sig fólgiu af duldrj löngun til aff geta hlaupið frá öllu sam- an, án þess að hægt sje aff segja, aff nokkrum komi þaff viff. Meðfra-m þesa ve-gna myndi jeg aldrei ráðleggja nokkurri konu að taka upp sambúð við mann, sem ekki vill giftast henni formlega. Ef hann „trúlofast“ henni, merk- ir það á siðaðra manna máli allt annað en vistráðning, og það er eitthvað aumku-narlegt við það, að maður skuli bjóða unnustu sinni ,upp á það ár eftir ár að vera titluð ,.bú- stýra“ eða „ráðskona", þegar börn þeirra eru skrásett í kirkjubækur, — ef hann á annað borð vill búa með henni sem eigin-konju. Engi-nn emb- ættismaður myndi skrifa í ' bækur, að foreldrar barns væru „samasemhjónin“ N.N. og N.N. — Jeg hefi stundum orðið þess var, að vottorð hafa 7 valdið leiðindum, -af því að I þau leid-du annað í ljós um sambúð karls og konu en jafn vel afkomendur þeirra höfðu haft hugmynd an áður. dr. Jakob Jónsson &ætt W8 pregt Um eitt skeið var mikið tal að um, -að skattalöggjöfin refs aði fólki fyrir að gifta sig. Jeg held, að þeim ósóma sje búið að kippa í lag, og finnist ein- -hver dæmi slíks, þarf að breyta löggjöfinni þegar í stað en ekki leysa eða afnema grundvallarstofnanir þjóðfje- lagsins. En hvað sem um það -er, ættu ,,samasemihjón“, sem þy-ki-r vænt hvor.u um annað og ætla sjer að búa saman, að ganga formlega frá sambúð sinni, en ekki að ýta undir glundroða, sem þegar er far- inn að -kom-a alvarlega niður á þjóðinni. •lakob Jónsson. EIRRÖR Kranar, fittings, einangrun o. fl. til hita- og vatnslagna. Burstafell byggingavöruverzlun Réttarholtsvegi 3. Sími 38840. SMURT BRAUÐ SNITTUR BRAUÐTERTUR BRAUÐHUSIP SNACK BAR Laugavegi 126, sími 24631,

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.