Alþýðublaðið - 17.10.1968, Síða 1
Fimmtudagur 17- október 1968 — 49. árg. 211. tbl
Á myndimú eru, talið frá vinstri: Sigurður Árnason, skipherra, Sigurjón Hannesson, I. stýri-
maður og Pálmi Hlöðversson, II. stýrimaður.
Fyrstu útlend-
ingarnir sem fá
þvílíkan heiður
Skipherra og stýrimenn varðskipsins Óðins
veittu í gær viðtöku heiðursorðum fyrir fræki-.
lega framgöngu við björgiun skipsmlanna af
brezka togaranum Notts County, en orðurnar
eru með æðstu heiðursmerkjum sem brezka
krúnan veitir fyrir björgunarafrek. Athöfnin
fór fram um borð í varðskipinu Óðni sem lá í
Reykjavíkurböfn, að viðstöddum tveimur ís-
lenzkum ráðherrum, eiginkonum þremenning-
anna og fréttamönnum. Sendiherra Breta á ís-
landi afhenti skipsmönnum orðurnar fyrir
hönd brezku krúnunnar.
Skipherra Óðins, Sigurður
Árnason, hlaut orðuna „THE
INSIGNIA OF AN OFFICEH
OF THE BRITISH EMPIRE”
og er ekki vitað að útlendingur
hafi hlotið þessa orðu áður, en
hún er æðsta viðurkenning
sem brezka krúnan veitir fyrir
björgunarafrek.
1. stýrimaður, Sigurjón
Hannesson og II. stýrimaður,
Pálmi Hlöðversson, hlutu hvor
um sig orðuna „THE SEA
GALLANTRY MEDAL OF
GOLD,” og eru þeir fyrstu út-
lendingar sem vitað er til að
brezka krúnan hafi veitt þess-
ar orður í gulli, en nokkrir
hafa fengið hana áður í
bronsi.
Þá afhenti sendiherra Breta
Pétri Sigurðssyni, forstjóra
Landhelgisgæzlunnar, áletraðan
silfurskjöld frá brezka sigl-
ingamálaráðuneytinu, með
þeim óskum, að hann „verði
hafður um borð í Óðni, þar
sem allir geti séð hann, eins
lengi og Óðinn siglir um höf-
in."
í ræðu sinni fór- sendiherr-
ann nokkrum viðurkenningar-
orðum um framgiíngu skips-
manna Óðins, varðándi björg-
un skipsmanna Notts County,
en eins og fles|.ir muna,
strandaði togarinn a Sandeyri
undir Snæfjallaströnd í norð-
anverðu ísafjarðardjúpi í miklu
Ofviðri 1 byrjun febrúar s.l.
Varðskipið Óðinn kom á strand-
stað togarans og hélt sjó þar
fyrir utan, en skipherra Óð-
ins ráðlagði skipverjum á
Notts County að halda kyrru
fyrir um borð í togaranum,
unz veður lægði, og hægt yrði
að koma báti á milli varð-
skipsins og togarans. Þessi ráð-
legging varð skipshöfn togar-
ans til lífs, að undanskildum
einum manni, er lézt af vos-
búð, því landanga úr togaran-
um var vonlaus vegna veður-
ofsans. Er veður lægði, ferj-
uðu skipsmenn Óðins skipverja
logarans um borð í varðskipið
og flutti þá heila á húfi til
ísafjarðar.
í fyrrinótt kom upp mikill eldur í hlöðu. sem er
sambyggð fjárhúsum að Laxamýri í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Allar líkur benda til, að þar hafi kvikn-
að í af mannavöldum. Skömmu eftir að eldurinn
kom upp að Laxamýri var ölvaður maður, sem velt
hafði bifreið sinni skammt innan við Húsavík,
handtekinn. Er maður þessi grunaður um að hafa
kveikt í hlöðunni að Laxamýri, en við yfirheyrslur
í alla fyrrinótt vildi maðurinn ekki játa á sig glæp-
inn. Nokkur grunur féll á þennan mann í fyrra,
þegar hvað eftir annað var bveikt í húsum á Húsa-
vík. Hinn seki fannst þá ekki. Talið er, að um 200
hestar af heyi hafi eyðilagzt í brunanum. Heyið var
ekki vátryggt, en hlaðan og fjárhúsin voru það.
Hinn handtekni maður, sem
grunaður er um að hafa kveikt í
hlöðunni að Laxamýri í fyrri-
nótt, var strax fluttur til yfir-
heyrslu og stóð hún fram á morg
un, en ekki játaði maðurinn að
hafa valdið íkveikjunni. í gær-
morgun var yfirheyrslum frest-
að fram yfir hádegi. Maður
þessi hefur áður verið grunaður
um íkveikjur á Húsavik, en þær
hafa ekki sannazt á hann. Um
svipað leyti í fyrra var kveikt
í á nokkrum stöðúm á Húsavík,
m. a. í Bifreiðastöð Húsavíkur
og tvívegis í gömlum geymslu-
húsum Kaupfélags Þingeyinga.
Sá eða þeir, sem valdir voru að
þessum íkveikjum fundust ekki,
en grunur féll þó á þenn-
an mann, sem nú situr í gæzlu-
varðhaldi og grunaður er um
íkveikju í hlöðunni að Laxamýri.
í fyrra, þegar íkveikjur höfðu
orðið hvað eft'ir annað á Húsa-
vík, greip um sig megn hræðsla
meðal fólks þar.
Þykir alveg sýnt, að um í-
kveikju hafi verið að ræða í hlöð
unni að Laxamýri í fyrrinéttt
þar sem eldurinn hefur augljós-.
lega komið upp efst í heyinu í
sunnanverðri lilöðunni, og ef til
vill á tveimur stöðum. Rafmagn.
var ekki í hlöðunni og elnsýnt
Framhald á 2. síðu.
BLAÐIÐ HEFUR
hterað
Blaðið hefur hlerað að fyrir
dyrum standi m;kil ráðstefna
á vegum Sjómannasambands
íslands, þar sem fjallað verði
um nýtingu fiskveiðaland-
helginnar. Hefur öllum þeim
aðilum, sem fást við sjávar
útveg í einhverri mynd, ver
ið boðið að sitja þessa ráð-
stefnu.
Nóbelsverðlaun
í læknisfræði
STOKKHÓLMI 16. 10.: Karolinska stofnunin í Stokkhólmi ákvað
í dag að Nóbelsverðlaun ársins 1968 í læknisfræði skuli veitt
þremur bandarískum visindamönnum, W./ Núrenberg, H. Gobind
Khorana og Robert Holley, fyrir framlag þeirra til rannsókna
á sviði erfðafræði.