Alþýðublaðið - 17.10.1968, Síða 5
17. október 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
Hans Gerd Essei'.
fyrirlesari
staddur hér
Hans Gerd Esser, kunnur
fyrirlesari og framkvæmda-
stjóri Þýzk-íslenzka félagsins
' í Köln, hefur dvalið hérlendis
síðan um miðjan ágúst á veg-
um Goethe Institut og haldið
nær tuttugu fyrirlestra víða
um land, sem og í Reykjavík.
Á fundi með fréttamönnum
skýrðu Esser og Jón Vestdal,
formaður félagsins Germaníu
frá ýmsu varðandi starf Essers.
Hann safnar efni í fyrirlestur
um „Siglingar og sjáVarútveg
íslendinga” og fór því kringum
landið og kynnti sér sjávarsíðuna
mjög vel. Enn fremur safnar
hann efni í fyrirlestur um „Höfuð
borgarsvæðið”. Esser sagði, að
sér þætti nóg komið af fyrir-
lestrahaldi um ísland, þar sem
eingöngu er talað um hið mikla
„land elds og ísa“, óg náttúru-
fyrirbæri látin skipta hæstan
sess.
Á ferð sinni um landið hefur
hamn haldið fyriritestna á ísafirð.
Patreksfirði og Akureyri. Enn-
fremur hefur hann haldiö fyrir-
lestra í æðstu menntastofnun-
um hér í borg. Um ér að ræða
fimm fyrirlestra. Þeir eru þessir:
Bridge
Bridgestarf Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur er nú að
hefjast og verður spilað eins
og áður annan hvern laugar-
dag í Ingólfscafé, gengið inn
frá Ingólfsstræti. Stjórnandi
spilakvöldanna verður Guð-
mundua- Kr. Sigurðsson eins
og áður. í fyrsta skipti á'
vetrinum verður spilað n.k.
i i laugardag kl. 2 stundvíslega. *
WWWWMWMMWWWWW
I. Hin rómantíska Rín. 2. Konr-
ad von Maurer og hin íslenzka
sjálfstæðishreyfing. 3. Heinrich
Erkes, þýzkur íslandsfari. 4. Jón
Sveinsson og Þjóðverjar. 5. Þýzk-
íslenzk vinátta á' okkar dögum.
Dri iJón Vestctali, formaítur
Framhald á 4. síðu.
Sovézkir út-
varpsmenn
á ferð hérna
Sendinefnd frá Ríkisútvárpi
Sovétríkjanna hefur undanfarna
daga dvalizt á íslandi og heim-
sótt Rikisútvarpið. í nefndinni
eru þeir L. Maksakov, varafor-
maður sjónvarps- og útvarps-
nefndar Sovétríkjannai og V. N.
Kirillin, útvarpsnefndarmaður.
Á síðastliðnu ári fór sendinefnd
frá Ríkisútvarpinu í heimsókn
til Sovétríkjanna.
Samkvæmt sáttmála íslands
og' Sovétríkjanna um gagnkvæm
menningarviðskipti hefur verið
gerður samningur um skipti á
sjónvarps- og útvarpsefni. Sam-
kvæmt þeim samningi hafa stofn-
anirnar akipzt á kvikmyndum
og tónböndum fyrir sjónvarp og
hljóðvarp.
Sovézka sendinefndin ræddi
við menntamálaráðherra, Gylfa
Þ. Gíslason, útvarpsstjóra, for-
mann útvárpsráðs og aðra for-
ráðamenn sjónvarpg og hljóð-
varps um einstalca þætti í sam-
starfi stofnananna og þá reynslu,
sem af því er fengin. Varð sam-
komulag um að halda samstarf-
inu áfram og efla það, en leggja
sérstaka áherzlu á menningar-
legt og listrænt efni.
OTA SIK LEITAR
HÆLIS í SVISS
Tékkóslóvakiski hagfræðingurinn Ota Sik, fyrrum varaforsætis-
ráðherra lands síns, hefur nú lcitað hælis í Sviss sem pólitískur
flóttamaður, að því er tilkynnt var opinberlega í dag. Prófessor
Sik, sem verið hefur áberandi persóna í efnahagslegu og stjórn-
málalegu lífi heima fyrir, hefur dvalizt í Beígrad frá því skömmu
fyrir innrás Sovétríkjanna í Tékkóslóvakíu.
BERN, 16.10. : Prófessor Ota
Sik, einn af forgöngumönnum
frjálslyndari stefnu í Tékkósló-
vakíu, er nú kominn til Sviss,
þj.r sem hann hefur beiðzt hæl-
is sem pólitískur flóttamaður.
Sik, sem nýlega var vikið úr
embætti varaforsætisráðherra
Tékkóslóvakíu, var kunnur hag-
fræðingur og forystumaður um
breytingar á efnahagskerfi lands
síns. Prófessor Sik hefur sætt
'áköfum árásum sóvézkra blaða,
síðan innrásin var gerð í Tékkó-
slóvakíu, en allan þann tíma hef*.
ur hann dvalizt í Belgrad.
Svissneska dómsmálaráðu-
neytið staðfesti síðdegis á mið-
vikudag, að Sik væri kominn til
landsins, en skýrði ekki stirax
frá því að hann hefði beðizt
landvistar. Tilkynning um það
kom ekki fyrr en síðar um dag-
inn. Sik og tveir samráðherrar
hans, sem með honum voru í
Belgrad, Jiri Hajek, utanríkis-
ráðherra, og Frantizek Vlasak,
iskipulagsmálaráði^erra, féllu í
mikla ónáð hjá Sovétríkjunum,
þegar þeir hihn 22. ágúst í
sumar sendu frá sér rit, þar
sem þeir fordæmdu innrásina í
Tékkóslóvakíu sterkum orðum
og skoruðu á' ríkisstjórnir og
menningarsamtök, hvar sem
væru í heiminum, að fordæma
þetta glæpsamlega athæfi Sovét-
manna og bandamanna þeirra.
Sovétríkin hafa iðulega veitzt'
mjög harðlega að Sik og sam-
herjum hans og valið þeim mörg
og ófögur nöfn. Þá hefur hann
og oftar en einu sinni verið sak-
aður um svik við kommúnism-
ann og kallaður „endurskoðunar
Sonur minn
Sinfjötli
á dönsku
SKÁLDSAGA Guðmundar
Daníelssonar, Sonur minn Sin-
fjötli, er nýlega komin út á
dönsku í þýðingu Grethe Bene-
diktsson. Sværdet og Harpen
nefnist bókin í þýðingunni, en
forlagið Fremad í Kaupmanna-
höfn gefur hana út. Fremad
hefur áður gefið út skáldsögu
Guðmundar, Húsið, í þýðingu
Erik Sönderholms, en báðar
bækurnar voru á sínum tíma
þýddar vegna bókmenntasam-
keppni Norðurlandaráðs. Húsið
kom út á dönsku fyrir tveimur
árum. Sværdet og Harpen er
212 bls. að stærð, snyrtilega úr
garði gerð.
sin,ni“ og „andsovézkur öfga-
maður” ásamt fleiru i líkum dúr.
Ota Sik, sem útnefndur var vara-
forsætisráðherra Tékkóslóvakíu
í aprílmánuði síðastliðnum, er
fæddur í Plzen 11. september
1919. Hann gerðist snemma á-
hugamaður um stjórnmál og sat
r fangabúðum nazista fyrir
kommúnistíska starfsemi á' stríðs
árunum, en hefur síðan verið
virkur og aðsópsmikill þátttak-
andi í opinberu lífi þjóðar sinn-
ar.
Prófessor Ota Sik.
)
Ökunídingurinn
ekki fundinn enn
Rannsóknarlögreglan vinnur
sleitulaust að því að upplýsa
það, liver ók bifreiðinni, sem olli
dauðaslysinu á Suðurlandsvegi
nálægt Geithálsi á sunnudags-
nóttina. Eins og kunnugt er af
fréttum, þá ók ökumaðurinn
brott frá slysstaðnum án þess
að hirða hið minnsta um hinn
slasaða, sem lézt á sjúkrahúsi
daginn eftir. í viðtali við Al-
þýðublaðið í gær sagði rann-
sóknarlögreglan, að því miður
hefði leitln enn ekki borið árang
ur. Þá kom fram, að ef maður-
inn gæfi sig strax fram og kann
aðist við brot sitt, yrðí litið á
brotið nokkuð öðrum augum en
ef maðurinn yrði handtekinn
eftir að hafa leynzt í marga
daga.
Rannsóknarlögreglunni hafa
borizt margar upplýsingar frá
fólki, sem var á ferðinni eftir
Suðurlandsvegi um svipað leyti
og slysið varð á sunnudagsnótt-
ina. Allar ábendingar geta leitt
rnálið í ljós. Rannsóknarlögregl-
an kveðst gera aUt. sem í henn-
ar valdi stendur til að upplýsa
þetta mál.
Rannsóknarlögreglan skorar
enn á alla þá, sem telja sig geta
gefið einhverjar upplýsingar,
sem að gagni gætu komið tii
að upplýsa þetta alvarlega mál,
að láta í té vitneskju sína. Jafn-
framt þakkar rannsóknarlögregl
an öllum þeim, sem þegar hafa
gefið upplýsingar í máUnu.
Ný prjóna-
samkeppni
Alafoss hefur hafið undir-
búning á prjónasamkeppni ‘69
á nýjum mynztrum á lopapeys
um gerðum úr HESPULOPA.
Sjö verðlaun verða veitt, og
nema þau fyrstu 10.000 kr.
í þessum mánuði hefur Ála-
foss gefjð út sjö bæklinga með
peysumynztrum prjónuðum úr
hespulopa. Eru þeir þá orðnir
20 talsins. Fást þar með 20 mis-
munandi gerðir af peysupakkn-
ingum frá kr. 227—357.
Rúmt ár er nú liðið frá því,
að Álafoss sendi hespulopa á
markaðínn og hafa selzt af hon-
um um þrjátiu tonn síðan. —
Hespulopi er nú framleiddur í
24 litum, 7 sauðalitum og 17
efnalitum.
Álafoss efndi til prjónasam-
keppni I fyrra og var það í
fyrsta skipti hér á landi, að
framkvæmd var könnun í ís-
lenzkum heimilisiðnaði. Sam-
keppnin tókst mjög vel; rúm-
lega 160 aðilar sendu peysur í
keppnina.
Dómnefndin er nú sú sani og
síðast. Skulu peysur eklu prjón-
aðar á fínni prjóna er. —-
Keppnin stendur til 1. febrúar
næstkomandi.