Alþýðublaðið - 17.10.1968, Qupperneq 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 17- október 1968
Sjgurður býður upp málverk eftir Kára Eiríksson.
Á LISTMUNA-
UPPBOÐI
Listmunauppboð Sig-
urðar Benediktssonar eru
vissulega ánægjuleg til-
breyting í heldur ólist-
rænum hversdagsleika
borgarinnar. Á uppboð-
unum er ætíð viss spenna
og margir hafa gaman af
að fylgjast með afdrifum
listaverkanna, sem boðin
eru upp — hvað mikið
verði boðið í og hvort ein
hverjir berjist hatram-
lega um að hljóta hnoss
ið.
Fyrsta uppboð vetrarins er ný
afsíaðið. Það er eftirminnilegt
vegna sölu myndarinnar Dögun
eftir Einar Jónsson, en hún var
slegin Ernj Johnson, forstjóra
F-lugfélags ís^ :indsi, fyrir 110
þúsund krónur. Ekki er víst að
myndin sé prívateign Arnar, a.
m.k. vildi hann ekkert um það
segja, en það á líka að vera
viss mystík yfir slíkum kaup
ium. Fróðir menn segja, að það
kosti einar 60—70 þúsund krón
ur að steypa slíka mynd, svo
að 110 þúsund krónur eru ekki
'hátt verð miðað við þann kostn
að. Sessuautur minn hafði spáð
að myndin færi ekki undir 110
— 120 þúsund og reyndist hann
sannspár. Myndin hefur verið í
•eigu einihvers hér í borginni,
en ekki er hægt að fullyrða
hvort þetta er eina eintakið
Hér eru þrír menn, sem oft eru viðstaddir uppboð, talið frá vinstri: Kiddi í Kiddabúð, Sigurður land
læknir og Silli stórkaupmaður.
Karl Strand, læknir, og frú fóru af uppboðinu með mynd eftir
Brynjólf Þórðarson.
steypt í málm. Boðin byrjuðu í
55 þúsundum og ihækkuðu með
talsverðum hraða um 5 þúsund
í hvert skipti.
Bruun, fyrrum kaupmaður, fylg
ist með af athygli.
Af 54 myndum fóru 10 á 2
þúsund krónur eða minna. Ein
staka myndir voru svo lélegar,
að sár skapraun var að sjá þær
boðnar upp, og er vissulega mál
til komið að halda aðgreindum
á uppboðum frístundamálurum
og þeim, sem taka 'þessa iðju dá-
lítið hátíðlega.
Meðal viðstaddra kom fram
gagnrýni á Iþað fyrirkomulag að
geta ekkert um aldur mynda,
iitan einstaka tilfella.
í lok uppboðsins sagði Sigurð
ur að listaverkin hefðu verið
seld ódýrt, og er hægt að taka
undir þau orð hvað snertir all-
margar myndir.
Langstærsta myndin á sýning
<unni var Heklumynd eftir Magn
ús Á. Árnason, en hún var yfir
tveir metrar á langveginn. Þessi
mynd fór á 10 þúsund krónur
og getur það ekki talizt hátt
verð. Eyjólfur Eyfells var höf
undur þriggja mynda og virðist
'hann vera iað hækka í vei'ði —
myndirnar fóru á 15, 8 og 16
'þúsund og var áberandi að
eldri konur hofðu mestari á-
'huga á þessum myndum. Ragn
ar Páll Einarsson, ungur mað
ur ættaður frá Siglufirði, má
vera ánægður með að Þing-
vallamynd -eftir íhann skyldi selj
ast á 10 þúsund krónur, en
hann er éfnilegur landslagsmál-
ari, sem vakti eftirlekt Jónas-
ar frá Hriflu fyrir nokkrum ár
um. Páll málar í anda Ásgríms
og Péturs Friðriks.
♦
Athygli vöktu þrjár nýjar
myndir eftir Kára Eirksson, en
hann er nýkominn frá Mexíkó
cg myndirnar því undir suð-
rænum áhrifum. Boðið var nokk
uð dræmt í þessar myndir en
þær ,fóru samt á viðunanlegu
1 verði: 5000, 6000 og 4.500 krón-
ur.
Góð Hafnai'fjarðarmynd eftir
Jón Þorleifsson fór á 16 þús
und krónur og mega það telj
ast góð 'kaup.
Brynjólfur Þórðarson var
góður listmáiari og fór vatns-
litamynd eftir hann á 12 þúsund
krónur.
Tvær myndir eftir Kristínu
Jónsdóttur fóru á 20 og 21
þúsund krónur.
Torfi Hjartarson tollstjóri hef-
ur mikinn áhuga. Bak við hann
er Hilmar Fenger hjá Nathan og
Olsen.