Alþýðublaðið - 01.08.1921, Síða 1

Alþýðublaðið - 01.08.1921, Síða 1
Alþýðublaðið O-efiÖ tit aí Aiþýdaflokkffluœo 1921 1 1 Ríkislánið. Þá er nú ríkisláninu komið svo langt, að Danir munu ætla að lána 5 miljónir krónal Danskir fjármálamenn hafa spilt láni þessu eftir mætti, sumir hverjir, sem sjá má af ummælum „Börsen* fyr og síðar. Og það sem verra er, grunur leikur á, að spilt hafi verið fyrir því, að enskt lán, sem stóð til boða, fengist. Þetta er rannsóknarefni fyrir dug- andi stjórn, en sú sem nú hangir við völdin gerir vitanlega ekki neitt, nema velta vöngum, ræskja sig og verða fegin því, að hafa ekki lagt út á neina ófærul Fimm miljón krðna lán! Jú, það er ekki óíélegt, En hvað verður gert með það. Danir vilja láta greiða sér með þvf skuldir einstakra íslenzkra manna við sig. Sumir vilja láta það ganga upp f skuldir þær, sem ís- landsbanki hefir safnað, með því að yfirfæra ekki fé fyrir póstsjóð <og rfkissjóð. Hvorttveggja er jafniit. Því það bætir að engu leyti úr því ástandi, sem ríkir hér og mun rlkja hér, unz hrun hefir orðið. Hrun, sem héðan af er óhjá- kvæmilegt, og þegar hefir borið nokkuð á. Þessar fimm miijónir eru sem svarar því, er samþykt var illu heilli að leggja íslandsbanka, sem hverjum öðrum ómaga. Danir eru helztu eigendur bankans. Þeir ótt- ast að bann sé tæpur og vilja þvf gjarna bjarga honum f bili, meðan verið er að koma því svo fyrir, að skellurinn Iendi á landiau, ef iila tækist til. Þetta fé verður því verra en ekki neitt, því þó greiddar verði þær skuldir, sem bankinn stendur i vegna landssjóðs, verður það skammgóður vermir. Slfkt hefir áður verið gert. í fyrra. Og bætti Mánudaginn 1. ágúst. að engu úr vandræðunum, né jók Iánstraust bankans. Lánstraust hans verður ekki reist við með minna fé en alt að 20 miljónum, segja fróðir menn. Hvað segir þá fé þetta? Ekkert, alls ekkert. Það verður að eins tii þess eins, að fresta þvf sem fram mun koma og skelia tapinu á landið. Hér þarf meira til, en þá góðu menn er nú fara með völdin. Það þarf sterkan og einbeittan vilja og snarræði, svo alt sigli ekki í strand. Alt virðist benda til, að „óhepnin* sé með stjórninni í þessu lántökumáli, og mun það ekki hvað sfzt að kenna, að hún bar ekki gæfu til að leita þang- að, sem von gat verið á, að lán fengist umyrðalaust, og án þess að afarkostir fylgdu því. Nú er komið sem komið er. Danska lánið er orðið að þvf, sem búast mátti við: sama og engul Og nú liggur vitanlega ekki annað fyrir, en reyna annarsstaðar, eða gefa sig upp á bátinn og lofa öllu að fara sem fara vill. Stjórnin hefir kannske mesta iöngun til þess. Togaraðtgerðin enn. Vísir telur það „óþarft verk“, að þrátta við Alþbl. um kaup- gjaldið á togurunum, en eyðir þó löngu máli í að reyna að sanna sitt mál. Honum tekst þó ekki betur en það, að hann kemst að þeirri niðurstöðu „rannsóknarlaust* (f fyrstu greininni vildi hann þó láta rannsaka máiið), að jafnvel þó að kaupgjaldið lækki að mun, muni sú útgerð víst tæplega bera sig*. Þarna er Vfsir kominn á sömu skoðun og Alþbl., að kauplœkkun háseta mundi litil áhrif hafa á útgerðarkostnadinn. 174. tölubl. Blaðið blandar saman fsfiskiveið- um og saltfiskiveiðum og gerir engan greinarmun á þeim, að því er bezt verður séð. Það er kunnugt að útgerðar- kostnaðurinn hefir lækkað stórum upp á síðkástið, og veiðin varð meiri í vor á saltfiskiveiðunum, en áætlað hafði verið, og verðið er ekki lægra en gert var ráð fyrir. Saltfiskiveiðarnar hafa þvf yfirleitt borið sig. Engin reynsla er fengin fyrir því, að ísfiskiveiðar í sumar bæru sig ekki. Eu það er frá voru sjónarmiði ekkert aðalatriði. Aðal- atriðið er það, að útgerðin beri sig að 'óllu samanl'ógðu. Landssjóður hefir hlaupið undir bagga með togurunum, og gera verður ráð fyrir að það sé gert með það fyrir augupa að þeir séu ekki látnir liggja í lægi. Ef það er rétt, að útgerðin beri sig ekki, þegar ársreksturinn er tekinn, þá er því meiri nauðsyn á, að minka óþörfu útgjöldin. En þau útgjöld köllum vér óþörf, sem fara til þess að greiða fleiri starfs- mönnum en þörf er á; það köll- um vér óþarfan kostnað, sem fer til þess að reisa háar og langar steingirðingar og sumarbústaði á kostnað útvegsins; það köilum vér óþarfa, þegar menn kaupa dýr- indishúsgögn, silkikjóia, bifreiðar og allskonar prjál á kostnað út- vegsins. Og vér teljum það óþarfa að greiða einatökum mönnum arð- inn af útgerðinni, þegar hann er, f stað þess að Seggja hann í vara- sjóð, svo hægt sé að halda áfram útgerðinni, þó eitthvað blási á móti. Við þetta ait losnar útgerðin, ef hún væri þjóðnýtt. Vísir segir þjóðnýtingu ekki á dagskrá. En hvað verður, ef fé- lögin, sem „ekki hafa gert annað en tapa, sfðan þau voru stofnuð*, fara á höfuðið og skellurinn lendir á landssjóði, sem gengið hefir í ábyrgð fyrir þau? Þegar komið er eins og nú er,

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.