Alþýðublaðið - 21.02.1969, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 21.02.1969, Qupperneq 12
á mmxÐ Kjaftaþing Komnir eru á kjaftaþing karlar úr mörgum sýslum, sitja þeir eins og englar í hring yfir tölum og skýrslum. Ingólfur fagnaSi hverjum höld sem höfðingjum Sankti Pétur, spurði um fólk og fénaðarhöld og fóðurþörfina í vetur- En karlarnir töldu töðufall rýrt og túnin stórskemmd af kuldum, sögðu að allt væri erfitt og dýrt og alveg á kafi í skuldum- Þá tók ég til fótanna og forðaði mér að firrast vísasta dóminn. því þeir eru vanir, því er ver, á þinginu að berja lóminn. WVMWWWVWWVMWWVMMWWVMWWMWWtWWWWM — Ilundurinn hans Magga er í símanum. Viltu gelta svolítið við hann?? Chaplin i sjónvarpinu í kvöld Snillingurinn Charlie Chapl- in skemmtir sjónvarpsáhorfend- um í kvöld 'kl. 20,50, en þá sýnir sjónvarpið mynd sem nefn ist „Chaplin í nýju starfi.“ Skopmyndir Chaplins eru á- vallt sígilt skemmtiefni cg þeir skipta tugum milljóna sem gegn um árin hafa hlegið af snilldar hrögðum Chaplins í gerfi um renningsins brjóstumkennan- lega. í kvöld er sem sagt mynd við hæfi ungra og gamalla í sjónvarpinu; maðurinn í litla jakkanum og stóru buxunum ætlar að leika listir sínar * I*að er þó alltaf jákvætt að alþing.’smenn skuli vera farnir að gefa gáfunum gaum. Betra seint en aldrei. Loksins er kominn nýr fisk- ur í búðirnar. Eftir allt kjötát- ið að undanförnu lá við acf maður væri farinn að jarma. 4 Etindi i kvöíd Hannes J. Magnússon, fyrr- um skólastjóri, flytur erindi ,í útvarpið í kvöld kl. hálf níu. Erindi sitt nefnir Hannes ,,Sið- ferðisleg málvöndun‘‘. Án efa leggja margir við eyrun í kvöld og hlýða á þennan merka skóia mann. É veid eggi kva þedda gamla pakk er a bíba mar. Þa er a seija a æsgan sé púra frad o nógúdd. É veid bra eggi bedur en Eiill Sgallagrímsson eða gva ann eidir afi byrjað a dregga þer ann var smá polli. O var þa eggi í gamla daga ea gva? sam- keppnin Halló piltar! Fegurðarsam- keppnin 1969 fer fram í vor í Reykjavík. Þá verður feg- ursta stúlka íslands kjörin á opinberri sýningu. í ár hefur Sigríður Gunnarsdóttir umsjón með keppninni, en Sigríður ásamt Maríu Ragnarsdóttur vinna að undirbúningi og þjálfun stúlknanna, sem vald ar verða í úrslitakeppnina. Tekið verður við ábending um um væntanlega þátttak endur til mánaðamóta febrú- ar - marz, í pósthólf 1285, Reykjavík, merkt Fegurðarsam keppnin 1969. Og að lokum eru allir þeir, sem v’ta m fallega stúlku, beðnir að gefa ábendingar.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.