Dagur - 06.08.1921, Page 1
DAGUR
kemur út á hverjum laugard.
Kostar kr. 8.00 árgangurinn.
Ojalddagi fyrir 1. ágúst.
AFOREIÐSLAN
er hjá Jóni t». t>6r,
Norðurgötu 3. Talsími 112,
Innheimtuna annast ritstjórinn.
IV. ár.
Akureyri, 6. ágúst 1921,
31. blað.
E-L-D-F-Æ-R-A-V-E-R-Z-L-U-N.
Miklar birgðir af allskonar ofnum, elda-
vélum, þvoffapotfum, ofnrörum, rörþnjám,
eldfösfum leir o. fl. þessh. ávalt fyrirliggj-
andi og selt með verksmiðjuverði.
Panfanir afgreiddar úf um land.
Jón Stefánsson.
Talsími 94, Akureyri.
Fundargerð.
Niðurl.
Frá Gjaldeyrisnefndinni komu
fram þessar tillögur:
1. Aðalfundur Sambandsins
brýnir fyrir samvinnumönnum
um land alt, að bregðast eigi
þeirri skyldu, að fá kaupfélög-
unum allar framleiðsluvörur sín-
ar til sölu. Ennfremur skorar
hann á kaupfélagssíjórana að
fræða félagsmenn með funda-
höldum o. fl. sem bezt og ít-
arlegast um nauðsyn þessa og
að þeir safni Ioforðum um
gjaldeyrisvöru i tæka tíð.
2. Aðalfundur Sambandsins á-
lyktar að bera frarn þá kröfu
til landsstjórnarinnar, hafi lands-
stjórnin einkasölu á hrossum í
sumar og borgi andvirði þeirra
í tékkávísunum á banka, að
Sambandið fái svo mikla upp-
hæð þess erlenda gjaldeýris, sem
fyrir hrossin fæst, er svari til
tékkávísanna sem greiddar verða
til sambandskaupfélaga og Sam-
bandið getur framvísað til hrossa-
útflutningsnefndarinnar fyrir
þeirra hönd".
Voru báðar þessar tillögur
samþyktar í efnu hljóði.
Fundi síðan frestað til kl. 4 s.d.
Kl. 4 sama dag hófst fundur
a.ð "ýju.
XI. Samvinnulögin.
Framkvæmdarstjóri hóf umræð-
ur og skýrði í stuttu máli frá
starfi nefndar þeirrar er sfðasti
aðalfundur kaus, til þess að
undirbúa skattalöggjöf um sam-
vinnufélög. En Jónas Jónsson
framsögumaður nefndarinnar
skýrði síðan Samvinnulögin í
öllum aðal atriðum. TalÓi að
reynslan mundi verða sú, að
enn meira virði en réttarbótin
um sanngjarna skatta mundi
reynast sjálf löggjöfin um sam-
vinnufélög. Hinsvegar gat hann
þess að samvinnumenn mættu
eigi líta svo á, að um skatta-
ákvæðin væri endanlegur sigur
fenginn, og gerði ljósa grein
fyrir eðlismuninum á því að
skattskylduákvæðin fengju að
standa í samvinnulögunum eða
hinu að þau stæðu í einhverju
því skattakerfi, er sífelt væri
verið að breyta. Pá taldi hann
æ§kilegt að lög Sambandsins
yröu á þessum fundi samræmd
samvinnulögunum, svo að Sam-
bandið kæmist þegar undir
vernd þessara laga.
Voru síðan bornar upp eftir-
farandi tillðgur:
1. Fundurinn lýsir ánægju sinni
yfir hinnm nýsamþyktu sam-
vinnulögum og vpttar þakklæti
siít sambandsstjórn, skattanefnd
þeirri, er kosin var á síðasta
aðalfundi, þingmönnum þeim
og blöðum er báru málið fram
til sigurs og þeim mönnum
öðrum er á einn eða annan
hátt hafa stutt að úrslitum þess.
2. Fundurinn álítur að það
verðið heppilegast til frambúð-
ar, að öll ákvæði um gjald-
skyldu samvinnufélaga, bæði til
ríkis og sveitar, standi í sam-
vinnulöggjöfinni sjálfri.
3. Fundurinn brýnir það fyrir
öllum samvinnumönnum lands-
ins, að standa örugglega á verði
gegn öllum árásum og blekk-
ingaríilraunum, bæði innan frá
og utan að, sem miða að því,
að draga úr framþróun sam-
vinnustefnunnar hér á Iandi.
TiIIögur þessar allar sam-
þyktar í einu hljóði.
XII. Innheimta fyrir blöð.
Um það mál kom fram svo-
feld tillaga:
„Með því að mörg af blöð-
um landsins beita sér gegn
samvinnustefnunni og reyna að
hnekkja gengi hennar, mælist
fundurinn eindregið til þess,
að framkvæmdarstjórar Sam-
bandsdeildanna innheimti and-
virði samvinnublaðanna, hver
hjá sínum viðskiftamönnum.
TiIIagan samþykt einum rómi.
Ólafur Briem skýrði frá, að
nefnd sú'er verið hefði stjórn-
inni til aðstoðar við að semja
frumvarp til samvinnulaga, hefði
gert allmargar breytingartillög-
ur við hin núgildandi Sam-
bandslög, en flestar væru þær
fremur orða- en efnisbreyting-
ar. Las hann síðan breyting-
arnar hverja um sig og skýrði
mjög rækilega.
Hóf þá framkvæmdarstjóri máls
á því að lögum Sambandsins
mundi heppilegast að breyta
éinnig að því leyti, að bætt
verði 2 mönnum i stjórn og
að í framkvæmdarstjórn yrðu
5 menn í stað eins manns áður,
Rökstuddi hann mál sitt mjög
ítarlega.
Urðu um þetta allmiklar um-
ræður er hnigu allar í sömu
átt. Með þvi að lög mæla svo
fyrir, var lagabreytingum þess-
um frestað til næsta dags.
XIII. Samvinnubanki.'
Framkvæmdarstjóri taldi þörf-
ina á Samvinnubanka fremur
aukast en minka, þótt eigi verði
því máli hrundið áleiðis í svip.
Leit hann svo á, að nefnd sú
er síðasti aðalfundur kaus stjórn-
inni til aðstoðar í því máli,
héldi umboði sínu óbreyttu og
var á það fallist af fundar-
mönnum.
XIV. Aðalfundirnir.
Framkvæmdarstjóri hreyfði því
nýmæli, að aðalfundir Sam-
bandsins yrðu haldnir á fögr-
um stöðum víðsvegar um land,
og að hafist yrði við í tjöldum,
þar sem eigi væri nægilegt
húsrúm. Gerði hann ítarlega
grein fyrir þessari hugmynd.
Tóku síðan margir fundar-
menn til máls og rómuðu þeir
ailir nýmæli þetta.
Svolátandi tillaga var sam-
þykt:
«Fuudurinn felur stjórn Sam-
\ bandsins að ákveða fundarstað
næsta ár og þess væhst að
hann verðs valinn á einhverri
af hinum fögru sveitum lands-
ins, ef framkvæmanlegt þykir."
Var fundi þá frestao til næsta
dags.
Laugardagsmorgun kl. 6 hófst
fundur aftur.
XV. Lagabreyfingar.
(Hér er slept mestu af Iaga-
breytingunum, sem eru að
rnestu orðabreytingar ein$r).
Allar breytingartillögur voru
samþyktar í einu hljóði.
Þá voru bornar fram þessar
tillögur;
1. Við 7. gr: Fyrri Iiður orðist
svo:
Aðalfundur kýs 5 menn. í sam-
bandsstjórn, formann og 4 með-
stjórnendur. Kosning formanns
gildir um þrjú ár og sömuleið-
is kosning meðstjórnenda, þó
svo, að í fyrsta skifti fara 2
þeirra frá eftir eitt ár og hinir
2 að tveim árum iiðnum. Enn-
fremur kýs aðalfundur árlega
varaformann og 2 varameð-
stjórnendur. — — — —
3. Við 9. gr.: Greinin orðist
svo:
Sambandsstjórn ræður forstjóra
fyrir Sambandið, er hefir á
hendi yfirumsjón, einkum í
fjármálum og 4 framkvæmdar-
stjóra í sérstökum starfsgrein-
um. Hún ákveður verksvið
þeirra hvers um sig, og felur
þeim þau störf, er henni þyk-
henta eða fulltrúafundur ákveð-
ur. Hún gerir við þá starfs-
samninga, er séu uppsegjan-
legir með ákveðnum fyrirvara.
Framkvæmdir þær, er forstjóri
eða framkvæmdarstjórar gera
samkvæmt samningunum, eru
bindandi fyrir Sambandið, eins
og þær væru gerðar af for-
manni með samþykki með-
stjórnenda hans, sbr. 8. gr.
stafl. a.
Forstjóri og framkvæmdastjór-
ar bera ábyrgð fyrir aðalfundi.
Samningarnir skulu lagðir fyrir
fulltrúafund til álita.
Tillögur þessar samþyktar ein-
um rómi.
Voru lög Sambandsins síðan
samþykt í heild sinni með á-
orðnum breytingum.
XVI. Hliðsjónar-samþyktir.
Svofeld tillaga samþykt:
wFundunnn ályktar að fela
stjórn Sambandsins, að semja
frumvarp til samþyktar fyrir
samvinnufélög, bygt á hinum
nýsamþyktu samvinnulögum.
Skaðabæíur heimilaðar:
Svofeld tillaga borin fram og
samþykt eftir nokkrar umræður
með 29 gegn 8 atkv.:
»í sambandi við tillögu þá
um Afurðartryggingarsjóð, sem
samþykt var i gær, heimilar
fundurinn framkvæmdastjórn
Sambandsins að Iáta Samband-
ið greiða nokkurn hluta þess
tjóns, þó eigi meira en að 2/s
hlutum, er Kaupfélag Svalbarðs-
eyrar, Kaupfélag Héraðsbúa og
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
urðu fyrir á síðastliðnu ári,
vegna skemda á útfiutnings-
vörum þeirra".
XVII. Samvinnuskólinn og Tíma-
ritið.
Jónas Jónsson gerði ítarlega