Dagur


Dagur - 29.03.1928, Qupperneq 1

Dagur - 29.03.1928, Qupperneq 1
DAGUR kemur út á hverjum fÖBtu- degj. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfélagi Eyfirð- inga. A f g r e i ð slan er hjá Jóni Þ. Þ6r, Norðurgötu S. Talaími 112. Uppsögn, bundin við ár»- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. das. XI. ár 'T - + -# #-#-#-• +- Akureyri, 29. Marz 1928. 14. tbl. Haraldur Níelsson prófessor. F. 30. Okt. 1868. — D. 11. Nlarz 1928. Þjóðhöfðinginn: íslendingar hafa aldrei lotið í auðmýkt krýndum konungum, né kyst á veldissprota harðstjóra og auðvaldsherra, sem markað hafa spor sín á skjöld sögunnar, frem- ur til viðvörunar en menningar. En ýmsir af ágætustu mönnum þjóðarinnar, og þar á meðal hinir bestu biskupar, hafa á ölium öldum verið dáðir og elsk- aðir af landslýðnum. Um þá mátti jafnan segja hið fornkveðna: »að öllum komu þeir til nokkurs þroska«. Þessvegna voru þeir þjóðhöfðingjar án gullkórónu; en með sigurljóma lífssann- inda og sálaryls á brún og brá. Hjörtu landsmanna hafa gljúpnað fyr og síðar, þegar klukknahljómar úr Líkaböng bergmáluðu um landið og boðuðu lát þessara íslenzku höfðingja. -----Enginn íslendingur hefir á síðari árum valdið jafn miklum áhrifum og straumhvörfum í and- legu lífi hér á landi og Haraldur Níelsson prófessor. Á sviði hinna andlegu leiðtoga hefir stafað af honum ljómi þjóðhöfðingjans í fylkingarbrjósti. Orð hans, kenn- ingar og hjartaslög hafa vakið athygli, lotningu og samúð í hreysum fátæklinganna og höllum borgaranna. Við andlátsfregn hans er sem bresti bönd og blikni kyndlar þeir, sem tengja sálir einstaklinganna við lífsheildina og vísa þeim veginn yfir móðu dauðans. -----Um nálega mannsaldurs- bil hafði síra Haraldur beitt öllum sálarkröftum sínum til að ráða rúnir lífs og dauða; og rista sátt- mála sinn, uml trúar- og eilífðar- málin, á minnisspjöld lærisveina sinna og samtíðarmanna. Nú kemur smám saman í ljós, hvem- ig þessu lífsstarfi hans hefir farnast. — Samkennarar hans og nemendur við háskólann, og sam- herjar hans á vissum sérfræði- sviðum' hinna andlegu mála, sakna brmtryðjandans. Þeir minnast með þökkum hins hjarta- hlýja og frjálshuga ritskýranda, sem greiddi myrkustu torfærurn- ar í trúfræðibókunum, og lét sjálf- an dauðann votta um framhald lífsins. Söfnuðir hans í Reykjavík og fjöldi annara áheyrenda um land alt sakna kennimannsins og fræð- arans, sem opnaði þeim ný sjón- arsvið og snéri harmsefnum þeirra í leit eftir meira ljósi. — í þessum hlutverkum hefir síra Haraldur haft víðtækari og göf- ugri áhrif á þjóðlífið, en nokkur af samtíðarmönnum hans. Og að lokum verða þeir taldir fullkomn- ustu og æðstu menn sinnar þjóðar sem gefa henni mest af andlegum verðmætum. K ennimaðurmn. í prédikunarstarfi sínu mátti síra Haraldur tileinka sér þessi orð postulans: »Silfur og gull á eg ekki, en það sem eg á, það gef eg þér«; enda hefir hann lagt vel út al' þeim í stólræðu. í nærri hálfan rpannsaldur (1914—1928) prédik- aði hann í Fríkirkjunnni í Rvík; venjulega á hálfsmánaðar fresti. Jafnan var þá troðfull kirkjan af fólki; auk fasta safnaðarins sótti þangað fjöldi ferðafólks utan af landi, sem dvaldi í Rvík lengri eða skemri tíma. Mun engin íslenzkur prestur hafa hlotið svo fjölmenn- an söfnuð og víða að kominn. Síð- ustu missirin var mjög um það talað eftir að útvarpstækin voru komin í Rvík, að þau mundu flytja stólræður hans um land alt. En lífi hans lauk áður en útvarps- stöðin yrði þess megnug. Áheyr- endur þeir, sem áður eru nefndir, fluttu ræður og kenningar síra Haraldar út um land og munu af því hafa sprottið varanlegri straumhvörf í skoðunum almenn- ings, um andleg efni, heldur en hljóðöldur útvarpsins fá orkað fyrst um sinn. Þessir áheyrendur senda sínar hljóðu þakkir til kennimannsins, sem horfinn er nú inn. um »fögru dyr«. Síra Haraldur ferðaðist oft um landið og flutti þá prédikanir í kirkjunum, en fólkið safnaðist þangað unnvörpum og hlýddi á hann. Var það honum hin mesta nautn að ferðast um fegurstu sveitir landsins þegar þær klædd- ust sumarskrúða sínum, og flytja fólkinu boðskap lífsins. Náttúru- fegurðin, mannlífið og eilífðar- íjóminn mótuðu grunnmyndirnar í ræðum hans. Við lok þessa lífs- þáttar hans sendir þjóðin öll klökkar kveðjur og þakkir hinum ágætasta og andríkasta kenni- manni, sem hún hefir átt á síðustu mannsöldrum. Leiðtoginn. í biblíufræðum, trúarefnum og sálarrannsóknum var síra Harald- víðfróðasti og frumlegasti leiðtogi hér á landi. í prédikunum sírnnn braut hann til mergjar forn og ný viðfangsefni mannsándans á þess- um sviðum, og skýrði þau fyrir áheyrendum sínum í ljósi hinna nýjustii vísinda. Skorti þá hvorki einurð né frjálslyndi til þess að tileinka sér það er hann áleit sannast, þó að það bryti í bág við játningar og kenningar kirkjimn- ar. Nemendur hans í háskólanum notuðu jafnan hvert tækifæri til þess að hlýða á prédikanir hans, því að þær voru einn þáttur kensl- unnar og oft trúfræði- eða sálar- fræðifyrirlestrar, skreyttir bún- ingi mælsku og andríkis. Flestir hinna yngri kennimanna þjóðar- innar hafa því mótast af honum um frjálslyndi í • skoðunum og ræðugerð. Er þeim það mikilsvert mál að láta hin djúpu áhrif leið- togans eigi dvína, heldur varð- veita þau eins og brennandi eld á arni kirkjunnar. Andstöðumenn síra Haraldar í trúarefnum og jafnvel fremstu menn þjóðkirkjunnar, sneiddu sig fremur hjá déilum við hann, þó að á milli bæri í s^oðunum, vegna þess að hann var þeim öllum fróð- ari um ritskýringar, og hafði jafnan rök á hverjum fingri. Þessvegna má segja að hann hafi allra manna mest haldið þröng- sýnis- og fhaldsmönnmn andlegra mála hér á landi í skák, um sína daga. Nú er viti hans sloknaður við Háskóla íslands og hætt er við að þar verði aðeins hálfbjart á eftir, ef enginn nýr leiðtogi rís upp til þess að gæta að skákinni á taflborði trúar- og kirkjumála. Þeim semj höfðu nánust kynni af séra Haraldi; virtist stundum líkt og hann stæði á mótum tveggja heima. Svo var honum hugleikið og létt að leiða menn úr myrkri harma og hugarangurs yf- ir í sólskinslönd samúðar og ei- lífrar gleði. Sá er þetta ritar hefir séð feg- ursta og tignarlegasta sumamótt á dimmasta fjallgarði Norður- lands í Júlílok. Loftið var heið- skýrt en húm í bláhvolfinu, Vatnajökull breiddi úr sér í há- sæti í suðri, miðnætursólin varp- aði geislum sínum á hafflötinn við nyrsta tanga landsins. — Meg- inhluti landsins hvíldi í blámóðu næturinnar — en glampar sólar- innar slóu bleikfölum bjarma á jökulinn. Göfugustu sálir mannanna varpa eilífðargeislum á jökulhrannir mannlífsins. Útför Haraldar Níelssonar. fór fram í Rvík 19. þ. m. með mjög mikilli viðhöfn og að við- stöddu fjölmenni. Fylking stú- denta gekk í fararbroddi lík- fylgdarinnar undir íslenzkum fána niður í bæinn kl. 1 e. hád., en 12 bifreiðar fylgdu líkvagnin- um. Fyrir framan Háskólann var staðnæmst og báfu guðfræðingar kistuna inn í fordyrið. Fór þar fram minningar og kveðjuathöfn. Talaði Sig. prófessor Sivertsen, en stúdentakór söng tvenn ljóð. Út úr Háskólanum báru kistuna prófessorar Háskólans. — Þá var líkið flutt suður í Fríkirkju og var það samkvæmt ósk hins látna, að síðasta kveðjuathöfnin fór þar fram. Stórstúkufélagar báru kist- una í kirkju. Stúdentakórið söng. Einar Kvaran flutti ræðu — sam- kv. ósk hins framliðna — og aðra ræðu flutti séra Friðrik Hall- grímsson, fóstbróðir, frændi og vinur hins látna. Kirkjan var tjölduð hvítu og skreytt lifandi blómum. út úr kirkjunni báru kistuna prófessorar Háskólans. Frímúrar gengu í heiðursfylkingu fremstir í líkfylgdinni suður í ldrkjugarð, þá stúdentar; en fjöl- menn líkfylgd á eftir kistunni. Stúdentaráðið bar kistuna inn í kirkjugarðinn. en þar tóku Frí- múrar við og báru hana út að gröfinni. Séra Friðrik Hallgríms- son kastaði rekunum. ------o------ Styrk skálda og listamanna hefir nú verið úthlutað. Þessir fá skáldastyrk: Jakob Thorarensen 1000 kr.; Stefán frá Ilvítadal 1000 kr.; Páll J. Árdal 1000 kr.; Guðm. G. Hagalín 700 kr.; Theo- dór Friðriksson 500 kr.; Sigurjón Jóns- son 500 kr. — Tónlistarfólk: Hermína Sigurgeirsdóttir 700 kr. námsstyrk, Sigvaldi Kaldalóns 600 kr.; Þórður Kristleifsson 500 kr.; Málarar: Jóhann- es Kjarval 1000 kr.; Þorvaldur Skúla- soi: 500 kr. Meistaramót í Iþróttum ætlar íþrótta- samband íslands að heyja á Akureyri í Júlímánuði n. k., eftir því sem »í- þróttablaðið« skýrir frá. — Verða á allsherjarmóti 1. S. 1., er hefst 17. Júní í Rvík, valdir menn til þess að keppa á meistaramótinu, fyrir þau félög er taka þátt í allsherjarmóti 1. S. 1.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.