Dagur - 07.11.1929, Síða 4

Dagur - 07.11.1929, Síða 4
186 DA6S7B 46. tbl. Brúkaða ofna , selur héraðslœknirinn. Málverkasýning. LÆKNINGASTQfA mín á Oddeyri er flutt úr Brekku- götu 7 til Brekkugötu 11. (Hjálpar- stöð Rauða-Krossins). Viðtalstími eins og áður frá kl. 1—2. Steingrímur Matthíasson. Um næstu helgi, laugardag og sunnudag verður haldin í Odd- feliow-húsinu hér í bænum sýn- ing á mörgum málverkum eftir list- málara Svein Pórarinsson og frú hans. Hafa þau hjónin síðastliðið sum- ar málað mikið af landslagsmynd- um frá nágrenni Jökulsár á Fjöllum og víðar úr Þingeyjarsýslu. Er Sveinn orðinn kunnur sem einn af fremstu listmálurum landsins, en hiklaust má segja, að frúin stendur honum alls ekki að baki í málaralistinni. Er óhætt að hvetja Akureyringa til að sækja sýningu þessa, svo er þar margt fagurt og einkennilegt að sjá, enda eru »motiven« frá því héraði sem er með hinum fremstu á landinu að náttúrufegurð. E. o...— Fréttir. island var hér fyrir síöustu helgi, fór héðan á laugardagsmorgun. Meðal farþega héðan voru : Bernharð Stefánsson alþm., Jón Árnason prentari úr Reykjavík, Sig. Hlíðar dýralæknir, próf. J. Velden og frú hans og ýmsir fleiri. Hjónabönd 19. f. m. voru gefin saman í hjónaband ungfrú Lára Guðmundsdóttir og Jón Björnsson verslunarmaður við Kaupiél. Eyf. Á föstudagskvöldið var voru gefin saman í hjónaband ungfrú Clsa Sehiöth og Magn- ús Blöndal útgerðarmaður. Heiðursverðlaun úr gjafasjóði Kristjáns IX. hafa bændurnir Stefán Jónsson á Munka- þverá og Kristmundur jóhannsson í Goð- dai í Strandasýslu hlotið fyrir framúrskar- andi dugnað í búskap. Dánardægur. Látinn er í Reykjavík Páll Bjarnason lögfræðingur frá Steinnesi. Þann 26. sept. sl. andaðist húsfreyja María Björnsdóttir, að Eyvindarstöðum í Kelduhverfi. Bókaverslun Þorsteins Gíslasonar selur fyrst um sinn margar bestu bækur ýmsra helstu rithöfunda landsins með nálega 50% afslætti frá núveraudi verði' »Verkamaðurinn«, er út kom á þriðjudaginn, sekkur sér ofan í hugleiðingar um »meydóm« og »mútur«. Spáir blaðið því, að Framsókn mundi ekki standast freisting- una, éf Baunverjinn byði henni danskt gull fyrir meydóm sinn. Lítur út fyrir, að blaðið tali af mikilli reynslu fyrir freistingarmætti danska gullsins, og að pólitísk skírlífistaug »Verkamannsins« titri við þá tilhugsun, ef Framsókn skyldi falla fyrir Baunverjanum. Er það fallega gert af »Verkamanninum« að vara Framsókn við hrösuninni, ef þetta er þá ekki mælt af tómri afbrýð- issemi. -------o------- taka að sér að gera uppdrætti aðhúsum, reikna út járnbenta steinsteypu og veita leiðbeiningar um alt, er að verkfræði lýtur. BOLLI i SIGURÐUR THORODDSEN, verkfræðingar, Reykjavik, Pósthölf 74. Slmar 2221, 1935. Maltöl B aj er sktöl P i 1 s n e r 2ezt. — Ódýrast. Innlent. TILKYNNING TIL LESENDA. Herra ritstjóri: — Mér hafa borist fjölmargar fyrirspurn- ir frá lesöndum mínum bæði heima og utanlands um það, hvernig á því standi, að eg hafi ekki gefið út nein- ar bækur á íslandi síðan »Vefarann mikla«, sem ritaður var 1925, eða hvort eg sé hættur að skrifa bækur, og í þriðja lagi, hvort eg ætli raér í framtíðinni að skrifa á erlendu máli. Leyfið mér að svara þessum spurning- um hér í eitt skifti fyrir öll: Síðan eg kom hingað til lands fyrir rúmum tveim árum, hef eg fullbúið til prentunar tvær nýar bækur; hin fyrri er smásagnasafn, sem eg kalla „Fótatök manna“, og sendi eg heim handritið að þeirri bók fyrir hálfu öðru ári. Handritið að seinni bókinni, sem er kölluð „Alþýðubókin", sendi eg heim fyrir misseri síðan. Ljóðasafn hafði eg að mestu fullgert áður en eg fór frá íslandi 1927. Sökin er ekki mfn, þótt bækur þessar hafi enn ekki komið fyrir almenningssjónir. — Sem stendur er eg að semja nýja skáldsögu langa, sem eg vonast til að ljúka við innan tíu mánaða. Eg hef nýlokið við að þýða »Vef- arann mikla á ensku í félagi við hr. Magnús Á. Árnason myndhöggvara í Point Roberts, Washington-ríki, en að öðru leyti hef eg engar áætlanir í huga um að skrifa bækur mínar á öðru máli en íslensku í framtíðinni. Virðingarfylst, Halldór Kiljan Laxnes. Áritun: 437 South Hartford Avenue, Kiora, Apartment 305. Loa Angeles, California. o ..... Radio en gros. *■■———— 71 {VUaHáOHtmCigá'iaBH—WWHKMWl Mit ny Katalog er udkommet og indeholder bl. a. 125 forskellige Radioapparater. Sendes paa Forlangende til enhver Forhandler af Radio. Chr. Fode, Kobenhavn. K. Sænsk handverkfæri Skóflur allskonar, gaflar, undirristuspaðar, höggkvíslar, rákajárn, gref, garðhrífur o. fl. o. fl. Sænskt stál er bezt. SAMBAND ISL. SAMINNV (JFÉLAGA. Ath. Hverjumpakka FALKA- kaffibæti fylgir loftblaðra (ballón). Elephanf CIOARETTUR (Fíllinn) eru Ijúffengar og kaldar. Mest reyktu cigarettur hér á landi. Ritstjórar: Ingimar Eydal. Gilsbakkaveg 5. Friðrik Ásmundsson Brekkan. Aðalstraati 15. Prentsmiðja Odds Björnssonar. FLIK-FLAK KAUPFÍLAGIEYFIRÐINGA. ENSKU REYKTÓBAKS- TEGUNDIRNAR Richmond. Waverley. Glasgow. Capstan. Garrick eru góðkunnar meðal reykend- anna um land alt. I heildsölu hjá Tóbaksverslun Islands. M U N D L O S-saumavélar eru BEZTAR. fást í Verzlunlnnl NORÐURLAND,

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.