Dagur - 03.02.1934, Page 1
D AGUR
kemui' út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
lögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Iíaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júií.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
► •• • • •
Akureyri 3. febrúar 1934.
11. tbl.
# # # # -
Innlendar fréttir. Erlendar fréttir.
Sveinn Björnsson, sendiherra,
er nýlega farinn utan eftir
nokkra dvöl í Reykjavík. Hafði
hann verið þar til þess að ráðgast
um við stjórnina hvernig helzt
mætti auka innflutning frá Mið-
jarðarhafslöndunum, í því skyni
að tryggja þar enn betur markað
fyrir íslenzkar vörur.
Fyrsti söngleikur, er haldinn
hefir verið á fslandi hljóp af
stokkunum í Reykjavík um miðja
þessa viku. Er það Meyjaskemm-
an« og eru lögin öll tekin úr söng-
ljóðum hins fræga tónskálds
Franz Schuberts og leikurinn of-
inn úr nokkrum sannsögulegum
þáttum úr lífi hans sjálfs. Söng-
leikur þessi var fyrst leikinn 1916
og hefir síðan farið um allan
heim, og allstaðar átt mestu vin-
sældum að fagna, var t. d. leikinn
um 1000 kvöld í röð í Wien. —
í Reykjavík lék aðalhlutverkið
kvenmegin Jóhanna Jóhannsdótt-
ir, söngkonan góðkunna, og önn-
ur stór hlutverk Salbjörg Thorla-
cius og Elín Júlíusdóttir. Kristján
Kristjánsson, söngvari, lék Franz
Schubert, og tvö önnur stór hlut-
verk karlmanna Ragnar E. Kvar-
an og Gestur Pálsson frá Hrísey.
Önnur hlutverk leika m. a. Sig-
urður Markan, Erling ólafsson og
Gunnar Möller. Dr. Franz Mixa
var söngstjóri en Ragnar E.
Kvaran leikstjóri. Þýðinguna
hafði gert Björn Franzson. 20
manna sveit frá Hljómlistaskóla
Reykjavíkur lék undir. Búninga
lánaði konunglega leikhusið í
Kaupmannahöfn. Leiktjöld mál-
aði Bjarni Björnsson, leikari og
Lárus Ingólfsson. Leikritið gerist
um 1826. Húsfyllir var fyrsta
kvöldið í Reykjavík og leiknum
óvenju vel fagnað af leikhúsgest-
um.
Asahláka og steypirigning með
köflum gekk um land allt á mið-
vikudaginn og fimmtudaginn.
Urðu sumstaðar skemmdir af
vatnavöxtum. Brú á Eystri-Rangá
skemmdist mjög seinni daginn.
Stóra-Laxá skemmdi vegi. Sömu-
leiðis urðu vegaskemmdir við mót
Hvítár og Norðurár í Borgar-
firði. Herma útvarpsfréttir, að
Norðurá hafi orðið jafnvel enn
meiri nú en í flóðinu mikla í sum-
ar, en tjón lítið annað en ofan-
skráð.
Frá Blönduósi er símað, að
Vatnsdalur hafi verið sem stöðu-
vatn hlíða á milli, en tjón þó eigi
hlotizt af svo menn viti. — Hér
í Eyjafirði er heldur eigi.kunn-
ugt um tjón af vatnavöxtum, þótt
miklir væru, en skriða féll úr
Vaðlaheiði, hér beint á móti bæn-
um, án þess þó heldur að gera
nokkurn skaða.
Frá Blönduósi er símað, að þar
hafi í gær orðið 100 ára Lárus
Erlendsson og sé furðanlega
hress. Hann er tengdasonur Bólu-
Hjálmars og hefir nú síðustu 30
árin dvalið hjá dóttur sinni, Ingi-
björgu, og tengdasyni. Heim til
hans fóru í gær 20 manns, og af-
hentu honum 600 kr. að gjöf, en
Blönduósþorp gefur honum V/2
kw. raforku á mán. meðan hann
lifir.
Frá Blönduósi er og símað að
slys hafi orðið á Sauðanesi á Ás-
um. Voru tveir drengir að leika
sér nálægt benzíntunnu og hafa
verið með eldspýtur, því að allt í
einu sprakk botninn úr tunnunni
og snart andlit eldra drengsins,
Þórðar Pálssonar, 13 ára að aldri,
svo að hann lá eftir meðvitundar-
laus. Var hann fyrst fluttur heim,
en í gær á sjúkrahúsið á Blöndu-
ósi og er þar enn rænulaus á 3.
sólarhring.
Frá ísafirði er símað í gær, að
afla- og gæftaleysi hafi verið þar
undanfarið. Hafís sást í vikunni
um 10 sjómílur út frá Stigahlíð,
en eigi hafa frekari ísfregnir bor-
izt síðan.
Bílfært var í gær yfir Vaðla-
heiði og alla leið til Ilúsavíkur.
Félag verzlunar- og skrifstofufólks
heldur fund í Skjaldborg, — samkomu-
salnum — mánudaginn 5. febr. n. k.
kl. 8%. Að afloknum venjulegum fund-
arstörfum, sennilega kl. 9%, segir
Sveinn Bjarman ferðasögu (Finnlands-
för). Verzlunar- og skrifstofufólkí ut-
anfélags er heimill aðgangur að ferða-
sögunni, gegn 50 aura gjaldi.
Zion. Samkomur sunnudaginn 4 febr.
Kl. -10 f. h. Barnasamkoma; öll börn
velkomin. Kl. 8V2 e. h. Almenn sam-
koma. Allir velkomnir.
Voröld heldur fund sunnudaginn 4.
þ. m. að Hamarstíg 1, kl. 8 Vi, e. h,
Afar miklar samningaumleit-
anir um afvopniin hafa undan-
farið átt sér stað meðal stórveld-
anna. Þykja tiilögur Breta einna
merkastar, og hafa allar þjóðir
tekið þeim að mestu vel, nema
Frakkar, er telja Þjóðverjum í-
vilnað með þeim, meira en sér.
Enn er þetta mál ekki komið á
þann rekspöl, að langt mál sé um
það skrifandi, en þó virðist held-
ur hafa gengið saman með skiln-
inginn síðustu dagana, jafnvel
milli Frakka og Þjóðverja, um
verulega takmörkun vopnabúnað-
ar a. m. k. Annars skyldi haldin
afvopnunarráðstefna í Lundúnum
um eða eftir miðjan þenna mán-
uð, en brezk útvarpsfrétt hermir
í gær, að henni muni frestað, ef
svo kynni að fara, að eitthvað
liðkaðist frekar til, við þessar til-
raunir stórveldanna, að ná skyn-
samlegum samningsgrundvelli. —
Bandaríkin.
Frá London er símað, að Roose-
velt forseti hafi nú undirritað lög
um verðfestingu dollarsins, og
hafi umræðurnar um frumvarpið
aðeins staðið í 15 daga í þinginu.
Dollarinn er verðfestur í 59.6
cent og fylgir þar með, að stjórn-
in áskilur sér einni rétt til gull-
kaupa. Þessi dollarstýfing mælist
yfirleitt vel fyrir í öllum löndum,
og vona nú margir að Englend-
ingar verðfesti sterlingspundið í
hlutfalli við dollarinn. Segir stór-
blaðið New York Times, að ef
Bretar ekki geri það, þá vinni
þeir á móti festu viðskiftalífs um
allan heim, er ella muni nást.
Frönsk blöð taka þessu vel, en
geta þess, að Frakkar muni ekki
hverfa frá gullfæti. — Síðan
Roosevelt samþykkti þessi lög,
hefir mikið gull verið keypt frá
Frakklandi til Lundúna og New
York, eða um 500 milljónir gull-
franka, en sér þó ekki högg á
vatni, því að gullforði Frakka
nemur 77 miljörðum (77 þúsund
milljónum).
* 4: ❖
Fjármálaráðherra Bandaríkj-
anna gat þess á miðvikudaginn,
að BandaríkjunuVn hefði brugðizt
300 milljón dala afborgun ófrið-
arskulda frá 15 ríkjum. Vill ráðu-
nejdið nú helzt leggja til, að þess-
um skuldunautum verði gefnir
eftir vextir að mestu eða öllu hér
eftir, svo að þeim veitist auðveld-
ara að greiða skuldir sínar.
Suðurpólsleiðangri hins fræga
pólfara, Byrd’s aðmíráls, hefir
hlekkzt á. Hafa 4 menn orðið við-
skila við meginhluta leiðangurs-
ins, á ísspöng, er losnaði frá höf-
uðísnum, og eru taldir í lífsháska,
þar eð félagar þeirra eru fastir
í ísnum á skipi sínu og geta því
eigi komið þeim til hjálpar.
Sömuleiðis hefir hlekkzt á leið-
angri hins Ameríkumannsins,
Lincoln Ellsworth, er flaug yfir
Norðurpólinn með Nobile og A-
mundsen hér um árið, og hefir
hann, ásamt félögum sínum kom-
izt við illan leik til Nýja Sjálands
með laskaða flugvél, úr ísaríki
Suðurheimskautsins.
* *
Stóriðjuhöldurinn Samuel In-
sull, er flýði Bandaríkin, sakað-
ur um fjárglæfra í sambandi við
enn stórfenglegri gjaldþrot en
Kreugers, og komst til Grikk-
lands, átti að verða á burt þaðan
í gær. En með því að hann hafði
þá hvergi fengið friðland, sáu
grískir dómstólar aumur á hon-
um og framlengdu lítið eitt lands-
vistarleyfi hans. Nú hafa vinir
hans, mestu auðkýfingar Banda-
ríkjanna, boðið stjórninni þar 50
milljónir dala, fái hann land-
göngu þar, refsingarlaust. Enn er
eigi vitað um svarið.
Bretland.
Brezka stjórnin hefir birt út-
drátt úr hagskýrslum 1926—1933.
Kveður hún árið 1926 hafa verið
eitt hið hagstæðasta eftir ófrið-
inn, en árin 1931—32 hin verstu,
og farið síhrakandi. En í ársbyrj-
un 1933 hafi farið að rofa til og
vill þakka það aðgerðum sínum.
Sýnt þykir að ullarframleiðsla
í Bretaveldi verði minni í ár en
um langa tíma áður, sérstaklega
muni Ástralía framleiða mun
minna en fyrr. Þó framleiðir
Bretaveldi enn y4 af allri ull, er
á heimsmarkaðinn kemur.
* 4«
Harða baráttu heyja embættis-
menn brezkir við þjóðstjórnina að
fá hækkuð laun sín aftur 1 hið
sama, er þeir höfðu, áður en
stjórnin lækkaði þau tilfinnan-
lega í fyrra. En stjórnin hefir
enn eigi látið undan.
❖ * *
Fyrirspurn kom fram í gær f
brezka þinginu, hvernig hefta
mætti hungurgönguför atvinnu-
leysingja til Lundúna og hindra