Dagur - 20.02.1934, Qupperneq 1
D A GU R
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
dögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÖNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVIL ár.11
Akureyri 20. febrúar 1934.
18. tbl.
Erlendar fréttir
Óeirðirnar i Austurriki
má nú víst telja á enda, og virð-
ist stjórnin hafa gjörsigrað jafn-
aðarmenn. Hafa nú fjórir jafn-
aðarmannaforingjar verið teknir
af lífi, að undangengnum herrétt-
ardómi.
Dimitroff,
hinn búlgarski, er heimsfrægur
varð af vörn þeirri, er hann hélt
uppi fyrir sig og landa sína tvo,
í brennumálinu nafnfræga fyrir
ríkisréttinum þýzka, hefir nú
lengi legið hættulega veikur, og
haldinn í fangelsi, þrátt fyrir
það, að hann og félagar hans
voru dæmdir sýknir saka. Hefir
þetta mælzt illa fyrir út um
heim og þótt óskiljanlegt. Á
laugardaginn hófst rússneska
sendisveitin í Berlín handa og
krafðist þess af þýzku stjóminni,
að hún léti þá félaga tafarlaust
lausa, þar sem búið væri að
veita þeim rússnesk borgararétt-
indi. Hermir útvarpsfregnin, að
talið sé líklegt, að þeim verði nú
hleypt yfir landamærin til Rúss-
lands.
Lundúnaútvarpið tilkynnti á
laugardagskvöldið, að alla síðustu
viku hefði Bandarikjastjóm hald-
ið áfram gullkaupum í Evrópu.
Þá viku keypti hún gull fyrir
36.000.000 sterlingspunda (um
800,000,000 kr.). Af þeirri upp-
hæð voru .27,000,000 sterlings-
punda keypt af Frökkum.
Djarfleg ummœli.
Háskólafélag brezkra verkalýðs'
sinna hélt í janúar ársfund sinn 1
borginni Nottingham. Afarmikið
umtal vakti ræða, er fyrrverandi
ríkissaksóknari, Sir Stafford
Cripps, hélt þar. Kvað hann svo
að orði, að þegar jafnaðarmenn
kæmust til valda á Englandi, yrðu
þeir að taka skjótt og hiklaust til
sinna ráða. Yrðu þeir að vera
viðbúnir öflugri mótstöðu frá
Buckingham-höllinni* og víðar,
en þá mótstöðu yrðu þeir að yf-
irbuga. Kvaðst hann ekki vera
því hlynntur, að borgarar mynd-
uðu herflokka, en ef fasistar
* aðsetursstað Bretakonungs í Lund-
únum.
kæmu á fót herliði, þá yrðu jafn-
aðarmenn og kommúnistar að
sýna sama lit.
Þessi umrnæli Sir Stafford
Cripps um Buckingham-höllina,
hafa mælzt mjög illa fyrir meðal
þegnhollra borgara á Englandi,
og hefir hann því síðar skýrt þau
svo, að þau bæri á engan hátt að
skilja sem sneið til konungsins,
heldur til hirðmanna hans.
Bróðir Henry Fords
gjaldþrota.
Bróðir Henry Fords, William
Ford, hefir nýlega lýst sig gjald-
þrota. Telur hann skuldir sínar
nema tveim milljónum króna, en
eignir upp í þær alls óvissar.
Hann var áður forstjóri félags-
ins »Wm. Ford & Co., er fram-
leiddi dráttarbíla og jarðyrkju-
vélar í verksmiðjum sínum í bæn-
um Dearborn.
Markverð tillaga.
Sovjet-Rússand og Pólland hafa
í sameiningu farið þess á leit við
Eystrasaltslöndin, að öll þessi
lönd skyldu í sameiningu lýsa því
yfir, að pólitískt sjálfstæði Finn-
lands og Eystrasaltslandanna
væri svo mikilvægt í augum
Rússa og Pólverja, að þeir væru
reiðubúnir að grípa til vopna
þeim til varnar, væri á þau ráð-
izt. Ekki hafa þó samningar kom-
izt á um þetta. Finnland hefir
hafnað slíkri yfirlýsingu, með því
að telja hana óþarfa, þar sem
þegar lægi fyrir samningar um
það, að hvorugir skuli á aðra
i ráða, Rússar og Finnar. Eystra-
saltslöndin hafa engu svarað, en
'gert er þó ráð fyrir að þau muni
fallast á slíka yfirlýsingu, ef
Þýzkaland, Frakkland og Eng-
land vilji samþykkja hana.
Nazistakálfurinn.
í smáþorpinu Stellau í Slésvík-
Holstein urðu þau tákn og stór-
merki, rétt upp úr nýárinu, að
þar fæddist rauðskjöldóttur kálf-
ur með stóran hvítan hakakross á
enni. Ekki var nóg með þetta,
heldur hrúgaði forsjónin öðru
undrinu ofan á, — á annari lend
kálfsins sáu glöggir menn tákn-
aðann Örninn úr þýzka skjaldar-
merkinu, en þó eigi eins greini-
lega og krossinn.
Frétt þessi kemur frá Ham-
borg og bætir því við, að hrepps-
nefndin í þorpinu hafi verið í
efa um, hvort viðeigandi gæti tal-
izt, að sýna undrakálf þenna fyr-
ir peninga, og fór því slíks á
leit við stjórnina í Berlín. Fékk
hreppsnefndin það svar um hæl,
að ekkert væri því til fyrirstöðu.
Streymdu nú kvikmyndasmiðir og
fregnritarar blaða að, til þess að
víðfrægja »nazistakálfinn«, er svo
var nefndur, og ferðamenn úr öll-
um áttum, að svala forvitni sinni
og veita skepnunni viðeigandi
lotningu. —
Landplága.
Fyrir 30 árum keypti stórbóndi
í Bæheimi, er var áhugamaður
um loðdýrarækt, fern loðrottu-
hjón* frá Montreal í Canada. —
Loðrottan heldur til við vötn og
ár, syndir framúrskarandi vel, og
er í lifnaðarháttum að mörgu
leyti svipuð bifurnum eða bjórn-
um. Brátt fjölgaði rottunum svo,
að þær komust út úr landareign
stórbónda þessa, og eru nú komn-
ar um alla Mið-Evrópu, svo milj-
ónum skiftir, og eru því hin
versta landplága. Hafa þær hvað
eftir annað valdið stórskemmdum
á stíflum og flóðgörðum á Þýzka-
landi og eru hinn voðalegasti
meinvættur í fiskivötnum, og
* Loðrottan er á Norðurlandajnálum og
þýzku kölluð Bisamrotta, á ensku
musk-rat.
Vatnavextir.
Víðar hafa stórfelldir vatna-
vextir orðið, en getið var um í
»Degi« síðast. Sá óhemju-vöxtur
hljóp í ölfusá, að hún flæddi inn
í Tryggvaskála. Hefir það víst
aðeins einu sinni komið fyrir áð-
ur. Ekki varð þó manntjón, og
ekki annar skaði en sá, að ljósa-
stöðvarstíflan bilaði, svo að ljós-
laust varð. — Hrokaflóð kom í
Miðfjarðará. Braut hún símalínu
og tók með sér tvo staura til
sjávar.
Illkynjuð kvefsótt hefir undan-
farið gengið víða um Norður-
Þingeyjarsýslu og hermir út-
Nýja-Bíó B
Þriðjudagskvöld kl. 9.
KVIKMYND AÆÐI
Sprenghlægileg gamanmynd í 10
þáttum. — Aðalhlutverkið leikur
konungur gamanleikaranna,
Harold Lloyd.
Öll Akureyri hlær að Harold
Lloyd næstu kvöld, því að nú
er »ímyndunarveikin« í rénun
í bænum.
spellvirkjar á ökrum. Þær eru
miklu stærri en venjulegar rott-
ur, á stærð við litla kanínu. Ekki
hafast þær þó við í mannahíbýl-
um. Nú eru þær komnar svo víða,
að Danir, Finnar og Svíar eru
orðnir dauðhræddir um að þær
muni þá og þegar brjótast inn til
þeirra, en telja alveg ómögulegt
að útrýma þeim, nái þær einu
sinni fótfestu. Þvi verri gestir
eru þær í Mið-Evrópu, sem af
þeim fæst þar aðeins lélegt skinn
og lítilsvirði, þótt í Canada fáist
af þeim ágæt loðskinn, vegna
hins mikla vetrarkulda. Vér ís-
lendingar erum þó vel settir
gagnvart þessum meinvætti, ef
vér aðeins höldum svo viti á
þessari miklu loðdýraöld, að vér
sjálfir eigi flytjum þær inn, því
að þær fara aldrei landa á milli
á skipum, eins og hinar venju-
legu rottur gera.
varpsfregn, að tveir menn hafi
látizt úr henni.
Hreður í Reykjavik.
Á laugardaginn var sagði út-
varpið frá hreðum í Reykjavík,
en eigi heyrðist greinilega um
þær, sökum truflana. Mun aðal-
lega hafa orðið fyrir hnjaski
Gísli Sigurbjörnsson frá Ási við
Reykjavík. Hafði hann komið út
af »Hótel ísland«, og hópur
manna þá veitt honum eftirför
og þeim er með honum voru, unz
laust í bardaga. Hefir heyrzt að
Gísli muni hafa verið nefbrotinn,
og hefir hann kært þessa árás
fyrir lögreglunni.
Innlendar fréttir.