Dagur - 01.03.1934, Qupperneq 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
• • * • • • -
XVII. ár.í
»•••o «•• -
Akureyri 1. marz 1934.
22. tbl.
Innlendar fréttir.
Slysfarir.
Aðfaranótt mánudags sökk
þýzkur togari suðvestur af
Reykjanesi. Öll skipshöfnin bjarg-
aðist í bátana. Leki hafði komið
upp undir vélrúminu, og varð
eigi stöðvaður. (ÚF.)
Hendrik Oíióson rekinn.
>Verklýðsblaðið« kveður Hendrik Ottó-
son hafa verið rekinn úr Kommúnista-
flokknum. Hafi hann brugðizt >þjóðernis-
legri frelsisbaráttu< flokksins, þingrofsvik-
una og stundum gerzt málsvari >foringja
allra vetklýðssvikara<, Trotsky.
Merk kona látin.
Á þriðjudagskvöldið hermdi út-
varpsfregn lát frú Bjargar C.
Þorláksdóttur, er andazt hafði á
sjúkrahusi í Kaupmannahöfn, 60
ára að aldri. — Hin framliðna
var einna þekktust íslenzkra sam-
tíðarkvenna. Hún var dóttir Þor-
láks hreppstjóra Þorlákssonar í
Vesturhópshólum í Húnavatns-
sýslu. Tók stúdentspróf í Kaup-
mannahöfn og giftist Sigfúsi
Blöndal, bókaverði, dr. phil. Með
honum vann hún ósleitilega að
hinni miklu íslenzk-dönsku orða-
bók. Ennfremur lagði hún stund
á heimspeki og sálræn vísindi og
Fulltrúafundur.
Á fimmtudaginn 2. febrúar var
haldinn fundur á Akureyri með
fulltrúum frá fiskifélagsdeildum
Norðurlands. Tilefni fundarins
var að ræða ýms mál, er útgerð-
ina varða, en þó sérstaklega þau,
er við koma Norðlendingum.
Fundinn setti, í forföllum for-
seta, varaforseti Stefán Jónasson
og nefndi hann til fundarstjóra
Pál Halldórsson, erindreka, og til
ritara Jón Benediktsson.
Fundinn sátu: Erindreki Fiski-
félagsins, Páll Halldórsson og úr
stjórn Fiskifélagsdeildar Norður-
lands varaforseti Stefán Jónasson
og gjaldkeri fjórðungsdeildanna
og yfirfiskimatsmaður Jóhannes
Jónasson. Auk þess voru mættir
sem fulltrúar:
Frá Akureyri:
Haraldur Guðmundsson, útg.m.
Jón Benediktsson, útgerðarstjóri.
Malmquist Einarsson, utgerðarm.
Frá Húsavík:
Einaf Sörensen, útgerðarmaður.
varð doktor við Sorbonneháskól-
ann mikla og fræga í París, fyrir
ritgerð um þau efni. Ennfremur
skrifaði hún hina ágætu bók
»Mataræði og þjóðþrif«, er einn-
ig mun halda nafni hennar lengi
á lofti. Mestan hluta æfi sinnar
átti hún við illkynjaða lungna-
berkla að stríða, svo að oft var
henni ekki ætlað líf. Sögðu kunn-
ingjar hennar stundum, að á vilj-
anum einum til lífsins mundi hún
lifa. Annars hefir heyrzt að
krabbamein muni hafa dregið
hana til dauða. — Fjölmargir ís-
lenzkir stúdentar munu þakklát-
lega minnast gestrisni og alúðar
þeirra hjóna, frú Bjargar og dr.
Sigfúsar, er bæði voru eigi síður
skemmtileg en gáfuð. — Þau hjón
skildu fyrir allmörgum árum síð-
an. —
Skákmeistari Islands,
Ásmundur Ásgeirsson, tefldi í
gærkvöldi 35 samtímaskákir í
Samkomuhúsi bæjarins. Fóru svo
leikar, að Ásmundur vann 21 tafl,
tapaði 7, en gerði 7 jafntefli.
Hann mun ætla heim til sín, á
Mjóafjörð, með »Esju«, er senni-
lega fer héðan í kvöld austur um.
Frá Árskógsströnd:
Sigurvin Edilonsson, útgerðarm.
Svanlaugur Þorsteinsson, útg.m.
Frá Hrísey:
Jón Sigurðsson, útgerðarmaður.
Áður en gengið var til almennra
fundarstarfa flutti erindreki Páll
Halldórsson ítarlega ræðu um til-
efni fundarins. Kvað hann hald-
inn samkvæmt almennum óskum
útgerðarmanna og sjómanna f
verstöðvunum i grendinni og gat
þess, að þótt fiskifélagsdeildirnar
hefðu gengizt fyrir fulltrúakosn-
ingu til fundarins, bæri þó að
skoða fulltrúana mætta fyrir
þessar stéttir í heild sinni, en
ekki aðeins sem fulltrúa deild-
anna. Tillaga kom fram um það,
að erindrekinn og stjórnarmeð-
limir Fiskifélagsdeildar Norður-
lands, þeir Stefán Jónasson og
Jóhannes Jónasson hefðu full
réttindi á fundinum, þótt þeir
ekki væru mættir sem kosnir full-
trúar og var hún samþykkt ein-
róma.
Þessi mál voru tekín fyrir:
1. Fiskimat. Framsögu í málinu
hafði útgerðarmaður Svanlaugur
Þorsteinsson. Eftir miklar um-
ræður var samþykkt þessi tillaga
frá framsögumanni: »Fundurinn
væntir þess, að næsta Fiskiþing
vilji beita sér fyrir því, að rýmk-
að verði á reglum um fiskimat,
þannig, að yfirfiskimatsmennirn-
ir megi, þegar sérstaklega stend-
ur á, votta mat á salt- og pressu-
fiski, þótt aðeins einn maður hafi
metið hann«.
Þá var og samþykkt eftirfar-
andi tillaga frá Jóni Sigurðssyni,
sem áframhald fyrri tillögunnar:
»Ennfremur lítur fundurinn
þannig á, að æskilegt sé að kaup
undirmatsmanna verði lækkað úr
kr. 2.00 niður í kr. 1.75 á klukku-
stund«.
2. Mótornámskeið á Húsavílc.
Einar Sörenson hafði framsögu
í máli þessu. Lagði hann fram í
málinu eftirfarandi tillögu, er var
samþ. með öllum atkv.:
Fundurinn leggur til, við Fiski-
félag islands, að það á næsta
hausti, eða fyrri hluta vetrar,
komi á mótornámskeiði á Húsa-
vík, með svipuðu fyrirkomulagi
eins og var á Húsavík 1930«.
3. Rekstrarlán handa smábáhtm.
Erindreki Páll Halldórsson hóf
umræður og lagði fram eftirfar-
andi tillögu, er samþ. var í e. hlj.
»Fundurinn skírskotar til sam-
þykktar sameiginlegs fundar út-
gerðarmanna í Norðlendinga-
fjórðungi, er fylgir hér með í eft-
irriti. Fundurinn telur ekki
fengna úrlausn þessa máls ennþá
og leyfir sér því að snúa sér til
hins háttvirta Fiskifélags íslands,
og háttv. milliþinganefndar í
sjávarútvegsmálum, er nú situr
að störfum, með beiðni um að
þessir aðilar geri sitt ítrasta til
að úr reksturslánaþörfinni verði
bætt svo fljótt, sem u
móti er mögulegt«.
Þegar hér var komið var fundi
frestað, en kl. 9 var fundur sett-
ur að nýju og voru þá mættir til
viðbótar við fulltrúa þá, er áður
voru komnir:
Þorbjörn Áskelsson og Vilhelm
Vigfússon frá Grenivík.
Hermann Jónsson og Hinrik
Sveinsson frá Flatey.
Brynjólfur Jóhannesson frá
Hrísey.
Sigfús Þorleifsson frá Dalvík.
Jóhann Þ. Kröyer frá ólafsfirði.
4. Fulltrúaval.
Eftir miklar umræður um mál-
ið kom fram eftirfarandi tillaga
frá Páli Halldórssyni:
Nýja-Bíó
Föstudags- laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9
Dýzk tal og söngvamynd í 10 páttum.
Aðalhlutverkin leika:
Rolf Von Goth, Albert
Paulig, Ernst Verebes,
Paul Hörbiger og söngkonan
Marta Eggerth.
Myndin er tull af fjöri og fyndni,
enda leikin af pekktustu og vin-
sælustu skopieikurum Djóflverja.
Hljömleikarnir í myndinni eru eltir
valsasnillinginn FRANZ LEHAR.
Fædd 8. maí 1849.
Dáin 24. febr. 1934.
Lund þín var Ijúf og auðug
af læknisdómum þeim,
er lífinu gefa gildi
og græða hinn sjúka heim.
En þeir eru góðvild og göfgi
og gleði við þröngan kost;
og varandi innri æska
gegnum andviðri lífs og frost.
Þú fæddist í fátæku ranni;
namst fornan, íslenzkan sið;
guðstrú, og hugsun hreina,
og hélzt þessu jafnan við.
Til handa öldnum og ungum
þú áttir gjafa fjöld;
þú býttir þeim fjársjóðnum fagra
fram á þitt hinsta kvöld.
Gjaldan1*"' gan!'-,1 4!’ ’ $
-- „ —. — -awii.Á VlÖ y
En gengi göfugrar sálar
af góðverkum þróast og rís.
F. H. B.
»Fundurinn lýsir fullu trausti
á Sölusamlagi ísl. fiskframleið-
enda, en tjáir sig hinsvegar mjög
óánægðan með að samlagsstjórn-
in skuli hafa kvikað frá ákvörð-
unum sínum í bréfi frá 22. des.
f. á. um fulltrúa fyrir fjórðung-
ana og skorar á hana að taka þá
ákvörðun upp aftur til fram-
kvæmda á þessu ári«.
(Framh.).
.....o —......