Dagur - 15.03.1934, Page 2
78
DAGUR
28. tbl.
• • •• • •••••• •-•• •■
Kaupfélag Eyfirðinga.
Aðalfundur K. E. A. var hald-
in dagana 9. og 10. marz sl. í
Nýja Bíó. Fundinn setti fox-maður
félagsins, Einar Árnason, alþm.
Að aflokinni rannsókn kjörbréfa
fulltrúa kvaddi hann til fundar-
stjóra Hólmgeir Þorsteinsson á
Hi’afnagili og var það samþykkt.
Þórhallur Ásgi’ímsson á Þrastai’-
hóli var kjörinn varafundarstjóri,
en ritarar fundarins voru kosnir
Bjöi’n Jóhannsson á Laugalandi
og’ Sigtryggur Þorsteinsson á Ak-
ureyri.
Auk fulltrúanna mætti öll fé-
lagsstjórnin á fundinum, fram-
kvæmdastjóri, endurskoðendur,
útibússtjórinn á Dalvík og fjöldi
annara félagsmanna.
Skal nú getið helztu mála er
fundurinn hafði til meðferðar:
Slcýrsla stjórnarinnur:
Formaður félagsins gaf fyrir
hönd stjórnarimxar skýrslu um
helztu framkvæmdir og starfsemi
þess á síðastl. ári. Meðal annars
skýrði hann frá því, að félagið
hefði, ásamt Kaupfélagi Sval-
barðseyrar, keypt eignina Sval-
barðseyri. Ástæðan til kaupa á
eign þessari taldi formaður þær,
að fyrirsjáanlegt hefði verið að
erfiðai'a mundi með rekstur
fx-ystihúss þess, sem félögin
keyptu þar á árinu 1932, ef
grunneignin tilheyrði ekki jafn-
fi-amt félögunum. Þá gat formað-
ur þess, að félagið hefði komið
upp rafstöð í Hrísey og sett á
stofn kælihús í sambandi við
hana. Var mikil nauðsyn á þessu
til þæginda fyrir atvinnurekstur
eyjarskeggja.
Formaður skýrði frá því, að
stjórn félagsins hefði ásamt
stjórn Samb. ísl. sámvinnufélaga
látið gera rannsóknir nokkrar um
virkjun Djúpadalsár í Eyjafirði.
Útvegaðar höfðu verið upplýsing-
ar og drög til áætlunar frá vei'k-
fróðum mönnum. Enda þótt at-
huganir þessar og rannsóknir
væru enn á frumstigi, mundi þó
hægt að fullyrða, að úr ánni full-
virkjaðri mundu fást 13—18
hundruð hestöfl rafmagns og er
hærri talan miðuð við vatnsmiðl-
un.
Þá upplýsti formaður það, að
stjórnin hefði á síðastl. hausti
ráðið dr. Ki'istin Guðmundsson,
kennara, til að hafa á hendi dag-
lega endurskoðun á bókfærslu og
reikningshaldi félagsins.
Þá skýrði form. frá því, að
vegna mjög ófullnægjandi húsa-
kynna kjötbúðarinnar og þrengsla
hjá Mjólkui’samlaginu hefði
stjórnin tekið á leigu lóðina við
Hafnarstræti 89, og væri nú þeg-
ar hafinn undirbúningur undir
byggingu þar, svo að bætt yrði
úr þessu. Væri ætlunin, að kjöt-
búðin yrði flutt í þessa nýbygg-
ingu, svo og brauðbúð sú, sem nú
er í Hafnarstræti 91, til þess að
rýma fyrir vefnaðarvörudeild fé-
lagsins.— Ráðinn hafði verið sér-
stakur pylsugerðarmaður að kjöt-
báðinni,
Enn gaf formaður upplýsingar
um það, að stjórnin hefði ákveöið
að koma því í framkvæmd að
setja á fót efnarannsóknarstofu,
til fóður- og jarðvegsrannsókna.
Hefði það mál tafizt um hríð
vegna kreppunnar.
Þá gat formaður um það, að
nýtt verzlunarhús væri verið
að reisa á Dalvík fyrir útibú fé-
lagsins þar, þar sem hið eldra
væri oi’ðið alveg ófullnægjandi.
Formaður skýrði frá því, að
félagið hefði á síðastliðnu vori
keypt frystihúsið á Bakka við
Siglufjöi’ð af útvegsbanka íslands.
Væru kaup þessi nauðsynleg til
tryggingar fyrir áframhaldandi
markaði félagsins á freðsíld til
fiskistöðva út urn land.
Leyfi um lyfsöluréttindi hafði
stjórnin sótt um, en ekki fengizt
enn hjá stjórnarráðinu, þrátt fyr-
ir eindregin meðmæli landlæknis.
Þá gaf form. skýrslu um, hvað
gert hefði verið í fiskii'æktai’-
málinu. Um málið hafði fundur
verið haldinn með væntanlegum
þátttakendum. Einnig hafði
Reykdælum í Þingeyjarsýslu ver-
ið gert tilboð um byggingu klak-
stöðvar, en það mál enn eigi út-
kljáð.
Út af skýrslu formanns spunn-
ust nokkrar umi’æður og fram
komu fyrirspurnir, er svarað var.
Reikningar félagsins fyrir s. 1.
ár voru nú lagðir fyrir fundinn.
Tók þá framkvæmdastjóri til
máls. Gat hann þess í upphafi,
að nú hefði hann veitt Kaupfé-
lagi Eyfirðinga forstöðu í 10 ár.
í sambahdi við það hafði hann
fjölrita látið og setja í línurit
helztu hi’eyfingar á fjái’hag og
afkomu félagsins undanfarinn
áratug og var því útbýtt meðal
fulltrúa ásamt reikningunum
fjölrituðum.
Skýrði nú framkvæmdastjóri
fyrir fundinum í ýtai’legu og
fróðlegu erindi, sem stóð yfir í
rúma tvo klukkutíma, reikninga
starfsái-sins og upplýsti um rekst-
ursafkomu félagsins og fyrir-
tækja þeirra, sem stai’frækt eru
í sambandi við það.
Samkvæmt skýrslu fram-
kvæmdástjóra höfðu bætzt við
fasteignir félagsins vegna kaupaá
árinu kr. 133 þús., en vegna af-
skrifta má draga þar frá 75 þús.
Bókfærðar fasteignir hafa því
hækkað urn 58 þús. kr.
Innstæður í skiftilegum sjóð-
um félagsins höfðu aukist um
65 þús. kr., en í óskiftilegum
sjóðum um 80 þús. kr. Eða sam-
tals um 145 þús kr.
Vörusalan, að meðtalinni sölu
smjörlíkis og brauða, hafði numið
kr. 3 milj. og hækkað á árinu um
kr. 1. milj.
»Brutto«-hagur af vörusölunni
nam 507 þús kr., en »netto«-hagn-
aður reyndist 139 þús. kr.
Auk þess hafði orðið rekstui’s-
afgangur af eftirtöldum starfs-
greinum, svo sem hér segir:
Af kjötbúðinni kr. 1150
Af brauðgerð — 8961
Af smjörlíkisgerð •— 10722
Af skipaleigu — 12623
Af verksmiðjunum
Sjöfn og Freyju — 11852
Ennfremur af sölu og frystingu
síldar kr. 10625, sem notað var til
afskriftar á frystihússbygging-
unni.
Innstæða ágóðareiknings nemur
um 141 þús. kr., þegar frá er
dregin yfirfærsla frá árinu 1932.
Að þar við bættum arði frá úti-
búinu á Dalvík, sem nemur 10600
kr., og að frádregnum viðskift-
um utanfélagsmanna, átti að
koma til ráðstöfunar 91 þús. kr.
Innstæður félagsins hjá banka-
stofnunum, Sambandinu og fleiri
höfðu aukizt á árinu um 50 þús.
krónur.
Vörubirgðir höfðu aukizt á ár-
inu um 280 þús. kr., og peningar
í sjóði höfðu aukizt um 78 þús.
krónur.
Um afui’ðasölu félagsins upp-
lýsti framkvæmdastjóri, að þótt
sölu afurða s. 1. árs, væri enn
ekki lokið, þá mætti þó fullyrða,
að menn mættu gei’a sér góðar
vonir um allgóða afkomu hvað
það snerti. Verð afui’ða hefði, sem
kunnugt er, hækkað að allmiklum
mun.
Skuldir félagsins út á við,
höfðu hækkað um 150 þús. kr. á
árinu, sem aðallega stafar af
fasteignakaupum félagsins. En sé
tillit tekið til hækkunar á bók-
færðum fasteignum félagsins,
aukningu á veröbréfaeign, vöru-
birgðum og sjóðupphæð, er sam-
tals nemur kr. 442 þús., og hækk-
un skulda út á við frá dregin, þá
kemur fram upphæðin 292 þús.
kr., umfram aukningu skulda út á
við.
í lok ræðu sinnar dvaldi fram-
kvæmdarstjóri nokkuð við tíu ára
yfirlit það, sem áður er um getið,
Hefir félagiö á þessum tug ára
selt almennan búðarvarning fyrir
samtals kr. 18.256,569
Kol og salt — 2.576,167
Kjötbúðarvörur — 2.438,448
Samtals kr. 23.271,184
Og flutt út innlendar
vörur fyrir kr. 13.889,221
Samtals innfl. og
útflutningur fyrir kr. 37.160,305
Á þessum síðustu 10 árum hefir
félagsmönnum verið greitt í arði
og uppbótum samtals kr. 1.161,-
629, eða nokkuð á aðra miljón.
Það er sá beini hagur, sem félags-
menn hafa borið úr býtum.
Þegar ræðu fi’amkvæmdastjóra
var lokið, þökkuðu fundai’menn
hana með almennu lófataki.
úthlutun ársarðsins. Félags-
stjórnin bar fram eftirfarandi til-
lögur, er allar voru samþykktar i
einu hljóði: •
a. »Fundurinn samþykkir að
félagsmönnum sé úthlutað 10%
arði af ágóðaskyldum vörum árið
1933, svo og af kornvöru, kaffi og
sykri.
Ennfremur kr. 1.50 á kolat.«.
b. »Arður af viðskiftum utan-
félagsmanna að frádrégnum
nauðsynlegum gjöldum og að því
leyti, er fundurinn ekki ráðstafar
honurn á annan hátt, færist í
Varasjóð«.
c. »Arði af rekstri brauðgerðai’-
innar sé varið til að giæiða fé-
lagsmönnum 10% arð, gegn af-
hendingu brauðmiðanna frá árinu
1933. Afgangurinn færist í brauð-
gerðarhússbyggingarsj óð«.
d. »Hagnaði á rekstri smjör-
líkisgerðar sé varið til afskriftar
á vélum«.
e. »Eftirstöðvum ullarreiknings
sé varið til þess að bæta upp verð
á vorull, innlagðri 1933, með 20
aur. nr. I og 10 aur. nr. II, III og
IV«.
f. »Fundurinn felur stjórninni
að ákveða endanlegt verð á kjöti
og gærum, innlögðum á slátur-
húsið 1933 af félagsmönnum, eft-
ir þeim hlutföllum, sem slátur-
hússreikningur sýnir, þegar fulln-
aðarsölureikningar ei’u komnir«.
Framtíðarstarf semi félagsins.
Svohljóðandi tillaga kom fram
frá Arnarnessdeild:
»Aðalfundur Ai’narnessdeildar
K. E. A., skorar á aðalfund K. E.
A., að fela félagsstjórninni að
koma upp, eða hafa til umráða á
hentugum stað, skýli yfir hey, er
það tekur af félagsmönnum til
sölumeðferðar«.
Samþykkt að vísa málinu til
stjórnarinnar.
Næst var tekin fyrir tillaga frá
stjórninni, um stofnun menning-
arsjóðs og frumvarp til reglu-
gei-ðar fyrir sjóðinn. Frá því
gHHfNHHfHHHHKM
n__■ ■■ egi
s
m
Cement, timbur, masonit, húsapappi
allskonar, Linoleumdúkar.
Leitið tilboða hjá okkur. Byggingavörur afgreidd-
ar um land allt gegn eftirkröfu.
Kaupfélag Eyfirðinga.
^yggingavörudeild.
WIHMIilMliMiHiiÍHHl