Dagur - 29.03.1934, Page 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jðhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
• • •
Akureyri 29. marz 1934.
34. tbl.
Páskaiyid Nyja Síó verður: Við sem vinnum eldhússtörfin.
Tvær sýningar 2. páskadag. kl. 5 og 9. Tekið á móíi pöntunum laugard. 31. þ. m. kl.l —4 í síma285.
Innlendar fréttir.
Framsóknarmenn í kjöri
Ákveðið hefir verið að Jörund-
ur Brynjólfsson alþm. og- Bjarni
Bjarnason skólastjóri á Lauga-
vatni verði í kjöri í Árnessýslu af
hálfu Framsóknarflokksins. í S.-
Þingeyjarsýslu kemur ekki til
prófkosningar, þar er fulltrúaráð
Framsóknarfélagsins óskaði ein-
um rómi að Jónas Jónsson yrði
þar í kjöri, en Ingólfur í Fjósát.
gaf ekki lengur kost á sér til
þingmennsku.
Skagasirandarhöfn.
Miðstjórn Framsóknarflokksins
hefir samþykkt tillögu um að
skora á ríkisstjórnina að hefjast
þegar handa um hafnargerð á
Skagaströnd.
Aflabrögð.
Frá Vestmannaeyjum er símað,
að þar hafi fengizt af netjafiski
Erlendar f
Rooseveli sigrar.
Síðustu fréttir frá Bandaríkj-
unum herma, að aflýst hafi verið
hinu stórkostlega verkfalli, er
vofði þar yfir. Orsök hins fyrir-
hugaða verkfalls var harðvítug
deila milli verkamanna og vinnu-
veitenda um rétt verkamanna til
þess að vera í óháðum verklýðs-
félögum. Vinnuveitendur hafa æ-
tið áður neitað að viðurkenna
þann rétt, enda tekizt að halda
verkamönnum fullkomlega tvístr-
uðum, með því að reka jafnan þá,
er í slíkan félagsskap gengu, eða
beittu sér fyrir samtökum til þess
að stofna óháð verklýðsfélög.
Nú hefir Roosevelt forseti und-
anfarið sett hverri stóriðjugrein-
inni á fætur annarri reglugerð
um iðjurekstur. Hafa þær verið
misjafnlega strangar eftir þvl
hversu langt forsetinn treysti sér
til þess að sveigja stóriðjuhöldana
í hverri grein, stórillindalaust. En
allir stóriðjuhöldarnir hafa átt
sammerkt í því, að taka þessum
mest 3300 þorskar og 2000 ufsar
á bát.
Hér á Akureyri aflaði Sigvaldi
Þorsteinsson, formaður á vélbátn-
um »Svan«, um 16 skp. af full-
orðnum þorski, á djúpmiðum, nú
um helgina.
Um 10000 manns hafa nú séð
leikinn »Mann og konu«, er Emil
Thoroddsen hefir tekið saman úr
hinni vinsælu samnefndu sögu afa
síns. Mun það vera met fyrir leik-
hússókn á íslandi.
Hin þjóðkunna hagleikskona,
frú Gunnhildur Jónsdóttir frá
Kirkjubæ í Húnavatnssýslu, kona
Ásmundar Sveinssonar, mynd-
höggvara, er sjálf hefir síðustu
árin lagt stund á myndhöggslist
sigldi í haust til frekara náms I
þeirri grein. Hefir nú frétzt að
hún hafi viðstöðulaust fengið að-
gang að listaháskólanum í Kaup-
mannahöfn.
r é 11 i r.
reglugerðum sem fjandsamlegast,
spyrna af alefli á móti því að þær
yrðu þeim settar, en síðan reynt
af fremsta megni að fai'a í kring-
um þær og jafnvel brjóta þær.
Hefir þeim víða tekizt þetta, því
að vandi er að setja svo lög að
eigi megi kringum þau fara af
óbilgjörnum mönnum. Vildu
vinnuveitendur ráða því sjálfir í
hverskonar verklýðsf élögum verka-
menn væru; vildu að í hverri
verksmiðju væri félag, er allir
starfsmenn hennar væru skyldir
að vera í einu saman, en engin
sambönd hafa við önnur félög.
Gátu því vinnuveitendur haft
hemil á þessum einangruðu félög-
um, hver hjá sér. Var nú svo
komið, að vérkamenn hótuðu
verkfalli ef ekki gæti bót á þessu
fengizt, En vinnuveitendur þótt-
ust hafa rétt til þess að túlka
reglugerðirnar samkvæmt eigin
skilningi.
Til þess að afstýra verkfallinu
og rétta hlut verkamanna, er rétt-
an skilning höfðu í reglugerðirn-
ar lagt, hefir Roosevelt forseti
undanfarið setið á fundum með
bílsmiðjuhöldunum. Voru þeir
hinir þverustu, en þó fór svo að
þeir urðu að láta í minni pokann
og viðurkenna að fullu samtaka-
rétt verkamanna. Tilkynnti for-
setinn vinnuveitendum skýlaust,
að þeim væri gersamlega óheimil
hverskonar vinnuhömlun af þeim
orsökum að verkamenn væru i
einhverjum öðrum verkamanna-
félagsskap en vinnuveitendum
geðjaðist að.
Að fenginni þessari viðurkenn-
ingu vinnuveitenda, samþykktu
verkamenn að aflýsa verkfalli
því, er þeir voru búnir að til-
kynna, en höfðu fyrir bænastað
forsetans frestað um nokkra
daga, meöan hann ræddi málið
við bílsmiðjuhöldana.
„Aftakau Pu Yi.
Á miðöldunum og lengur fram
kom það fyrir, að menn voru
dæmdir til táknlegrar (in effigie)
aftöku, þeir er eigi náðist í, eða
svo hátt voru settir, að lög næðu
tæpast til þeirra eða jafnvel ekki
(t. d. ríkjandi konungar), en
höfðu þó framið líflátsglæp. Var
þá líkneski þeirra, venjulega úr
vaxi, hálshöggvið opinberlega.
Nú hefir kínverska stjórnin lát-
ið hálshöggva Pu Yi, er nýlega
var krýndur leppkeisari Japana í
Manchukuo, síðasta afspreng
hinnar kínversku keisaraættar.
Pu Yi var kornungur rekinn frá
stóli, 12. febrúar 1912, er Kín-
verjar komu á hjá sér lýðveldi.
Sat hann þó í keisarahöllinni í
Peking (er nú heitir Peiping),
unz hann var þaðan rekinn 1924
og um leið algerlega sviptur keis-
aratitlinum. Leitaði hann þá á
náðir Japana.
Um leið og kínverska stjórnin
skipaði fyrir um táknlega aftöku
Pu Yi fyrir að hafa undir vernd-
arvæng Japana setzt á veldisstól
í því landi, er þeir með ofbeldi
hafa frá Kínverjum tekið, lét hún
það boð út ganga, að hver sá Kín-
verji, er gengið hefði á hönd
stjórninni í Manchukuo, skuli
vægðarlaust tekinn af innan
tveggja stunda frá því að hann
kann handsamaður að verða inn-
an landamæra Kínaveldis. Enn-
fremur skuli allir góðir kínversk-
ir borgarar telja slíka menn rétt-
dræpa hvar og hvenær sem er,
takist aðeins að ná til þeirra.
* * *
í Peiping hafa kínverskir stú-
dentar rifið niður marmarahellu
þá, er var á grafhýsi keisaraætt-
arinnar og á voru letruð nöfn
þeirra, en sett i staðinn aðra með
þessari áletrun: »Hér hvíla feður
og forfeður föðurlandssvikarans
Pu Yi, er seldi þjóð sína fyrir
japanskt fé«.
Frakkland.
Tilkynnt er að ákveðið hafi ver-
ið að innflutningar Frakka í ár
skuli eigi nema meiru en ]/4 af
innflutningi þeirra árið 1932.
Sumar þjóðir fá þó leyfi til þess
að flytja inn jafnmikið og áður,
en öðrum eru algerðar hömlur
settar.
* * *
Nýtt fjársvikahneyksli
kvað vera að komast upp í París
um gasfélag þar og er talað um
að þegar sé vitað að eigi muni
vera um minna að ræða en 50
milljónir franka.
Pýzkaland.
í tilefni af ársafmæli nazista,
er sagt að um 600 pólitískir fang-
ar hafi verið látnir lausir í Bay-
ern.
Bœjarfréitir.
Skipaferðir. Meðal farþega er komu
með skipunum nú um helgina, voiu
þeir Jón Kristjánsson útgerðarmaður,
Óskar Sæmundsson, kaupmaður, séra
Friðrik Friðriksson frá Reykjavík og
Vilmundur Jónsson landlæknir. — Séra
Friðrik mun hafa 'komið til þess að
stofna hér K. F. U. M. deild, en land-
læknir til þess að athuga stað og á-
ætlanir fyrir hinn nýja spítala.
Með Gullfossi fóru áleiðis til
Reykjavíkur Guðjón Samúelsson húsa-
meistari, Vilmundur Jónsson, land-
læknir, hjónin frú Else og Gunnar Páls-
son söngvarí, frú Guðmunda Stefáns
dóttir, ungfrú Margrét Þór, frú Jó-
hanna Þór og dóttir henar. Áleiðis til
útlanda fór frú Rannveig Þór, er verð-
ur samferða manni sínum, Vilhjálmi
Þór, kaupfélagsstjóra, frá Reykjavík,