Dagur - 04.06.1934, Blaðsíða 1
X ■
D AOUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
tögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
• •*••• •••••••• • • • •-•-•-•
Akureyri 4. júní 1934.
XVII. ár. J
Landskjálftinn
Ógurlegar skemmdir á
Ðalvík og nágrenni.
Stórtjón í Hrísey. Fjoldi fólks
húsnæðislaus.
Minni háttar skemmdir víðar.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÖR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. dea.
62. tbl.
Eins og getið var um í fregn-
miða »Dags«, er borinn var í bæ-
inn síðari hluta dags á laugar-
daginn, reið allharður land-
skjálftakippur hér yfir kl. 12.44
e. h. á laugardaginn. Mun hann
hafa staðið yfir 20—30 sekúndur.
Engar skemmdir munu þó hafa
orðið hér. Fréttaritstjóri »Dags«
hringdi þegar til Sigurðar Bjark-
lind, kaupfélagsstjóra á Húsavík,
því að viðbúið þótti, að lands-
skjálftinn kynni að hafa orðið
hgrðari í Þingeyjarsýslu. En að
því er kaupfélagsstjórinn hermdi,
mun kippurinn þar hafa verið
svipaður og hér, þó heldur harð-
ari í suðurhluta þorpsins, þar
sem blómpottar höfðu kastazt úr
gluggum, en skemmdir annars
ekki orðið.
En þegar eftir kippinn var
hringt frá Dalvík á bæjarfógeta-
skrifstofuna. Var beðið um tjöld
úteftir með því að um 140 manns
mættu heita húsnæðislausir. Slík-
an usla hafði landsskjálftin gert
þar. Voru fimm hús talin gjör-
hrunin en flest önnur skemmd.
Þá fréttist og frá Hrísey, að þar
hefðu allmiklar skemmdir orðið.
Laust eftir kl. 4 fékk fréttarit-
stjóri »Dags« ferð til Dalvíkur
með Vilhjálmi Þór, forstjóra K.
E. A., Ingimundi Árnasyni, skrif-
stofustjóra K. E. A. og ólafi Á-
gústssyni, byggingameistara, f bíl
Kristjáns Jónssonar bakarameist-
ara, er sjálfur stýrði bílnum.
úr bílnum sáust engin verks-
ummerki jarðskjálftans, fyrr en
kom að Hrísum, að undanteknum
smáskriðum er fallið höfðu úr
hæstu klettum í snjóskálar
Krossahnjúks og Hámundarstaða-
fjall?. Hafði þó heyrzt á Akureyri
um skemmdir í Fagraskógi og á
Krossum.
Þegar kom á móts við Hrísa,
virtist þekjan að miklu leyti fall-
in inn á bænum, enda var fólk að
búa um sig í tjöldum. Þegar á
brúna kom yfir Hrísatjörn, voru
lahgsprungur í henni á 100 metra
færi, svo að rétt mátti krönglast
á bíl, en við brúna á Svarfaðar-
dalsá hafði vegurinn að vestan
sigið niður með brúarsporðinum
um 6 þuml. a. m. k. Á húsi Sig-
urjóns læknis í Árgerði voru eng-
in missmíði að sjá úr bílnum,
enda hratt ekið.
En þegar kom að fyrsta hús-
inu í þorpinu sunnanverðu, Ás-
garði, eign Fjólu Gwðmundsdótt-
ur, blöstu við fyrstu hroðamörk
jarðskjálftans. Það var stein-
steypuhús, svo gjörsprungið, að
h'tt skiljanlegt var hversu uppi
mætti hanga. Var því líkast, sem
hroðvirkar jötunhendur hefðu
hrönglað hverri hraunhellunni af
annari, rönd á rönd, sér til bráða-
birgða og klastrað svo þaki ofan
á veggjabruðninginn. Og þegar
ekið var inn í þorpið og út eftir
aðalgötunni, blasti hvervetna við
svipuð sjón.
í miðju þorpinu hittum við þá
feðga Jóhann oddvita í Sogni og
Baldvin útibússtjóra K. E. A., á-
samt nokkrum þorpsbúum. Geng-
um við út á hæðina fyrir utan
kaupfélagshúsin, og staðnæmd-
umst skammt fyrir utan Sæland,
eitt verst farna húsið. Fékk ég
þar og á leið minni suður þorpið
eftirfarandi bráðabirgðaskýrslu
af ýmsum þorpsbúum, er góðfús-
lega fylgdust með mér og mun
þar flest til tínt, hið helzta, er
menn mundu og við komum
auga á. *
Á Upsum, ábúandi Arnór
Björnsson, eru báðir stafnar
gengnir frá. Hóll, eig. Þorl. Þor-
leifsson, steinhús mjög illa farið.
Svalbarð, eig. Sigurður Björns-
son, norðurstafA úr og gjör-
sprungið. Sæland, eig. Jóhann
Þorleifsson og Sveinbjörn -Vig-
fússon, norðurstafn og austur-
kvistur fallnir á jörð, allt kol-
mölvað inni, gjöreyðilagt. Tvær
gamlar konur, er inni voru, höfðu
einhvernveginn kastazt út, án
þess þó að vita. hvernig, og án
þess að skaðast. Kiviknaði þar í,
frá eldavél, en varð þegar slökkt.
Miðkot, eig. Páll Guðlaugsson,
austurstafn úr, sprungið og að
mestu eyðilagt. Efstakot, eig.
Þorst. Antonsson allt sprungið.
Lækjarbakki, eig. Freyleifur Jó-
hannsson, ábúandi Jóhann Páll
Jónsson, að miklu eyðilagt. Hvoll,
eig. Jón Stefánsson og Freysteinn
Bergsson, húsið stórsnarað til
suðurs, sprungið. Höfn, eig.
Kristján Hallgrímsson, kjallari
sprunginn frá grind, allt kolmölv-
að inni. Framnes, eig. Tryggvi
Jónsson, stórt, fallegt og nýtt,
stafnar snaraðir, suðurstafn gap-
ir frá, en hangir þó aðeins. íshús
kaupfélagsins, vesturgafl alveg
fallinn inn á gólf. Gamla slátur-
hús kaupfélagsins illa farið, suð-
urstafn alveg sprunginn frá.
Nýja sláturhús kaupfélagsins,
austurstafn sprunginn og vestur-
stafn alveg frá að ofan. Búð
kaupfélagsins, kjallari nokkuð
sprunginn, allt brothætt kolmölv-
að og allt úr hillum í dyngjum á
gólfinu. Timburskúr kaup-
félagsins, sprunginn grunnur. —
L a xamýri, eigandi Sigurjón
Baldvinsson, svo sprungið, að
vart er vogandi inn að ganga,
gjöreyðilagt. V í k u r h ó 11, eig.
Elías Halldórsson úrsmiður, kar-
sprungið, fært til á grunni, alveg
ónýtt. B j a r g, eig. Sigfús Þor-
leifsson, hús og smiðja, hús eyði-
lagt af sprungum, mykjuhús á-
fast sprungið inn í kjallara, norð-
urstafn smiðju gjörfal^inn út. f
henni var 8 ára gamall drengur,
en bjargaðist. H ú s Baldvins
kaupfélagsstjóra, úr járnbentri
steinsteypu, óskaddað að öllu,
nema reykháfar köstuðust af, en
standa þó á þakinu. Sogn, eig.
Jóhann Jóhannsson oddviti, mjög
illa sprungið. A r n a r h ó 11, eig.
Jón Jónsson, suðurstafn úr, kar-
sprungið. Hesthús hrepps-
i n s, norðurstafn kurlsprunginn
og víðar. Sunnuhvoll, eig.
Júlíus Björnsson, timburhús á
steingrunni, hvorttveggja lítt
skaddað, en húsgögn kolmölvuð
flest. Brekka, eig. Kristján Jó-
hannesson, kjallari sprunginn, en
timburhús byggt yfir hann lítið
skaddað. H ú s Þorsteins Jóhann-
essonar bílstjóra, norðurstafn
sprunginn frá, en lafir, suður-
stafn að ofan fallinn í garð.
B æ r Jóhanns Jónssonar, með
torf- og steinveggjum (hrepps-
eign) mjög snaraður og ónýtur,
fremri hluti fjóss fallinn, en kýr-
in, sem var í innri hlutanum,
grafin út. Bær Baldvins Sig-
urðssonar, með torfveggjum,
1 ítt haggaður. Ungmennaíé-
lagshúsið, norðurhlið gjör-
sþrungin frá og öll rifin, þótt
uppi hangi. Dalbær, eig. Ste-
fán Kristinsson, grunnur heill, en
efri hæð gjörsprungin, reykháfur
og suðurstafn á jörðu. G a m I i
barnaskólinn, kurlsprung-
inn og ónýtur. Runnur, eigandi
Kristinn Jónsson, reykháfur fall-
inn og innanstokksmunir skadd-
aðir, annars lítt skemmt. Hús
Gísla Gestssonar, timbur-
hús, brotið frái steingrunni og
fært til á honum, mjög snarað og
allt kurlað inni, en kjallari fullur
af grjótmöl og stétt innfallinni.
S t e i n n, eig. Gunnlaugur Hall-
grímsson, kennari á Svalbarðs-
eyri, norðurstafn alveg úr, þótt
uppi hangi, allt kurlað inni. —
Smíðahús Halldórs Sig-
f ú s s o n a r, f j ó s og hlaða, allt
gjöreyðilagt. B ú ð Kl r i s t j á n s
Á r n a s o n a r 1 í 11 s k e m m d,
en allt mölvað og hillur sópaðar á
gólf. S a 11 h ú s, eign Þorsteins
Jónssonar kaupmanns, vesturhlið
úr. L a n d sí m a s t ö ð, lítt
sködduð, en allt úr lagi fært inni.
H ú s A r n g r í m s Jóhannes-
s o n a r smiðs, reykháfur fallinn
og braut sperrur í þaki. N ý i b æ r,
eig. Kristinn Jónsson, húsið lítt
skaddað, en sprungin útihús og'
hlaða. S æ g r u n d, eig. Sigurveig
Sigurðardóttir, suðurgafl sprung-
inn og gjörónýtur. Lambhagi,
eig. Sigurður Þorgilsson og Sig-
urður Jónsson, norðurgafl á efri
hæð falfinn á jörð og viðbygging
gjörfallin, suðurgafl alsprunginn
frá, þðtt uppi hangi. Þar hafði
barn verið tekið frá konu Sig,
Þorgilssonar, 10 mínútum áður