Dagur - 07.06.1934, Síða 1

Dagur - 07.06.1934, Síða 1
DAGUR kemur út á þriðjudögum, fimmtudögum og laugar- iögum. Kostar kr. 9.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. Júlí. Áfgreiðsiani er hjá JÖNI Þ. ÞÓR. Norðurgötuö. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. XVII. ár. Akureyri 7. júní tQ34. L a n d s kj á I f t i n n. Kippir halda stöðugt áfram. Meiri skemmdir. Síðan á mánudag, að skýrslan um landskjálftann birtist í »I>egi«, hafa kippir stöðugt hald- ið áfram. Nokkrir þeirra hafa gert vart við sig hér á Akureyri, en í Svarfaðardal og í Hrísey hafa þeir verið alltíðir, þótt eng- inn þeirra hafi að styrkleika kom- izt í námunda við fyrsta kippinn. Þó hefir, í verstu kippunum, kárnað allmikið um þær skemmd- ir, er þegar voru orðnar og nýj- ar jafnvel komið í Ijós, ekki sízt á ýmsum bæjum í Svarfaðardal. Eru nú, auk þess sem áður var talið, fallin eða gjörskemmd hús á Gmmd, Hvarfi og Ytra-Holti. Þá hafa og á Litla-Árskógssandi fallið einar þrjár gamlar torfbúð- ir, er búið var í uppi, en veiðar- færi geymd niðri og eru þar tald- ai- vegalausar tvær fjölskyldur a. m. k. Hefir það fólk flutt í þing- húsið til bráðabirgða. Á Krossum mun hafa falli.ð hlaða og e. t. v. einhverjar skemmdir orðið á í- 'búðarhúsi. Heldur virðast kippirnir hafa farið rénandi síðasta sólarhring- inn. Þó höfðu tveir komið á Dat- vík í gærkvöldi, um kl. 9, með fimm mínútna millibili. — Orð er á því gerandi hve vel fólk hefir borið sig þar ytra. Þó er auðvitað enn kvíði í allmörg- um, sérstaklega konum og börn- um, og ef til vill eigi sízt í Hrís- ey, sem eðlilegt er sökum stað- hátta. Sorglegur strákskapur. Fjöldi fólks hefir þessa dagana streymt frá Akureyri til Dalvík- ur til þess að sjá verksummerki, taka. myndir, o. s. frv. Er ekkert athugavert við það í sjálfu sér. En sorglegur ómenningarvottur er það, að í þessar ferðir hafa slæðzt nokkrir slæpingjar, sem eigi eru háttvísari en svo, að þeir hafa með margskonar ánagangi og hégómaskrafi ýft tilfinningar margra þorpsbúa, verið að flækj- ast um tjaldstaðina, fara rfram á kaffihitun og veitingar o. s. frv., að eigi sé á það minnzt, ef satt er, að sumir hafi ekið bílum sínum um á milli tjalda, er fólk var til hvíldar gengið. Hefðu þeir þó mátt reyna að gera sér í hugar- lund hversu þægilegt sé fólki, er slíkar skelfingar hafa dunið yfir, að vakna við bílskruðninga, er í fljótu bragði líkjast æði mikið jarðskjálftadunum og titringi. — Er þetta svipuð hugulsemi, eins og ef menn gengju milli syrgj- enda við jarðarför og spyrðu eft- ir »landa« og öðrum veitingum, eða hefðu þesskonar fyndni á hraðbergi. Væri slíkum ruddum sízt of refsað, þótt þorpsbúar, er fyrir ágangi þeirra yrðu, birtu nöfn þeirra opinberlega. Annars hafa ýmsar tröllasögur gengið undanfarna daga um land- skjálftana og orsakir þeirra. Eru margar þessar sögur settar í sam- SAISKOTIN. Konungshjónin ríða á vaðið með höfðinglega gjöf. Samskotanefndirnar syðra og nyrðra eru nú teknar til starfa. ,H.afa konungshjón íslands og Danmerkur þegar lagt rausnar- legan skerf til samskotanna, kr. 5000.00. í þessu sambandi skal bent á áskorun þá frá samskotanefndun- Bráðabirgðaskýli reist. Viðreisnarnefnd tií skipulagningar. Viðreisnarnefnd sú, er ríkið skipaði, til að meta skaða og skipuleggja flutning fólks í bráða- birgðaskýli, hefir undanfarna daga verið að störfum í Svarfað- ardal og Hrísey. Smiðir og verka- menn eru komnir út eftir, til að reisa skýlin. Mishermt var í síð- asta blaði um skipun nefndarinn- ar. Hana skipa Bernharð Stefáns- son bankastjóri, Pétur Eggerz (Pramh. á 4. síðu). J 63. tbl. band við rannsóknir er þeir Sig- urður Þórarinsson eða Steinþór Sigurðsson hefðu átt að gera á landskjálftasvæðinu. Enn sem komið er hafa þessar rannsóknir gefið mjög lítinn árangur, en Sig- urður Þórarinsson heldur stöðugt rannsóknunum áfram og er æski- legt að sem flestir verði til að svara spurninum þeim, sem birt- ar eru annarsstaðar í blaðinu svo að sem gleggst vitneskja fáist um orsakir og áhrif þessa náttúruvið- burðar, sem hefur valdið svo miklu tjóni. Er óhætt að fullyrða, að allar sögusagnir um spádóma þessara manna, eða annara, um að meiri jarðskjálftar og jafn harðir séu í vændum, hvort sem er þar ytra, eða annarsstaðar, eru eintómur heilaspuni og hafa við engin orð þeirra að styðjast. Er eðlilegur ótti fólks nægilegur, þótt eigi sé hann aukinn með slíkum hviksögum. Nýja-Bíó Laugardags- og sunnudagskvöld kl. 9, Madame Butteríly. Tal- og hljómmynd í 10 þáttum. Aðalhlutverkin, leika: Sylvia Sidncy og €ary Grant. Þetta er kvikmynd, sem segir hina heimsfrægu ástarsögu sak- lausu japönsku stúlkunnar Cho- Cho San og ameríska sjóliðsfor- ingjans Pinkerton. Er saga þessi sönn í mörgum aðalatriðum. Höfundurinn að þessari frægu sögu heitir John L. Lang en David Belasco samdi leikrit upp úr henni og loks gerði ítalska tónskáldið Puccini hina heims- frægu óperu sína eftir sömu sögu. Kvikmyndin er einkum byggð á sjónleik Belasco en í forleiknum og undir myndinni heyrist margt af hinum unaðs- legu tónum óperunnar. Snilldatlega gerð mynd og framúr- skarandi vel leikin. Sunnudaginn kl. 5. II $| fllpýðusýning. lotinai Hiöursett verð. um, er birtist á öðrum stað hér í blaðinu. Eins og áður var getið eru í samskotanefndinni hér Steingrímur Jónsson bæjarfógeti, Steinn Steinsen bæjarstjóri og Vilhjálmur Þór kaupfélagsstjóri. Þeim til aðstoðar verður sóknar- presturinn, séra Friðrik Rafnar. Auðvitað veita allir þessir menn samskotum viðtöku. En Steinn Steinsen bæjarstjóri annast gjald- kerastörf fyrir samskotanefndina hér á Akureyri og er því e. t. v. brotaminnst að senda samskota- féð beint til hans. Auk þess geta menn sent framlög sín til »Dags«, er mun koma þeim til nefndar- innar. JARÐARFÖR litla drengsins okkar fer fram að Möðruvöll- um næstk. sunnudag kl. 12 á hádegi. Björk í Sölvadal, 7. júní 1934. Fríður fónsdóttir. Kári Guðmundsson. Hér með tilkynnist að konan mín, Margrét Ágústa Guðvarðar- dóttir, andaðist að heimili sínu, Dunhaga í Hörgárdal, 2. þ. m. Jarðarförin er ákveðin 12. þ. m , og hefst með húskveðju á heimilinu kl. 12 á hádegi. Halldór Ágústsson. Hérmeð tilkynnist, að konan mín elskulega Sigurborg Ólafs- dóttir, andaðist kl. 6 í morgun. Jarðarförin verður síðar ákveðin. Akureyri 7. júnf 1934. Guðbrandur Samúelsson.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.