Dagur - 19.06.1934, Page 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri; Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÖNI Þ. ÞOR.
Norðurgötu3. Talslmi 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
• •• • • -
XVII
. ár. | Akureyri 19. júní 1934.
68. tbl.
Hroðalegur áfellisdómur
hæstaréttar um fiariar Porsteinssoi.
»Dagur« sagði um daginn frá
dómi hæstaréttar í máli Einars
M. Einarssonar skipstjóra, er
Garðari Þorsteinssyni hrm. var
fengið til dóms í undirrétti, eftir
að ' Magnús Guðmundsson hafði
tekið það úr þremur stöðum,
fyrst frá lögreglustjóra, síðan frá
lögmanni og síðast frá sjódómi
Reykjavíkur.
Einsdæmi munu það vera í
réttarfarssögunni, að hæstiréttur
dæmi undirréttardóm í opinbem
máli svo ómerkan og vísi málinu
heim í hérað til rannsóknar og
dóms *að nýju.
Eftir að hæstiréttur hefir gert
grein fyrir því, hver handaskol
hafi hjá Garðari Þorsteinssyni
orðið, við meðferðina á ýmsum
atriðum í þrem skýrslum Einars
skipstjóra, kemst hann svo að
orði:
»Eftir skipunarbréfi sínu, sem
ekki sést að breyting hafi verið á
gerð, hefði héraðs'dómarinn átt aó
ganga rækilega með ákærða gegn
um allar skýrslur hans og veita
honum kost á að slcýra og rétt-
læta eftir föngum það, er sú at-
Imgun kynni að liafa leitt i Ijós
um skýrslugerðina, og leggja síð-
an dóm á um þessi atriði.
Héraðsdúmarinn heflr, prátt íyrir ákvæöi
skipunarbréfs síns pví látiö hjá líöa aö
rannsaka nægilega og dæma um pau at-
riöi í sambandi töku ofannefnds togara,
er sekt eða sýkna hins
ákærða virðist að niikhi
leyti vera undir koniin.9
Það þykir því ekki fært að
byggja dóm á því í hæstarétti að
svo stöddu og þykir því ekki
verða hjá því komizt að ómerkja
meðferð málsins fyrir aukarétt-
inum og hinn áfrýjaða dóm og
vísa málinu heim í hérað til rann-
sóknar um atriði þau, er að fram-
an getur, og um öll þau atriði
önnur í þessu sambandi og er ný
rannsókn kann að gefa tilefni
til......«
* Auðkennt hér.
Halldór Stefánsson,
forstjóri Brunabótafélags íslands, sakaður um
óheiðarlegar fjárreiður.
»Alþýðublaðið« i Reykjavík
flytur 9. þ. m. í langri grein mjög
þungar ásakanir í garð Halldórs
Stefánssonar forstjóra Bruna-
bótafélags íslands, um óheiðarleg-
ar fjárreiður. Fullyrðir blaðið að
forstjórinn og bróðir hans,
Björn R- Stefánsson, hafi
staðið í nánu viðskiptasam-
bandi við hinn nafnkunna óreiðu-
mann Björn Gíslason, og jafnvel
haft hann í sinni þjónustu til
fjáröflunar.
Eitt af gögnum blaðsins er
bréf frá alkunnum braskara í
Reykjavík, Guðmundi Þorkels-
syni, til Björns Gíslasonar. —
Kvartar Guðmundur um, að
Brunabótafélagi islands hafi ver-
ið selt veðskuldarbréf að upphæð
10.000 kr., en ekki fengizt út-
borgaðar nema 7.800 kr. Eru í
bréfinu tvímælalausar aðdróttan-
lv í garð þeirra bræðra, Halldórs
Og Björns, um sviksamlega fjár-
öflun fyrir milligöngu Björns
Gíslasonar.
Þá getur blaðið þess, að H. S.
hafi verið kærður fyrir lögreglu-
stjóra fyrir þessar athafnir, en
forstjórinn hafi fengið kæranda
til að taka aftur kæruna. Síðan
leiðréttir blaðið þetta og telur aö
þetta eigi við Björn Gíslason.
Þá eru talin allmörg dæmi þess,
að Halldór Stefánsson hafi lánað
nánustu skyldmennum sínum
miklar fúlgur úr Brunabótafélagi
' Islands gegn lélegum og varhuga-
verðum tryggingum, og veitt
Birni bróður sínum gjaldkera-
stöðu við félagið, eftir að honum
hefði veríð vikið úr starfi ann-
arstaðar fyrir óreiðu, og síðan
ráðið hann í aðra stöðu hjá fé-
laginu, eftir aö orðið hefði
að ■ víkja honum frá gjaldkera-
stöðunni fyrir 5000 kr. sjóðþurrð,
árið 1930.
Eru ásakanir þessar svo þung-
ar, auk þess að vera settar fram
í aðalmálgagni Öflugs stjórnmála-
flokks, að eigi getur annað talizt
hugsanlegt, en að rannsókn verði
hið bráðasta látin fram fara á
fjárreiðum Brunabótafélagsins.
Ættingjum og vinum tilkynnist að verzlunarst/óri
PÓRSTEINN SIGVALDASON,
andaðist að heimili sínu föstudaginn 15. júní.
Hann verður jarðsunginn laugardaginn 23. júní og hefst at-
höfnin með húskveðju frd heimili okkar, kl, 1 e. h.
Sigvaldi E. S. Porsteinsson.
Sigvaldi E. S. Sigvaldason. Lundfríður Jóhannsdóttir.
Framboðsfundir
í Suður-Þingeyjarsýslu.
Frambjóðendur stjórnmála-
flokkanna í Suður-Þingeyjarsýslu
héldu fund á Svalbarðseyri mið-
vikudaginn 14. júní, í samkomu-
húsi hreppsins. Voru öll þing-
mannsefnin mætt, nema Jónas
Jónsson, en í hans umboði mætti
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
Ræðutíma frambjóðenda var
skipt þannig, að í fyrstu umferð
hafði hver 30 mín. ræðutíma, síð-
an 15 mínútur, en þar á eftir var
orðið gefið laust,, þeim kjósend-
um, er taka vildu til máls. Að
síðustu hafði hver frambjóðandi
10 mín. ræðutíma.
Fyrstur tók til máls frambj.
Alþýðuflokksins, Sigurjón Frið-
jónsson, og skýrði hann nokkuð
frá stefnu flokksins, og þeim höf-
uðmálum, sem hann berðist fyrir,
svo sem ríkisrekstri á ýmsum fyr-
irtækjum, slysa-, elli- og atvinnu-
leysistryggingum og lækkun
vaxta, sem sérstök ástæða væri til
áð vinna bót á. Einnig minntist
hann á frumv. jafnaðarmanna,
um fjárlagadóm og fleira.
Næstur tók frambjóðandi
Bændaflokksins, Ilallgr. Þor-
bergsson til máls. Fór hann mjög
óljósum orðum um skilnað Tr.
Þórhallssonar, við Framsóknar-
flokkinn og ástæöuna til stofnun-
ar Bændaflokksins. Fannst hon-
um Framsóknarflokkurinn hafa
hugsað svo lítið um bændurna og
sveitirnar, vegna samvinnunnar
við Alþýðuflokkinn, að við svo.
búið mætti ekki standa, og hefði
því orðið að stofna nýjan flokk.
Nú vildi Bændaflokkurinn yfir-
leitt vinna sveitunum allt hugsan-
legt gagn (ekki svo slæm hug-
mynd á bak við klofninginn!). En
þegar frambjóðandanum var bent
á, að Bændaflokkurinn hefði ekk-
ert á stefnuskrá sinni bændum til
gagns, sem Framsókn hefði ekki
ætíð haft, varð honum svarafátt.
Yfirleitt var ræða hans óskaplega
dauf, og bragðlítil.
Sigfús Halldórs frá Höfnum
talaði fyrir hönd frambj. Fram-
sóknarfl., Jónasar Jónssonar,
er ekki gat mætt. Tók hann sem
texta hina þjóðfrægu íhaldslýs-
ingu Jóns Þorlákssonar og gerði
síðan rækilegan samanburð á
stefnumun Framsóknar- og
»Sjálfstæðis«-manna, samvinnu-
og íhaldsmanna, og á búskap sam-
vinnustarfseminnar og íhaldsú#-
gerðarinnar undanfarna áratugi,
svo ójafnt sem þeir hefðu þó
staðið að vígi um markaðsskilyrði
afurða sinna, er viðreisn ísl. at-
vinnuvega hófst í alvöru. Síðan
minntist hann á ýms stórmál, sem
. Framsóknarflokkurinn hefði haft
á stefnuskrá sinni, svo sem við-
reisnarmál sveitanna, samgöngu-
málin, dómsmálin, o. fl. o.
fl. — Bar ræða hans af ræðum
allra hinna frambjóðendanna,
bæði hvað rök og málaflutning
snerti, því enginn flytur mál sitt
snjallar en Sigfús Halldórs frá
Höfnum. Gazt fundarmönnum
prýðilega að þessum fulltrúa
Framsóknarflokksins, sem og von
var.
Þá talaði frambjóðandi komm-
únista, Aðalbjörn Pétursson.
Lýsti hann því strax yfir, að
Kommúnistaflokkurinn væri á-
kveðinn stéttaflokkur. Var ræða
hans flutt af miklum hávaða og
handafumi, en mun ekki hafa
haft djúp áhrif á kjósendur.
Var það eftirtektarvert, að
langmestur ræðutími hans fór i
skammir um Framsókn. Var auð-
séð að við hina flokkana var hann
ekki hræddur, heldur við þann,
sem flestar framkvæmdiniar
liggja eftir.
Síðastur tók frambj. Sjálfstæð-
isflokksins, Kári Sigurjónsson, til
(Framh, á 4. síðu).