Dagur - 17.07.1934, Qupperneq 1
)
D A O U R
kenmr út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júií.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞOR.
Norðurgötu3. Taislmi llí.
LTppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. dea.
XVII. ár. í
*
Akuireyri 17. júlí 1934.
80, tbl.
Inmlendai
Snmavbústo/) hefir símastöðv-
arfólkiö á Akuréyri reist í Vagla-
skógi. Er það allstórt hús og talið,
kosta um kr. 4000-00.
Hallgrímshátíð —- önnur í röð-
inni — var haldin að Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd s. 1. sunnudag.
Voru þar saman komnir um 3000
manns. Skemmtiatriði voru mjög
f jölbreytt.
Fjöldi erlendra síldveiðileið-
angra hafa komið til Siglufjarðar
undanfarið, frá Finnlandi, Sví-
þjóð, Estlandi og víðar. En enn-
þá hefir síldveiðin gengið fremur
tregt.
Barnaleikvöllur. Nýlega hefir
Akureyrarbær látið útbúa barna-
leikvöll á Oddeyrinni. Er hann
rúmgóður og þar ýms áhöld
handa börnunum t’il að skemmta
sér við, s. s. rólur, sölt, gangslá
og sandkassi. Einnig er þar skýli,
sem börnin geta leitað inn í, þeg-
ar misjafnt er veður. Það er gott
til þess að vita, að forráðamenn
bæjarfélagsins hafa skilið þörf-
ina á þessu, og nú geta foreldrar
barnanna verið örugg um börn
sín þann tíma, sem leikvöllurinn
er opinn, ef þau aðeins koma
Erl. fréttir.
Afiökurnar í Þýzkalandi.
Undanfarið hafa menn víðsveg-
ar beðið með eftirvæntingu eftir
greinargerð Hitlers fyrir aftök-
unum í Þýzkalandi.' En eftir um-
mælum erlendra blaða, var í ræðu
hans í ríkisþinginu um daginn'
mjög óljóst minnzt á það mál.
Talið er að óánægja fari vaxandi
í Þýzkalandi möti ríkisstjórninni.
Engin skrá hefir enn verið b'irt
yfir aftökurnar, en fyrst voru
þær sagöítr í Þýzkalandi um 40.
En hinn 8. þ. m. hefir »Berling-
ske.Tidende« tekið það upp eftir
enskum blöðum að teknir hafi
verið af lífi 250—300 manns.
Samvinnumál í Svíþfóð.
Það er eftirtektavert að sam-
vinnufélagsskapurinn hefir náð
mestri útbreiðslu með þeim þjóð-
um, sem lengst eru komnar í
menningu. Germanskar þjóðir eru
1 fréttir.
þeim þangaö. Aðeins skal á það
bent, að skjólgirðingu þyrfti að
setja að minnsta kosti norðan við
völlinn, því mjög er þar skjól-
laust. Eftirlit leikvallarins hafa
þau systkinin Svafa Stefánsdóttir
kennslukona og Marínó L. Ste-
fánsson, kennari. Leikvöllurinn
er opinn alla viika daga kl. 9—
12 f. h. og l1/2—7 e. h. og á
'sunnudögum kl. 2—7 síðdegis.
Yfir LágheiM, frá ólafsfirði að
Fljótum í Skagafirði var farið á
bíl fyrir stuttu síðan. Vegalengd-
in er 25 km. og var bíllinn 11 kl.-
st. á leiðinni. Talið er að heiðina
megi gera vel bílfæra með litlum
'tilkostnaði. Bílstjórinn var Sig-
urður Ingimundarson, ólafsfirði.
Svipuð aðferð. og þetta hefir
víðar verið notuð, til þess að
vekja áhuga fyrir akbrautarlagn-
in'gu og vinna á móti þeirri
tregðu, sem'margir eru haldnir
af í sambandi við nýjar fram-
kvæmdir. Fyrir nokkrum árum
var brotist með bíl yfir Fjarðar-
heiði, milli Seyðisfjarðar og
Fljótsdalshéraðs í sama tilgangi.
Nú er veríð að fullgera akbraut
yfir þá heiði í sumar. Engu skal
um það spáð, hvort þessi ferð
yfir Lágheiði ber sama árangur.
þar á undan. Síðan heimsstyrjöld-
inrii lauk hafa samtök neytend-
anna . stöðugt vaxið í þessum
löndum. Af Norðurlöndum hefir
þó framgangur samvinnufélaga ,
verið einna örastur í Svíþjóð. Fé-
lagsmönnum hefir fjölgað þar frá
1919 úr 230.000 upp í 530.000 til
síðustu áramóta. Umsetningin
hefur aukist á sama tíma úr 216
milj. kr. upp í 352 milj. kr. Eru
þessar framfarir eftirtektarverð-
ar fyrir íslenzka safnvinnumenn,
hjá frændum vorum í Svíþjóð.
Nútí&in, kristilegt sjómannafélag,
liefir verið stofnað á Akuveyri, og hef-
ir það aðsetur sitt í Hafnarstræti 107
B. Hefir það opinn veitinga- og lestr-
arsal og skrifstofu.
Sigursteinn Magnússon framkvæmda-
stjóri í Leith var kosinn á aðalfundi
Sís til að vera fulíti-úi þess á þingi al-
þjóðasambands samvinnumanna. sem
halda á í London í haust.
Merkur gestur
Með síðustu ferð »Brúarfoss«
frá útlöndum til Rvíkur kom C.
E. Tomlinson, framkvæmdastjóri
fyrir upplýsinga-' og fræðslustarf-
semi brezku samvinnuheildsöl-
unnar. Þessi maður er sendur
hingað af stærsta samvinnufyrir-
tæki heimsins, til þess að kynna
sér hve langt samvinnumálunum
er komið á íslandi. Hann fór með
bíl frá Reykjavík til Akureyrar,
og fór þaðan snögga ferð í Mý-
vatnssveit. Áður en hann fór frá
Englandi, var ákveðið að hann
skyldi flytja sex fyrirlestra um
ísland, þegar hann kæmi aftur
heim. En eftir að hafa séð landið
og kynnzt þjóðinni þann stutta
tíma, er hann dvaldi hér, bjóst
hann við að flytja miklu fleiri
fyrirlestra um landið og þá eink-
um um samvinnumálin. Svo vel
leizt honum á fsland og íslend-
inga. C. E. Tomlinson fór aftur
með Brúarfossi til útlanda, en
ætlaði að heimsækja öll kaupfélög
á viðkomustoðum skipsins. Sýnir
þessi ferS hr. C. E. Tomlinson
hve Englendingar leggja mikla á-
herzlu á fræðslustarfsemi í sam-
vinnumálum, og gæti orðið ís-
lenzkum samvinnumönnum hvatn-
ing, til að sinna þeirri hlið fé-
lagsmálanna meira, en gert hefir
verið.
Ritfregnir.
Aðalsteinn Sigmundsson: A
að fræða börn og unglinga
um kynferðileg efni? Rvík s
1934. Félagsprentsmiðjan.
Erindi þetta flutti Aðalsteinn
Sigmundsson kennari, í Reykja-
vík 10. febrúar sl.
Erindið er vörn gegn ádeilum,
er höf. sætti vegna þess að hann
»framdi ódæði« það, að fræða
nemendur sína um byggingu og
starf mannlegra kynfæra, sam-
fara annari fræðslu um starf
annara líffæra líkamans.
Það gegnir furðu, að á þessari
blessaðri skólaöld, sem við lifum
á, skuli það talið til ódæðisverka
að fræða unglinga um störf
þeirra líffæra, sem eiga dýpri
rætur í sálar- og líkamseðli
manna, en nokkur önnur. Sýnir
þetta glöggt að þó við ber-
umst nokkuð á í skóla og fræðslu-
málum, þá er þó enn það spor ó-
stígið, sem knýjandi nauðsyn
virðist vera á að stígið verði
skjótt og skarpt og helzt á þann
hátt að veitt verði skynsamleg og
heilbrigð fræðsla í öllum ung-
lingaskólum um þessi efni.
I-Iöf. tilfærir orð ýmissa stór-
merkra rithöfunda og uppeldis-
fræðinga, máli sínu og skoðun til
sönnunar, t. d. þá Bertrand Rus-
sell, John B. Watson, August Fo-
rel og síðast, en ekki sízt Robert
Baden-Powell eða Gillvell lávarð,
eins og hann nú heitir. Eru þeir
allir þeirrar skoðunar, að fræðsla
um kynferðileg efni á siðferði-
lega heilbrigðum grundvelli sé
sjálfsögð og nauðsynleg.
Dómsmál og réttarfcw.
Erindi eftir Hermann
Jónasson. Flutt á
flokksþingi Framsókn-
armanna í marz 1934.
Prentsm. Acta.
Erindi Hermanns Jónassonar
um »Dómsmál og réttarfar« er
alhyglisvert og tímabært. Höf.
getur nokkurra manna og mála,
sem komið hafa fram á vettvangi
dómsmála og réttarfars á síðustu
árum -og hvernig við þeim hafi
verið snúizt af hálfu réttvísinnar.
Þar er sýnt, hve erfitt er að koma
fram réttlátri hegningu á fjár-
glæframenri og braskara, sem ár-
um saman hafa leikið lausum
hala og látið greipar sópa um
eignir annara, vegna þess að á
»æðri stöðum er ekki vilji á því
að lögin nái jafnt til allra«. —
Höf. bendir ennfremur á, að á
íslandi verði að gera sömu kröfu
til réttvísinnar og dómsvaldsins
og geröar eru í öðrum löndum.
Erindi Hermanns Jónassonar
þarf að verða lesið af sem flest-
um, því þar er gripið á því kýl-
inu, sem lengi hefir verið að
þrútna og mest óheilbrigði stafar
af nú um stundir, þegar segja má
að allskonar fjárprettir séu liðn-
ir og leyfðir átölulaust, og stiga-
mannaeðlinu gefinn kostur á að
daíria undir handarjaðri svo-
nefndrar réttvísi.
/ stjórn SÍS til næstu þriggja ára
voru endurkosnir á nýlega afstöðnum
aðalfundi þess Sig. Bjarklind káupfé-
lagsstjóri og Þorsteinn Jónsson, kaup--
félagsstjóri. Varaformaður endurkosinn
Sigurður Jónsson, Arnarvatni. Endur-
skoðandi kosinn Tryggvi ólafsson og
til vara Guðbrandur Magnússon for-
Stjóri.